Töskur;Tuðrur;Skjóður!

April 27th, 2010


Uppskriftin

Uppskriftin

…og innblástur:

…og Hobo taskan úr KnitKnit:


Tehettur, bóleróar og sumarprjón.

April 27th, 2010

Á prjónunum er steingrár Dömujakki. Uppskriftina fékk ég í áskriftinni að saumaklúbbnum sem er stórskemmtileg viðbót við prjónaflóruna. Dömujakkanum miðar vel áfram og hef ég mikla trú á uppskriftinni og hlakka til að ganga í henni. Einu mínusinn er nafnið. Dömjakki er bara ekki alveg að kveikja í mér.

Eins og oft áður að þá er ég farin að gæla við næsta verkefni. Mig langar að prjóna eitthvað sumarlegt og smátt, eitthvað sem garnafgangar nýtast vel í. Ég er ekki alveg komin með uppskriftirnar á hreint en hér er innblásturinn fyrir næsta verkefni:

Dásamleg tehetta, ég er einmitt að komast í testuð. Slip Slip Knit deilir uppskriftinni.

Allar mömmur eiga skilið svona fallegt hjarta! Þetta er fengið hjá: Fun and fancy stitches

Geggjaður heklaður bóleró

Og frá Pickles er þessi hér að ofan. ÆÐI. Þær eru snillingar, allt svo einfalt og skemmtilegt!


Prjona.net vaknar til lífsins á ný

April 22nd, 2010

Jæja, langt um liðið síða síðasta færsla var skrifuð hér inn. Frá því vefurinn opnaði hef ég dælt inn hlekkjum á ókeypis uppskriftir, fjallað  um fyrirbæri í prjónvefheimum s.s. prjónagraff og komið með innblástursblogg. Nú er ég að huga að ritstjórnarsviflu og twisti.

Þannig að hingað eiga eftir að hlaðast upp færslur sem aldrei fyrr um allt milli himins og jarðar, tengt prjóni.

Hápunktur prjónaársins fyrir íslenska prjónara hlýtur að vera án efa Lykkjur 2010 þar sem prjónalist, prjónasmiðjur, prjónabækur og prjónainnblástur mun gusta um stórhöfuðborgarsvæðið. Allir áhugasamir, sem vilja vera með viðburð geta sent mér línu. Aðaláherslan er á viðburðahelgina 17.júní - 20.júní. Það verður urmull af fyrirlestrum um prjón, glansandi garni og glænýjum prjónabókum en ég hef það fyrir víst að margar bækur munu líta dagsins ljós akkúrat í kringum hátíðina.

Vanastar erum við hugsanlega prjóni sem praktísku tóli til að skapa flíkur úr öllum litum regnbogans en á sýningunni Loops mun prjónið birtast okkur í formi ólögulegra forma sem lúta öðrum lögmálum og eru ekki endilega ætluð til hversdagsbrúks.

Hlakka til að sjá ykkur í Norræna húsinu með prjónana á lofti og sköpunargleðina í farteskinu. Fylgist með hér á www.prjona.net og á Faceboook síðu Prjona.net

Í sumar verða það Boleróar í öllum stærðum og gerðum! Þessi er frá www.pickles.no en þær koma á Loops 2010.

Jibbý!!!!


Fuglafit: Farfuglaprjón við Vesturgötu 17 (myndir)

March 10th, 2010

Í kvöld var fyrsti í Fuglafit. Fuglafit er prjóna”whatever” á Farfuglaheimilinu við Vesturgötu 17. Farfuglaheimilið er reyndar ekki bara gististaður heldur svalt kaffihús líka. Þar eru útlendingar við flest borðin og allar heimsins tungur klingja í loftinu.

Nú hefur verið komið fyrir þar feiknastórri prjónakörfu sem mun eiga aðsetur þar um næstu misseri. Því má með sanni segja að þetta sé eitt af fáum, ef ekki eina, raunverulega prjónakaffihúsið í Reykjavík. Þarna er hægt að setjast niður með kaffið og taka nokkrar umferðir til að vinda ofan af sér eða bara njóta.

