Barnateppi/Prjónað fyrir minni máttar

Friday, August 14th, 2009

Nú eru komnir svo margir bútar uppi í Norræna húsi fyrir “Prjónað til góðs 2009″ að hægt er að byrja að sauma saman í fyrsta teppið.

Það á eftir að vera gaman að raða saman bútunum sem eru í öllum stærðum og prjónfestum, -margar hendur vinna einnig fallegt verk.

Sniðugt getur verið fyrir saumaklúbba og aðra prjónahópa að hjálpast að við að búa til teppi og skemmt sér saman yfir að raða saman í persónuleg teppi. Ég mæli með með myndinni How to make an American Quilt í þessu samhengi.

Gaman væri að fá að heyra í saumaklúbbum sem vilja vera með í þessu gefandi og skemmtilega verkefni.

Prjónakörfur prjónað til góðs

Wednesday, July 15th, 2009

Prjónað til góðs 2009 fer vel af stað. Núna eru körfur á Kaffi Hvönn, Norræna húsinu, og Kaffitári, Þjóðminjasafninu. Þeir sem vilja fá körfu á kaffihúsið sitt geta haft samband við mig en einnig ætti að vera auðvelt að snapa að sér garni og nokkrum prjónum og hvetja fólk til að prjóna. Einnig er hægt að prjóna bút heima hjá sér og senda mér eða niður í Nálina, laugavegi.

Prjónum úti á morgun

Saturday, June 20th, 2009

Jæja á morgun er stóri dagurinn hér í Reykjavík og víðar á landinu, s.s. Akureyri. Ég var að klára 4 prjónahólka sem ég set upp á morgun víðsvegar á milli Norræna hússins og Nálarinnar. Ég kom einmitt við í Nálinni í dag og afhenti Baby Surprise peysuna sem ég prjónaði síðasta sumar. Nú hangir hún úti í glugga ásamt öðrum fögrum peysum. Þessi uppskrift er auðvitað bara snilld og hvet ég alla prjónara til þess að prufa uppskriftina. 

Dagurinn á morgun er ekki flókinn. “Dagskráin” byrjar í Nálinni en þaðan ætlum við að ganga upp í Norræna hús með prjónana á lofti. Þegar þangað er komið er hægt að tilla sér niður annað hvort í grasið með teppi og sínar eigin veitingar eða setjast á Gróðurkaffihúsið sem er fyrir utan Norræna húsið. Þar er bæði hægt að sitja úti og inni. 

Þetta verður án efa skemmtileg samkoma og ég hlakka til að sjá hvað allir eru með á prjónunum. Hvað varðar bútaverkefnið að þá er það líka mjög einfalt. 

1. Prjónið bút, alveg sama hvernig garn og hvaða stærð þeir eru í en gott er að vita úr hvaða garni þeir eru svo hægt sé að raða samsvarandi bútum saman í teppi. 

2. Komið með garn sem þið viljið gefa og verður notað til að prjóna búta úr. Garninu verður safnað saman og komið fyrir í körfum á kaffihúsum og prjónabúðum. þar geta þá gestir og gangandi prjónað búta eða bara nokkrar umferðir í bút. 

3. Sendið bútana til mín á heimilisfangið: Eskihlíð 22, 105 Reykjavík. Ég sé um að taka myndir af öllum bútum sem koma og birta hér á síðunni. Einnig safna ég saman bútum sem prjónaðir eru á kaffihúsum. 

Ég efast ekki um að þátttakan verði góð því prjónarar eru gjafmildir að upplagi. Þegar nægt efni er komið í slatta af teppum höldum við uppboð og gefum ágóðan til góðs málefnis. Ok. Allir með!?

Sjáumst á morgun í prjónastuði!

Prjónum til góðs á “prjónum úti deginum”

Friday, May 29th, 2009

Kæru Prjónarar,

Stillum saman strengi okkar og prjónum til góðs fyrir líknafélög í landinu. Leitað er til allra prjónara nær og fjær eftir aðstoð.

Á prjónum úti deginum verður hleypt af stokkunum prjónað til góðs söfnun. Hún snýst um að safna saman prjónuðum og hekluðum bútum sem seinna verða saumaðir saman í teppi. Teppin verða svo boðin upp og ágóðinn rennur til góðgerðafélaga. Til þess að sem flestir geti tekið þátt langar okkur að fá kaffihúsin með okkur í lið og koma þar upp prjónakörfum og prjónum ásamt grunnleiðbeiningum í prjóni. Þá geta kaffihúsagestir tekið í prjónana og prjónað nokkrar umferðir eða jafnvel heilan bút. 

 

Þetta þýðir mikið af garni, körfum og prjónum og gaman væri ef allir prjónarar gætu séð af s.s. einni dokku úr binginum og kannski prjónum. Enn er verið að leita að styrktaraðilum til samstarfs en þetta er upphafið. 

