Prjona.net vaknar til lífsins á ný

Thursday, April 22nd, 2010

Jæja, langt um liðið síða síðasta færsla var skrifuð hér inn. Frá því vefurinn opnaði hef ég dælt inn hlekkjum á ókeypis uppskriftir, fjallað  um fyrirbæri í prjónvefheimum s.s. prjónagraff og komið með innblástursblogg. Nú er ég að huga að ritstjórnarsviflu og twisti.

Þannig að hingað eiga eftir að hlaðast upp færslur sem aldrei fyrr um allt milli himins og jarðar, tengt prjóni.

Hápunktur prjónaársins fyrir íslenska prjónara hlýtur að vera án efa Lykkjur 2010 þar sem prjónalist, prjónasmiðjur, prjónabækur og prjónainnblástur mun gusta um stórhöfuðborgarsvæðið. Allir áhugasamir, sem vilja vera með viðburð geta sent mér línu. Aðaláherslan er á viðburðahelgina 17.júní - 20.júní. Það verður urmull af fyrirlestrum um prjón, glansandi garni og glænýjum prjónabókum en ég hef það fyrir víst að margar bækur munu líta dagsins ljós akkúrat í kringum hátíðina.

Vanastar erum við hugsanlega prjóni sem praktísku tóli til að skapa flíkur úr öllum litum regnbogans en á sýningunni Loops mun prjónið birtast okkur í formi ólögulegra forma sem lúta öðrum lögmálum og eru ekki endilega ætluð til hversdagsbrúks.

Hlakka til að sjá ykkur í Norræna húsinu með prjónana á lofti og sköpunargleðina í farteskinu. Fylgist með hér á www.prjona.net og á Faceboook síðu Prjona.net

Í sumar verða það Boleróar í öllum stærðum og gerðum! Þessi er frá www.pickles.no en þær koma á Loops 2010.

Jibbý!!!!

Fuglafit: Farfuglaprjón við Vesturgötu 17 (myndir)

Wednesday, March 10th, 2010

Í kvöld var fyrsti í Fuglafit. Fuglafit er prjóna”whatever” á Farfuglaheimilinu við Vesturgötu 17. Farfuglaheimilið er reyndar ekki bara gististaður heldur svalt kaffihús líka. Þar eru útlendingar við flest borðin og allar heimsins tungur klingja í loftinu.

Nú hefur verið komið fyrir þar feiknastórri prjónakörfu sem mun eiga aðsetur þar um næstu misseri. Því má með sanni segja að þetta sé eitt af fáum, ef ekki eina, raunverulega prjónakaffihúsið í Reykjavík. Þarna er hægt að setjast niður með kaffið og taka nokkrar umferðir til að vinda ofan af sér eða bara njóta.

Karfan er þarna af ásetningi. Garnið í henni er ætlað í prjónagjörninga mikla í Reykjavíkurborg og nágreni. Þetta er hið kæruleysilegasta prjón sem þið komist í, prjón án skuldbindinga. Ekki hafa áhyggjur af að eyða formúgu í peysu sem rykfellur útí horni og æpir á ykkur um frágang. Fitjið upp á litlum renningum og þið þurfið ekki einu sinni að klára.

Þetta er sannkallað samfélagsprjón, margar lykkjur verða að MEGA graffi!

Við verðum þarna alla miðvikudaga fram eftir vori, látið sjá ykkur.Komið og fáið gefins garn frá ÍSTEX í gjörninginn (þið getið skilað renningum til mín í Norræna húsið eða á Vesturgötu á miðvikudögum).

Í lok kvöldsins var svo graffað með prjóni. Sjáið myndirnar hér.

Rauði þráðurinn í lífinu

Monday, January 18th, 2010

er auðvitað prjónið. Ekki spurning. Rauði þráðurinn er leiðarhnoðið sem tosar okkur áfram lykkju eftir lykkju, verkefni eftir verkefni.

Janúar er dásamlegur vegna þess að þá er kalt og kalt þýðir að maður getur bólstrað sig inni í ull. Ég veit fátt betra en að vera með prjónaða húfu, trefil, vettlinga, sjal og í peysu og jafnvel prjónapilsi samtímis í skítakulda. Núna er ég mikið að spá í að prjóna rúmteppi-það er örugglega frábært verkefni fyrir prjónara sem vantar í raun ekki neitt en getur ekki hætt að prjóna. Hvað ætli maður gæti prjónað stórt prjónles? Hmm ég sé mig fyrir mér í sófanum með rosalega langa prjóna og prjónlesið flæðandi um alla stofu og út á gang.