Karfan er þarna af ásetningi. Garnið í henni er ætlað í prjónagjörninga mikla í Reykjavíkurborg og nágreni. Þetta er hið kæruleysilegasta prjón sem þið komist í, prjón án skuldbindinga. Ekki hafa áhyggjur af að eyða formúgu í peysu sem rykfellur útí horni og æpir á ykkur um frágang. Fitjið upp á litlum renningum og þið þurfið ekki einu sinni að klára.

Þetta er sannkallað samfélagsprjón, margar lykkjur verða að MEGA graffi!

Við verðum þarna alla miðvikudaga fram eftir vori, látið sjá ykkur.Komið og fáið gefins garn frá ÍSTEX í gjörninginn (þið getið skilað renningum til mín í Norræna húsið eða á Vesturgötu á miðvikudögum).

Í lok kvöldsins var svo graffað með prjóni. Sjáið myndirnar hér.


Lykkjur: Norræn prjónalist 2010 í Norræna húsinu

March 9th, 2010

Kæru lesendur Prjóna.nets,

Í sumar verður heljarinnar prjónaveisla í Norræna húsinu þegar viðburðurinn Lykkjur: Norræn prjónalist er á dagskrá. Meginkjarni viðburðarins er sýning á sannkallaðri prjónalist og stendur hún yfir frá 17.júní - 4.júlí. Fyrstu helgi viðburðarins 17.júní - 20.júní verða smiðjur, fyrirlestrar og ýmsir fjörugir prjónaviðburðir á dagskrá. Margir prjónarar hafa farið á námskeið sem spanna marga tíma og/eða jafnvel daga. Smiðjurnar á Lykkjum verða smærri sniðs og má líta á þær sem bragðprufur. Þær munu spanna frá 2-3 tíma og er um að ræða sambræðing fyrirlestur og sýnikennslu. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur taki með sér sitt eigið garn, prjóna og allt sem til þarf í smiðjurnar. Þátttökugjald er ekkert eða mjög lágt. Það á eftir að skýrast þegar nær dregur. 

Nú þegar erum við byrjuð að hita upp fyrir Lykkjur. Að tilefni að hátíðinni verður prjónagraff í forgrunni og mun Reykjavík fá á sig mjúkt og litríkt yfirbragð. Við ætlum að gera umfangsmikið prjónagraffverk sem þarfanst margar prjónabúta. Prjónarar eru hvattir til að taka þátt með því að senda prjónabúta til Norræna hússins. Einnig er hægt að fá garn í bút hjá okkur í Norræna húsinu. Það er Ístex sem styrkir okkur með garni. 

Þið getið líka komið á kaffihúsið að Vesturgötu 3, 101 Reykjavík (Reykjavík DownTown Hostel) á morgun miðvikudag kl. 20.00. Þar verður hægt að nálgast garn ef þið viljið taka þátt í gjörningnum. 

Hér getið þið melt ykkur á viðburðinn á Facebook.

Hér getið þið lesið um viðburðinn á heimasíðu Norræna hússins.


allt heklað-innblástur á föstudegi

February 19th, 2010


Fjallabyggðatrefillinn

January 31st, 2010

Þetta er dásamlegt verkefni! Samprjón par exelance! Gangi ykkur vel íbúar í Fjallabyggð!

Tekið af vefsíðu Fjallabyggðar:

“Í Fjallabyggð keppist fólk nú við að prjóna. Karlar, konur og börn, innfæddir, aðfluttir og fráfluttir, á öllum aldri hafa tekið upp prjónana og keppast nú við að prjóna 17 km. langan trefil. Ætlunin er að nýta trefillinn til að tengja saman byggðarkjarnana alveg frá miðbæ Siglufjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng inn í miðbæ Ólafsfjarðar við vígslu gangana í lok september nk. þegar göngin verða formlega opnuð.

Hugmyndina að þessu framtaki á Fríða Gylfadóttir listamaður á Siglufirði og hefur hún staðið í ströngu síðustu daga við að koma verkefninu af stað.
Eftir að byggðakjarnarnir hafa verið tengdir saman er ætlunin að búta trefillinn niður í minni trefla, þæfa þá, sauma í þá merki Fjallabyggðar og selja til styrktar góðgerðarmála.