Á prjónum úti deginum munum við formlega hefja Prjónum til góðs verkefnið og þá væri gaman að geta safnað saman garni í bing. 

Þið sem viljið hefjast handa nú þegar við góðverkin getið sent mér garn, bút eða prjóna upp í Norræna hús. Einnig væri gaman ef þið getið komið upp prjónakörfu sjálf á kaffihúsum í nágreni við ykkur-tekið mynd af körfunni og sent mér. 

Ég hef fulla trú á að prjónarar taki þátt í þessu verkefni og gaman verður að fylgjast með þessu í vetur en uppskeran verður um jólin þegar einmitt er svo gott að gefa að sér.

Með von um góð viðbrögð, Ilmur. 

Prjónastolt

Monday, December 15th, 2008


Hjartað sló örar yfir fréttum af prjónamótmælum fyrir utan stjórnarráðið og þykir mér þessi aðgerð til fyrirmyndar og vona að þær verði fleiri og býð hér með fram krafta mína í að liðsinna við skipulagningu og þátttöku í slíkum aðgerðum. Prjónarar er harðir í horn að taka, þó seinþreytt til vandræða við séum, og láta greinilega ekki gadd og næðing mæða á sér heldur sitja vaktina. Prjónarar taka vaktina þegar aðrir spunamenn eru einhversstaðar að hossa sér eða klóra sér í höfðinu. Ég segi ei meir.

Nú verður síðasta prjónaglöggið á miðvikudaginn, þá ætla ég að leggja jólagjafaprjón til hliðar en mun hinsvegar gramsa í prjónabinginum (a.k.a. my knitstash eins og enskir prjónarar kalla sitt samansafn af garni) og finna eitthvað harðgert garn sem þolir hvaða veður sem er, hrindir frá sér slabbi og hreti, og ég ætla að prjóna úr þessu garni prjónahólk mikinn og veglegan og að fordæmi Prjónalausna ætla ég að sauma hann utan á næsta staur sem verður á vegi mínum. Þessi hólkur mun ekki bara standa fyrir andúð mína á ástandinu og öllu því hafurtaski heldur mun minn prjónahólkur fyrst og fremst vera hvatning til almennings að láta hendur standa fram úr ermum og “fitja upp á” hverju því sem þið teljið að muni gera samfélagið að betri stað.

Sjáumst á kaffi Hljóma(prjóna)lind á miðvikudaginn.

Prjónalausnir: aðgerðahópur prjónara

Thursday, December 4th, 2008

\"Rauður prjónahólkur við stjórnarráðið\"

Prjónanet fékk sendar myndir, sjá hér að ofan, og tilkynningu frá hópnum Prjónalausnir sem ég birti hér:

 

Rauður garðaprjónshólkur hefur birst á staur við bílastæði forsætisráðherra fyrir utan Stjórnarráðið.
Prjónalausnir, friðsamlegur og skapandi aðgerðahópur, lýsir gjörningnum á hendur sér.
Prjónalausnir hvetja ríkistjórn Íslands og ráðafólk allt til þess að líta sér nær og nota hugmyndaflugið þegar leitað er lausna við þeim vandamálum sem steðja að þjóðinni. Verið skapandi og óhrædd við nýjar uppskriftir og nýjan efnivið. Maður fitjar aldrei upp til einskis.
 
Með kveðju,
Prjónalausnir

 

Við leit á netinu fann ég svo þessa frétt um málið.

200 konur á prjónakaffi og reikningsnúmer Krabbameinsfélagsins

Friday, September 5th, 2008

Í gær, á prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins, rokseldust merkin enda voru þarna um 200 konur samankomnar. Ég hvet alla sem ekki hafa enn lagt leið sína á prjónakaffið að skella sér í næsta mánuði en þetta er haldið fyrsta hvern fimmtudag í mánuði.

Hér eru reikningsnúmer Krabbameinsfélagsins fyrir ykkur sem voruð ekki með reiðufé á ykkur í gær.

301-26-706 kt. 700169-2789 og setjið prjon í tilvísunina. Kvittun þarf að senda á ilmur(hjá)prjona.net

Ef einhver missti af merki í gær að þá á ég enn eitthvað eftir af þeim og ætla að koma með þau á næsta prjónakaffi og/eða hafa þau á leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Á leitarstöðinni verður einnig hægt að kaupa prjónles til styrktar félaginu og ef þið hafið áhuga á að prjóna fyrir félagið að þá hvet ég ykkur til að fitja upp á t.d. mjúkum og notalegum húfum og senda þangað. 

Prjónakaffi í kvöld

Thursday, September 4th, 2008

Í kvöld ætla ég á prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins á Amokka, Hlíðasmára, í Kópavogi.