Eins og allir prjónarar ættu að vita að þá er á döfinni stór prjóna (og hekl) hátíð í Norræna húsinu í sumar. Hátíðin hefst 17.júní með hátíðarhöldum og svo hefst megaprjónaviðburðahelgi með fullt af skemmtilegum fyrirlestrum, smiðjum og gjörningum. Nú þegar hafa Sarah Applebaum og Patricia Waller samþykkt þátttöku og nú síðast bættist í hópinn teymið á bak við www.pickles.no. Þær ætla að vera með smiðju í sínum anda. Haldið ykkur fast og merkið við dagana. Ég veit að ég er að fuðra upp af tilhlökkun því ég veit að þetta verður eitthvað alveg einstakt!

Prjónaperlur-prónabók ársins…

Tuesday, October 27th, 2009

Þetta verður spennandi og vonandi verður þessi bók til þess að æ fleiri láti verða af því að prjóna…

Getið líka fylgst með á http://prjonaperlur.blogspot.com/

Prjón á Menningarnótt

Thursday, August 20th, 2009

Á menningarnótt í fyrra var ég með verkefnið Prjónað til góðs fyrir krabbameinsfélagið. Ég seldi m.a. “ég prjóna” merkin við það tilefni og vikurnar á eftir og náði að safna u.þ.b 200.000 kr. 

Í ár á er ýmislegt prjóntengt á menningarnótt og þá helst í garnverslunum eins og Storkinum og Nálinni. Ég hvet ykkur til að kíkja þangað. Einnig er hægt að taka prjónana með út á lífið og taka nokkrar lykkjur hér og þar. Prjónið er svo sannarlega menning til að flagga!

 

Góða skemmtun á menningarnótt

Heitt á prjónunum- á Ísafirði

Monday, June 15th, 2009

Nýtt prjónakaffihús hefur opnað og heitir því bráðskemmtilega nafni: Heitt á prjónunum. Það er að finna á Ísafirði en þangað er ég einmitt að fara  í sumar/haust. Geri mér að sjálfsögðu fer á Heitt á prjónunum og fæ mér kaffi og kíki á garnið. Til hamingju með þetta Ísfirðingar. 

Skundum út!

Thursday, May 28th, 2009

Eins og Ragga Eiríks bendir hér í pistlinum að neðan að þá má áætla að prjónarar á Íslandi skipti þúsundum. Prjónarar eru einstaklega gjafmildir, félagslyndir og skemmtilegir. Í hverjum mánuði hittast prjónarar og prjóna saman víðsvegar um bæinn, prjónakaffifundirnir spretta upp og nú þegar er komið sumar er um að gera að verða enn sýnilegri og PRJÓNA ÚTI. Verum sýnileg og deilum þessum frábæra lífstíl með öðrum. … halda áfram að lesa Skundum út!

Gleðilegt sumarprjón

Thursday, April 23rd, 2009

Gleðilegt sumar kæru prjónarar. Þó nú fari að hlýna skulum við prjónarar ekki örvænta því hér á norðurhjara veraldar er prjónles í tísku allt árið um kring og því ekki úr vegi að fitja upp sérlegum sumarflíkum. … halda áfram að lesa Gleðilegt sumarprjón

Prjónahönnun í Norræna húsinu

Monday, March 23rd, 2009

Ég vil vekja athygli á viðburðum og sýningum í Norræna húsinu. Þetta er auðvitað Nordic Fashion Biennale og hef ég séð um skipulagningu þessa viðburðs. Í Norræna húsinu má sjá fatahönnun og skartgripi frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi og er prjón og ull mjög áberandi, aðallega í færeysku og íslensku hönnuninni. Endilega gerið ykkur ferð í Norræna húsið og skoðið skemmtilega sýningu og ég hvet ykkur til að koma þegar einhverjir viðburðir eru en þá má skoða á Nordic Fashion Biennale síðunni. Einn viðburður ætti þó að trekkja að prjónara en þann 4.apríl kl. 14.00 mun Védís Jónsdóttir prjónahönnuður segja frá starfi sínu og hönnun. Ekki missa af því!

