Prjónatilraunir-Slip Stitch Mosaic
Sunday, January 3rd, 2010Gleðilegt ár kæru prjónarar.
Árið sem var að líða var magnað fyrir okkur prjónelskandi manneskjur. Ég reikna með að met hafi verið sett í útgáfu á íslenskum prjónabókum. Það er bara frábært. Árið sem nú er að ganga í garð mun þó toppa síðasta ár, þetta verður bara betra og betra. Í sumar verður haldin heljarinnar prjónahátíð með margvíslegum viðburðum. Ekki er komið opinbert nafn á herlegheitin en í huganum kalla ég þetta prjónapartý-sem þetta verður.
Vonandi var margt garntengt í pökkunum ykkar í ár. Ég var svo heppin að fá þrjár frábærar bækur. Ég fékk Kúr & Lúr frá móður minni (hún er með uppskrift í bókinni) og svo fékk ég tvær munsturbiblíur úr Storkinum (elska litaúrvalið þeirra í garni, dásamlegt að koma þangað). Ég ætla að birta tilraunir mínar upp úr bókunum hér á síðunni og hvet ykkur til að prjóna ykkur út í hið villta og hleypa nýjungum í prjóni inn í ykkar framleiðslu. Fyrsta prufan heitir Slip Stitch Mosaic og elska ég útkomuna. Þetta er úr baby ull (fæst m.a. í Storkinum). Svona munstur er heppilegt í grifflur, húfur, HÓLKA, legghlífar og þessa prufu ætla ég að nota í hulstur um gemmsann minn. Einu vankantarnir á þessari prufu sem ég gerði eru að hún teygist ekki vel og er frekar stíf. Ég þvoði hana og pressaði og þá sléttist aðeins úr henni en hún leit afkárlega út áður en ég gerði það.