Ég tek merkin með mér og mun selja þau á staðnum og vona að þau rjúki út þar sem allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins.

Ég prjóna-merkin hjá Storkinum og Handprjónasambandinu

Tuesday, August 26th, 2008

Hægt er að kaupa stærstu gerðina af hinum margfrægu merkjum hjá Storkinum og Handprjónasambandinu v. Skólavörðustíg. Takmarkað upplag svo ég hvet lesendur til að heimsækja þessar skemmtilegu verslanir og gera góð kaup. 

Ég prjóna-merkin út á land

Tuesday, August 26th, 2008

Þið sem búið úti á landi og hafið áhuga á að kaupa “ég prjóna”-merkin getið millifært inn á reikning Krabbameinsfélagsins: nr.301-26-706  kt. 700169-2789 og setjið prjon í tilvísunina. Kvittun þarf að senda á ilmur(hjá)prjona.net og þegar ég fæ kvittun sendi ég merkin af stað. Ég vil taka fram að þetta fyrirkomulag verður aðeins í gangi fram að helgi og er takmarkað upplag af merkjunum. 

Verðið er 1000 kr. fyrir stórt, 750 kr. fyrir miðstærð og 500 kr fyrir lítið. 

Prjónlesið sem ég fékk verður selt hjá Krabbameinsfélaginu og get ég enn tekið við kláruðum verkefnum. 

Kærar þakkir fyrir stuðninginn!

Takk fyrir komuna

Sunday, August 24th, 2008

Ég vil byrja á að þakka ykkur, sem lögðuð leið ykkar í garðinn í gær, fyrir komuna. Þrátt fyrir slæmt veður að þá komu ansi margir að prjóna, kaupa merki og þar að auki gáfu margir prjónles til styrktar söfnuninni.
Enn er talsvert eftir af merkjum og hægt er að nálgast þau hjá mér með því að senda póst á ilmur(hjá)prjona.net. Þið sem viljið koma til mín prjónlesi eða kaupa getið líka haft samband í gegnum sama netfang.

Einnig verður hægt að nálgast merkin og prjónlesið á næsta prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins á Amokka, Kópavogi, fyrsta fimmtudaginn í september. 

Það var gaman að leggja af stað í þetta verkefni og er maður nú reynslunni ríkari. Á næsta ári verður hugsað stærra.

 

Prjónles til sölu til styrktar Krabbameinsfélaginu. 

Sjáið ég prjóna-barmmerkin

Wednesday, August 20th, 2008

\

Þessi merki verða til sölu á Prjónað til góðs viðburðinum á Menningarnótt. Allur ágóði fer til Krabbameinsfélagsins og söfnun þess fyrir nýjum greiningartækjum á brjóstakrabbameini. Þrjú tæki eru komin í hús til þeirra nú: eitt tæki verður í Reykjavík, eitt á Akureyri og eitt verður farandtæki. Mikið umstang og kostnaður fylgir því að fá tækin hingað og kemur því þessi söfnun félaginu vel. Ég fékk www.myndvis.is til að gera merkin og þakka ég fyrir lipra þjónustu þar á bæ.

Merkin verða eingöngu til sölu í Hallargarðinum, sjáumst þar. 

 

Ég prjóna, trefil.

Monday, August 18th, 2008

Nú er undirbúningurinn í hámarki fyrir næstu helgi. Ég er að prjóna trefil eins og þennan hér að ofan. Minn er bleikur og ég verð líklega að leggja lokahönd (vonandi) á hann á Prjónum til góðs á Menningarnótt. 

Þessi uppskrift er alveg hreint frábær og finnst mér þetta verkefni koma vel til greina í jólagjafir. … halda áfram að lesa Ég prjóna, trefil.

Bleikt garn

Monday, August 11th, 2008

Ef þið eigið bleikt garn og eruð í stuði til að losna við það, deila því með ykkur og vera góð, að þá er ég að leita eftir bleiku afgangsgarni fyrir Menningarnótt sem verður 23.ágúst n.k. 

Grafið í garnstaflanum, það er hugsanlega eitthvað af bleiku garni sem óskar eftir stærri tilgang í lífinu en að vera í geymslu.

Góð gjörð - Prjónað til góðs á Menningarnótt

Thursday, August 7th, 2008

Það styttist í Menningarnótt og eins og áður hefur komið fram að þá er prjón á dagskrá Menningarnætur í ár. Prjónarar eru hvattir til að prjóna til góðs í Hallargarðinum milli 14:00 og 17:00 á Menningarnótt. Fólk er hvatt til að koma með bleikt garn og fitja upp á einhverju til styrktar Krabbameinsfélaginu. … halda áfram að lesa Góð gjörð - Prjónað til góðs á Menningarnótt