KIP-Knit in Public

Thursday, February 5th, 2009

Alþjóðlegi prjónum úti dagurinn nálgast. Hvet ykkur öll til að koma upp viðburði í ykkar bæjarfélagi.

http://www.wwkipday.com

Húfa á viku

Monday, January 5th, 2009

Ekki láta þetta stórskemmtilega verkefni framhjá ykkur fara. Edda á mikið af garni og til þess að koma því á prjónana brá hún á það ráð að setja sér fyrir verkefni. Út árið 2009 ætlar hún að prjóna húfu á viku og mun engin húfa verða eins. Fylgist með á síðunni hennar Eddu-> www.snigla.com/kjallarahufur.

Prjónastolt

Monday, December 15th, 2008


Hjartað sló örar yfir fréttum af prjónamótmælum fyrir utan stjórnarráðið og þykir mér þessi aðgerð til fyrirmyndar og vona að þær verði fleiri og býð hér með fram krafta mína í að liðsinna við skipulagningu og þátttöku í slíkum aðgerðum. Prjónarar er harðir í horn að taka, þó seinþreytt til vandræða við séum, og láta greinilega ekki gadd og næðing mæða á sér heldur sitja vaktina. Prjónarar taka vaktina þegar aðrir spunamenn eru einhversstaðar að hossa sér eða klóra sér í höfðinu. Ég segi ei meir.

Nú verður síðasta prjónaglöggið á miðvikudaginn, þá ætla ég að leggja jólagjafaprjón til hliðar en mun hinsvegar gramsa í prjónabinginum (a.k.a. my knitstash eins og enskir prjónarar kalla sitt samansafn af garni) og finna eitthvað harðgert garn sem þolir hvaða veður sem er, hrindir frá sér slabbi og hreti, og ég ætla að prjóna úr þessu garni prjónahólk mikinn og veglegan og að fordæmi Prjónalausna ætla ég að sauma hann utan á næsta staur sem verður á vegi mínum. Þessi hólkur mun ekki bara standa fyrir andúð mína á ástandinu og öllu því hafurtaski heldur mun minn prjónahólkur fyrst og fremst vera hvatning til almennings að láta hendur standa fram úr ermum og “fitja upp á” hverju því sem þið teljið að muni gera samfélagið að betri stað.

Sjáumst á kaffi Hljóma(prjóna)lind á miðvikudaginn.

Prjónamótmæli-leikræn mótmæli

Friday, December 12th, 2008

 

Tilkynningin hér að neðan birtist í athugasemdakerfinu og einnig hef ég fengið sendan fjölpóst um aðgerðina. Það er mér ljúft og skyld að hvetja alla sem prjóni geta valdið að mæta á þessi leikrænumótmæli.

_____________________________________________

 

“VIÐ SITJUM EKKI AÐGERÐALAUS”
-LEIKRÆN MÓTMÆLI

Mánudaginn 15.desember kl.17:00 ætlum við, konur, menn og börn, að safnast saman fyrir framan Stjórnarráðið í Lækjargötu. … halda áfram að lesa Prjónamótmæli-leikræn mótmæli

Kaffi Hljómalind í kvöld

Wednesday, December 10th, 2008

“Prjónaglögg” í kvöld. Viðrið prjónana og prjónlesið ykkar, sjáumst þar!

Prjónalausnir: aðgerðahópur prjónara

Thursday, December 4th, 2008

\"Rauður prjónahólkur við stjórnarráðið\"

Prjónanet fékk sendar myndir, sjá hér að ofan, og tilkynningu frá hópnum Prjónalausnir sem ég birti hér:

 

Rauður garðaprjónshólkur hefur birst á staur við bílastæði forsætisráðherra fyrir utan Stjórnarráðið.
Prjónalausnir, friðsamlegur og skapandi aðgerðahópur, lýsir gjörningnum á hendur sér.
Prjónalausnir hvetja ríkistjórn Íslands og ráðafólk allt til þess að líta sér nær og nota hugmyndaflugið þegar leitað er lausna við þeim vandamálum sem steðja að þjóðinni. Verið skapandi og óhrædd við nýjar uppskriftir og nýjan efnivið. Maður fitjar aldrei upp til einskis.
 
Með kveðju,
Prjónalausnir

 

Við leit á netinu fann ég svo þessa frétt um málið.