Búið er að setja upp prjóna á helstu samkomustöðum sveitarfélagsins sem hægt verði að grípa í þegar tækifæri gefst. Það má því búast við að prjónað verði á biðstofum heilsugæslunnar, á hárgreiðslustofunum, öllum verslunum, í bakaríinu, í apótekinu, í frímínútum hjá grunnskólunum, á bifreiðaverkstæðum, og kaffistofum út um allt sveitarfélagið. 

Fríða hvetur allt prjónafólk á Siglufirði, Ólafsfirði og um land allt til að sameinast og senda inn búta. Litir, gerð garns eða prjónamunstur skiptir ekki máli, bútarnir þurfa bara að vera 20 cm. breiðir. Vinnustofa Fríðu á Siglufirði verður opin alla mánudaga frá kl. 15-18 í tengslum við verkefnið svo einnig verður hægt að mæta þangað.

Áhugasamir geta haft samband við listamanninn í síma 896-8686, eða sent línu áfrida@frida.is. Auk þess er hægt að senda búta á skrifstofu sveitarfélagsins Gránugötu 24 580 Siglufirði eða Ólafsveg 4 625 Ólafsfirði”

 


Peysan sem var prjónuð föst við prjónavegginn í prjónaherberginu

January 22nd, 2010

Í bókinni KnitKnit er skemmtileg viðtal og uppskrift eftir listakonuna og hönnuðinn Isobel Berglund. Hún prjónar svo sannarlega út fyrir rammann.

Í bókinni er m.a. hægt að prjóna eftir uppskrift að Jump in the Wall Jumper. Peysa sem er föst við prjónaðann vegg er algjörlega út úr þessum prjónaheimi sem dagsdaglega er í kringum okkur. Isobel er líka með sína eigin fatalínu sem er MEGA kúl en hún er þó gift listinni og vill fyrst og fremst einbeita sér að henni. Húrra fyrir Isobel og prjónaherberginu hennar. Prjónari að mínu skapi, já já.


Námskeið í prjóni og hekli

January 22nd, 2010

Máttarstólpar prjónaheimsins eru þeir aðilar sem þreytast ekki á því að bera út fagnaðarerindið og kenna okkur hinum listina. Hægt er að sækja sér fróðleik til margra aðila þegar kemur að prjóni. Textílsetrið býður nú upp á skemmtilega námskeiðshelgi-heil helgi í garnheimum, tala um garn, prjón og hekl daginn út og daginn inn er bara svo dásamleg tilhugsun. Einnig eru frábær námskeið reglulega hjá garnverslunum s.s. Storkinum og Nálinni. Heimilisiðnaðarfélagið er líka ómissandi með bæði prjónakaffin í Kópavogi og svo öll námskeiðin. Svo er um að gera að fylgjast með Knitting Iceland á Facebook. Þar er margt að krauma.


Rauði þráðurinn í lífinu

January 18th, 2010

er auðvitað prjónið. Ekki spurning. Rauði þráðurinn er leiðarhnoðið sem tosar okkur áfram lykkju eftir lykkju, verkefni eftir verkefni.

Janúar er dásamlegur vegna þess að þá er kalt og kalt þýðir að maður getur bólstrað sig inni í ull. Ég veit fátt betra en að vera með prjónaða húfu, trefil, vettlinga, sjal og í peysu og jafnvel prjónapilsi samtímis í skítakulda. Núna er ég mikið að spá í að prjóna rúmteppi-það er örugglega frábært verkefni fyrir prjónara sem vantar í raun ekki neitt en getur ekki hætt að prjóna. Hvað ætli maður gæti prjónað stórt prjónles? Hmm ég sé mig fyrir mér í sófanum með rosalega langa prjóna og prjónlesið flæðandi um alla stofu og út á gang.

Eins og allir prjónarar ættu að vita að þá er á döfinni stór prjóna (og hekl) hátíð í Norræna húsinu í sumar. Hátíðin hefst 17.júní með hátíðarhöldum og svo hefst megaprjónaviðburðahelgi með fullt af skemmtilegum fyrirlestrum, smiðjum og gjörningum. Nú þegar hafa Sarah Applebaum og Patricia Waller samþykkt þátttöku og nú síðast bættist í hópinn teymið á bak við www.pickles.no. Þær ætla að vera með smiðju í sínum anda. Haldið ykkur fast og merkið við dagana. Ég veit að ég er að fuðra upp af tilhlökkun því ég veit að þetta verður eitthvað alveg einstakt!


