Tehettur, bóleróar og sumarprjón.
Tuesday, April 27th, 2010Á prjónunum er steingrár Dömujakki. Uppskriftina fékk ég í áskriftinni að saumaklúbbnum sem er stórskemmtileg viðbót við prjónaflóruna. Dömujakkanum miðar vel áfram og hef ég mikla trú á uppskriftinni og hlakka til að ganga í henni. Einu mínusinn er nafnið. Dömjakki er bara ekki alveg að kveikja í mér.
Eins og oft áður að þá er ég farin að gæla við næsta verkefni. Mig langar að prjóna eitthvað sumarlegt og smátt, eitthvað sem garnafgangar nýtast vel í. Ég er ekki alveg komin með uppskriftirnar á hreint en hér er innblásturinn fyrir næsta verkefni:

Dásamleg tehetta, ég er einmitt að komast í testuð. Slip Slip Knit deilir uppskriftinni.

Allar mömmur eiga skilið svona fallegt hjarta! Þetta er fengið hjá: Fun and fancy stitches
Geggjaður heklaður bóleró

Og frá Pickles er þessi hér að ofan. ÆÐI. Þær eru snillingar, allt svo einfalt og skemmtilegt!
Prjona.net vaknar til lífsins á ný
Thursday, April 22nd, 2010Jæja, langt um liðið síða síðasta færsla var skrifuð hér inn. Frá því vefurinn opnaði hef ég dælt inn hlekkjum á ókeypis uppskriftir, fjallað um fyrirbæri í prjónvefheimum s.s. prjónagraff og komið með innblástursblogg. Nú er ég að huga að ritstjórnarsviflu og twisti.
Þannig að hingað eiga eftir að hlaðast upp færslur sem aldrei fyrr um allt milli himins og jarðar, tengt prjóni.
Hápunktur prjónaársins fyrir íslenska prjónara hlýtur að vera án efa Lykkjur 2010 þar sem prjónalist, prjónasmiðjur, prjónabækur og prjónainnblástur mun gusta um stórhöfuðborgarsvæðið. Allir áhugasamir, sem vilja vera með viðburð geta sent mér línu. Aðaláherslan er á viðburðahelgina 17.júní - 20.júní. Það verður urmull af fyrirlestrum um prjón, glansandi garni og glænýjum prjónabókum en ég hef það fyrir víst að margar bækur munu líta dagsins ljós akkúrat í kringum hátíðina.
Vanastar erum við hugsanlega prjóni sem praktísku tóli til að skapa flíkur úr öllum litum regnbogans en á sýningunni Loops mun prjónið birtast okkur í formi ólögulegra forma sem lúta öðrum lögmálum og eru ekki endilega ætluð til hversdagsbrúks.
Hlakka til að sjá ykkur í Norræna húsinu með prjónana á lofti og sköpunargleðina í farteskinu. Fylgist með hér á www.prjona.net og á Faceboook síðu Prjona.net
Í sumar verða það Boleróar í öllum stærðum og gerðum! Þessi er frá www.pickles.no en þær koma á Loops 2010.