Prjónatilraunir-Slip Stitch Mosaic

January 3rd, 2010

Slip Stitch Mosaic

Gleðilegt ár kæru prjónarar.

Árið sem var að líða var magnað fyrir okkur prjónelskandi manneskjur. Ég reikna með að met hafi verið sett í útgáfu á íslenskum prjónabókum. Það er bara frábært. Árið sem nú er að ganga í garð mun þó toppa síðasta ár, þetta verður bara betra og betra. Í sumar verður haldin heljarinnar prjónahátíð með margvíslegum viðburðum. Ekki er komið opinbert nafn á herlegheitin en í huganum kalla ég þetta prjónapartý-sem þetta verður.

Vonandi var margt garntengt í pökkunum  ykkar í ár. Ég var svo heppin að fá þrjár frábærar bækur. Ég fékk Kúr & Lúr frá móður minni (hún er með uppskrift í bókinni) og svo fékk ég tvær munsturbiblíur úr Storkinum (elska litaúrvalið þeirra í garni, dásamlegt að koma þangað). Ég ætla að birta tilraunir mínar upp úr bókunum hér á síðunni og hvet ykkur til að prjóna ykkur út í hið villta og hleypa nýjungum í prjóni inn í ykkar framleiðslu. Fyrsta prufan heitir Slip Stitch Mosaic og elska ég útkomuna. Þetta er úr baby ull (fæst m.a. í Storkinum). Svona munstur er heppilegt í grifflur, húfur, HÓLKA, legghlífar og þessa prufu ætla ég að nota í hulstur um gemmsann minn. Einu vankantarnir á þessari prufu sem ég gerði eru að hún teygist ekki vel og er frekar stíf. Ég þvoði hana og pressaði og þá sléttist aðeins úr henni en hún leit afkárlega út áður en ég gerði það.
Slip Stitch Mosaic


woolfest

December 19th, 2009

Sarah Applebaum

17. júní – 4.júlí 2010

Merkið við í dagatalinu!

Prjón í nýju samhengi í Norræna húsinu.

Norræna húsið mun standa fyrir norrænni prjónahátíð næsta sumar 17/6 – 4/7.

Annars vegar er um að ræða sýningu og hins vegar viðburðadagskrá.

Hátíðin mun fagna prjóni og hekli í öllum sínum margbreytileika. Með hátíðinni viljum við miðla prjóni eins og það birtist í samtímanum

og munu prjónahönnuðir og listamenn heiðra hátíðina með þáttöku sinni.

Sýningin mun standa til 4.júlí en á sýningartímabilinu verða fjölmargir viðburðir á dagskrá s.s. prjónaveisla undir berum himni, smiðjur fyrir börn og fullorðna,

fyrirlestrar, málþing um höfundarrétt í prjónaheiminum, prjónum úti dagurinn og margt margt fleira.

Listræn prjónaveröld verður í sýningarsal Norræna hússins

Tvær  virtar listakonur hafa staðfest þátttöku í viðburðinum. Þær verða með verk á sýningunni og taka þátt í dagskrá sömuleiðis.

Þetta eru:

Patricia Waller gerir óvenjuleg heklverk sem blanda saman krútti og hryllingi. Verkin eru kunnugleg en óþægileg á sama tíma.

Patricia er fædd í Chile en býr og starfar í Berlín, Þýskalandi, og hefur tekið þátt í fjölda sýninga þar og annars staðar í Evrópu.

http://www.patriciawaller.com

Sarah Applebaum býr og starfar í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og fengið margar viðurkenningar fyrir list sína.

Í verkum sínum notar hún bæði prjón og hekl og eru þetta litríkar innsetningar og heilir heimar garns.  http://www.sarahapplebaum.com/

Patricia Waller


Jólagjafir frá prjónara og jólagjafir til prjónara

December 8th, 2009

Jólin! Prjón við kertaljós er iðja sem margir iðka nú um stundir. Jólin nálgast og við erum hugsanlega að prjóna okkur eitthvað fallegt fyrir jólin eða hugsanlega gjöf handa einhverjum nákomnum.
Þessi jólin sagði ég sjálfri mér að ég myndi ekki prjóna margar gjafir, bara svo ég tapi nú ekki geðheilsunni. Ég var búin að ákveða að ég myndi EKKI vaka fram eftir öllu að klára gjafir á síðasta snúningi eins og í fyrra. En viti menn, nú er ég komin á fullt og er með tvær gjafir í gangi, peysu og ponsjó. Ég prjónaði sleitulaust í 4 tíma í gær og er komin á alvarlegt stig í prjóninu, ég ber neikvæðar tilfinngar til prjónlesins sem dinglar á prjónunum, get ekki beðið eftir að klára og finnst tímapressa ekki virka vel með mínum prjónaskap. Sumir hrista kannski hausinn og segjast geta prjóna 24/7 en ég er ekki ein af þeim. Já já, ég elska að prjóna, er hrifin af því og allt en…á mér líf.

Jæja nóg af kvabbi. Prjónarar prjóna gjafir og hafa hugsanlega líklega gaman að því. Hér eru nokkrar jólagjafahugmyndir að gjöfum frá prjónara til óbreyttra óprjónandi ættingja og vina.

1. Húfa-fljótlegt verkefni og gaman að bæta þeim með í pakkana.
2. Vettlingar-sunnudagsvettlingar t.d. (útprjónsvettlingar). Sparilegir vettlingar eru hvers manns hugljúfi.
3. Stúkur-fljótlegt verkefni og heillar marga stúlkuna.
4.Legghlífar. Mjög gott að eiga par af þeim þegar það er skítakuldi úti og við viljum bara pils.
5. Bangsi handa þeim yngsta.
6. Ponsjó úr þykku garni-maður er svooo fljótur að því.
7. Einfaldar hyrnur úr t.d. tvöföldu einbandi, líka mjög einfalt.
8. Pottaleppar-Hægt að nota prufurnar í körfunni
9.Prjónahólkur og áskorun til viðkomandi að hengja hann upp í hverfinu sínu í skjóli nætur.
10. Sjónvarpssokkar. Þeir eru komnir aftur! Hægt að fá uppskrift á ístex eða í bókinni Prjónaperlur.

Prjónarinn elskar líka prjónslegar gjafir.

1. Kind af kindur.is
2. Snobbgarn sem prjónarinn leyfir sér aldrei að kaupa
3. Prjónasett
4. Prjónanámskeið
5. Garnúttekt í góðri garnbúð
6. Prjóna DVDinn Prjónum saman
7. Bækur eins og Prjónaperlur og Kúr & Lúr
8. Biblíur eins og Knitters Almanac e. Zimmerman
9. Munsturdoðrantabækur með öllum hugsanlegum munstur í heiminum
10. Prjónagjafakarfa með úrvali af garni, prjónum og munsturhefti t.d. frá Ístex.


Prjónaperlur - ný prjónabók

November 28th, 2009

Jibbý! Prjónabókin Prjónaperlur: Prjónað frá grasrótinni er nú komin út og hefur að geyma urmull uppskrifta. Þetta eru alskonar uppskriftir; allt frá auðveldum húfum yfir í kaðlapeysur. Ég á tvær uppskriftir í bókinni og er ótrúlega stolt yfir að tilheyra þessum fríða hóp prjónaperlna. Hér eru myndir af öllum uppskriftunum í bókinni. Síðan ef þið viljið meira að þá er hér blogg bókarinnar.


Prjónum saman með Ragnheiði

November 24th, 2009

Prjónum saman er nýr DVD kennsludiskur. Þetta er að ég held í fyrsta sinn sem íslenskur prjóna DVD kemur út og því ber að fagna. Það verður svo gert í Norræna húsinu í dag kl. 17.00. Þá verða valin atriði sýnd og hægt verður að tryggja sér diskinn á ágætis verði.

Prjónarar! Leggið frá ykkur jólaskrautið, skundið af stað til Norræna hússins og prjónið saman. Jibbý.