Jibbý!!!!
Leggings á börn-brrr það er kalt úti!
Thursday, November 5th, 2009
Vá hvað það er kalt úti! Nú er tími komin til að draga upp gömlu prjónavéla gammósíurnar frá ömmu en ef þið eigið ekki slíkar brækur tiltækar á ykkur eða börnin getið þið prjónað þær sjálf.
Baby leggings
Keep baby warm leggings
Legghlífar frá Never not knitting
kósýbuxur
Norskar gammósíur
Alpakka sjal
Saturday, May 2nd, 2009Í morgun skellti ég mér í Nálina á prjónakaffi. Þar var fríður hópur prjónara sem fékk verðskuldaða athygli túrista. Ég hugsa að það líði ekki að löngu fyrr en íslendingar verði þekktir ekki bara sem víkingar heldur einnig sem félagslyndir prjónarar.
Í Nálinni var margt af gómsætu garni og gat ég varla tekið hendurnar af mjúku alpakka garni. Ég var hins vegar ekki viss um hvað nákvæmlega ég gæti prjónað úr því svo ég fór á Ravelry, prjónamentor minn, og fann þar uppskrift um leið. Ég leitaði í patterns af shawl og svo innan þeirrar leitar af alpakka og upp komu sjöl úr alpakka.
Ég ætla að prjóna þetta hér: Swallowtail shawl
Prjónanet svarar fyrirspurnum
Saturday, May 2nd, 2009Síðan Prjónanet stofnaði aðdáendasíðu á Fésbók hafa fjölmargar fyrirspurnir borist á vegg aðdáendasíðunnar. Þetta þykir Prjónaneti skemmtilegt og mun leggja sig fram við að svara sem flestum fyrirspurnum skýrt og skilmerkilega. Annars eru aðrir sem hafa svörin hvattir til að skrifa þá á vegginn.
Fiskur
Sunday, April 19th, 2009
Sjáið þennan sæta fisk, er hann ekki mikið krútt?! Uppskriftin er hér að neðan, á ensku, tekin af síðu Lion Brand en þar er urmull uppskrifta, þið þurfið bara að búa ykkur til prófíl. … halda áfram að lesa Fiskur
Prjónaðar tækifærisgjafir
Sunday, April 19th, 2009Á óskalistanum mínum er bókin: Last Minuet Knitted Gifts. Í henni eru frábærar hugmyndir að fljótlegum prjónaverkefnum s.s. treflum, töflum og litlum töskum.
Af því ég á ekki bókina (enn) ákvað ég að leita að skemmtilegum uppskriftum á netinu sem henta vel til tækifærisgjafa.
Hér eru þær:
Vínflöskuflus
Midori Trefill frá Spillyjane
Tekönnuhlíf í fílastíl
Blöðrutaska-þæfð
Uppskriftir á vordögum
Saturday, April 18th, 2009Er búin að sveima um netið og rakst á nokkrar dásamlegar vorlegar uppskriftir.
Hér eru Þær:
Grænt vesti
Slá
wabi sabi dásemdar sjal/trefill
Njótið!
Dömupeysa í febrúar
Monday, February 23rd, 2009Kæru lesendur Prjónanets.
Afsakið lægðina á síðunni en vegna anna hefur ekki verið mikið líf hér sem er alveg ótækt. Ég er rosalega ánægð að fá fyrirspurnir um hitt og þetta og reyni að svara þeim með bestu getu. Ég er líka rosalega glöð þegar einhver gjafmildur deilir með sér sniðugu efni um prjón. Um daginn fékk ég sannkallaðan pakka í tölvupósti. Ragga Eiríks hjá prjóniprjón sendi mér uppskriftina að February Lady Sweater á íslensku sem hún sjálf sá um að þýða! Takk, fyrir Ragga!
Nú geta allir prjónarar prjónað Dömupeysu í febrúar á sig og sína.
Prjónuð vesti
Thursday, January 29th, 2009Ég er með ÆÐI fyrir svona vestum. Helst úr garðaprjóni. Fullkomin sumarflík, hlýtt vesti yfir sumarlegan bol…draumur. Ég er að prjóna February Lady Sweater mínus gatamunstrið, sem sagt bara garðaprjón og nú þegar ég er komin ágætlega áleiðis og virði fyrir mér flíkina að þá er hún eins og flott bolero. Ég ætla samt að hafa ermar, hálfermar, og peysan verður niður að mitti.
Hér eru nokkrar uppskriftir að vestum: Gjörið svo vel.
Röndótt afganga dásemdar vesti
V-máls rendur
Eitt í “kærasta” stærð
Eitt mjög sparilegt
Allt nýtt
Sunday, January 18th, 2009
Þessa uppskrift fann ég á Ravelry (auðvitað) og er hún fullkomin til þess að nýta hvern einasta garnsnefil sem þið eigið. Einnig er gaman að gera tilraunir með garn og liti í svona uppskrift. Munstrið virkar einfalt og áferðin er mjög falleg.
Njótið
Ljúfar lykkjur
Thursday, January 8th, 2009
Flestir prjónarar eru sammála því að ekkert klæði börn jafn vel og heimaprjónaðar flíkur. Ekki aðeins hlýja þær heldur hreinlega umfaðma þær litlu krílin með allri þeirri ástúð sem prjónarinn setti í verkið þar sem hver lykkja er eins og ljúf hugsun. Væmið en satt. Þar sem hnokkinn minn er nýbyrjaður í dagvist fannst mér það mikilvægt að hann fengi eitthvað hlýtt heimaprjónað sem bæði er hægt að kúra sig í og dröslast með.
Værðarvoð varð fyrir valinu en í minni útgáfu er það er gysin dula ef svo er hægt að komast að orði. Ég vel einband í værðarvoðið og nota prjóna nr. 6. Úr verður ferköntuð dula sem hnokkinn má eiga bara fyrir sig og hafa hjá sér þegar hann sefur og einnig dröslast með um íbúðina. Amma prjónaði svona í gamla daga á börnin sín og breiddi yfir andlitin á þeim, þannig sváfu þau alltaf vel.
En þar fyrir utan hef ég huga á að prjóna hlýja húfu eins og þessa:
Toddler helmet
Annars er ég lögð af stað í Baby Surprise Jacket #2 og svo langar mig mikið að prjóna Tomten:

Kaðlaprjón
Friday, January 2nd, 2009
The Greenery Hat e. Lilith Parker
Ég er að prjóna The Greenery Hat eftir Lilith Parker þar sem kaðlar koma mikið við sögu. Þetta virðist vera garnfrekt verkefni og ég reikna með nærri 3 dokkum af Cashmerino (65m/50gr) í húfuna. Kaðlar eru æði og góð tilbreyting frá sléttu prjóni á hringprjónum. Í kaðla þarf ýmis tól og tæki. T.d. kaðlaprjón. Sjá mynd. Ólíkt því sem ég hélt að þá eru kaðlar ekki erfiðir en prjónalingóið sem þeim fylgjir er mjög stærðfræðilegt t.d. tf4, C6b osfrv. Hér (skrollið niður) lærir þú að prjóna kaðla.
Nú skal prjóna, nú skal prjóna…
Tuesday, December 16th, 2008…húfutetur og vettlinga. Létt-lopinn er að koma sterkur inn í jólagjafaprjóninu. Ég þvæ síðan prjónlesið uppúr hárnæringu svo það verði sérstaklega mjúkt. Nú hefur myndast talsverður rígur milli bæði ókláraðra verkefna og svo garns sem telur sig góðan kandidat í næsta verkefni. Ég hef íhugað að fitja upp á ca. 3 verkefnum í dag og láta þau fara í kapp-ef ég byggi ein myndi ég hugsanlega raða þeim upp víðsvegar um íbúðina á mismunandi starfsstöðvar og sjá hver væri fyrstur í mark. We call them pirates úr kambgarni er sigurstrangleg, Shell-Socks úr Knitting Vintage Socks eru einnig volgir, en hugsanlegt er að þau verkefni sem enn er ekki fitjað upp á beri vinninginn. Ég hef hug á að prjóna vettlinga eða húfu úr Debbie Bliss merino garni og veit ekki alveg hvar ég á að byrja. En svo er Dale-babyull að ibba sig og gerir sig líklega til að verða að grifflum/vettlingum. Hér eru uppskriftirnar.
Sænskir vettlingar
Sænskir fiskavettlingar
Svo er að vona að allir keppendur komist í mark svo fólk fái nú ekki ókláruð verkefni í pakkana sína.





