Innblástur vikunnar: danskur prjónahönnuður

Sunday, August 9th, 2009


Á flakki um Ravelry rakst á Sanne b og uppskriftirnar hennar sem hún selur á netinu. Hún er með æðislegar uppskriftir að gollum, kjólum og vestum á börn og fullorðna  (bara ein flík á fullorðna). Hún notar gataprjón talsvert og mér sýnist allt vera prjónað með fíngerðu garni og prjónum nr. 3,5. Það er gaman að skoða litasamsetningar hjá henni og er hún því innblástur vikunnar. Hér er bloggið hennar Sanne b

“Knitfreaks and newbies”

Saturday, July 25th, 2009

Muchis.se er frábær sænsk síða fyrir prjónabrálæðinga og nýgræðinga. Pia í vinnunni benti mér á þessa og er ég yfir mig hrifin. Þessi síða er ofursvöl, flott hönnuð og prjónið girnilegt. Myndirnar eru fylla mig miklum innblástri og ég mæli með blogginu þeirra líka.

Ný prjónabók á íslensku

Monday, December 1st, 2008

Það er alltaf gaman að komast í góðar prjónabækur og enn betra þegar þær eru á íslensku. Nú er að koma út í desember bókin Prjóniprjón. Fræðist nánar um það hér þar sem bloggað er um bókina.

Prjónauppskriftir Hörpu J

Monday, December 1st, 2008

Það er dásamlegt þegar fólk gefur frá sér sköpunarverk sín og deila leyndarmálinu með öðrum, enda hlýtur það að vera hvetjandi að sjá aðra prjóna eitthvað sem maður hefur hannað. Ég vil því benda á bloggið nopatterns en það er Harpa J sem heldur því úti og er svo gjafmild að deila þar nokkrum uppskriftum. Ég er sérstaklega hrifin af The Pink Dream.

Frí uppskrift að trefli frá Héléne Magnússon

Friday, October 24th, 2008

Héléne Magnússon er að gefa uppskrift að trefli með rósaleppamunstri á síðunni sinni. Þið sendið henni nafn og netfang og fáið uppskriftina senda. Tékkið á þessu.
http://www.mmedia.is/helene/site%20islandais/SHOP2ISL.htm

Prjóna-tíðar-andi

Saturday, September 27th, 2008

Prjónið hefur átt sína góðu og slæmu daga. Á tímabili var bara prjónað úr akrýl og munstrin hafa verið misgeranleg. Hér eru nokkrar myndir af prjóni í gegnum tíðina í anda Stitchy McYarnpants.

… halda áfram að lesa Prjóna-tíðar-andi

Innblástur og fróðleikur

Tuesday, July 22nd, 2008

Ég er með æði fyrir tveim stöðum hér á netinu. Það eru síðurnar Craftzine og YarnCraft. Þar er hægt að lesa blogg um hannyrðir og gerðuþaðsjálfur dót, hlusta á podcast því tengdu, fá uppskriftir og senda inn fyrirspurnir. Báðar síðurnar eru mjög svalar og leggja áherslu á óhefðbundið prjón sem og hefðbundið. Síðast sá ég fullt af dóti sem hægt er að búa til úr plastpokum! Tékkið á. 

Nýtt prjónablogg

Thursday, July 3rd, 2008

Héléne Magnusson, höfundur hinnar frábæru prjónabókar: Rósaleppaprjón í nýju ljósi, er með skemmtilegt blogg um það sem hún er að prjóna og hekla. Mæli með því. helenemagnusson.blogspot.com.

The Purl Bee - fríar uppskriftir

Monday, June 23rd, 2008


The Purl Bee er dagbók búðarinnar Purl sem höndlar með allt tengt prjónaskap, útsaum og saumaskap. Á The Purl Bee er hægt að fá fríar hekl-, prjón- og bútasaumsuppskriftir en einnig er hægt að spyrja vefinn spurninga tengdum hannyrðum. Þetta er falleg síða með flottum myndum og uppskriftirnar eru dásamlegar.

Mason Dixon prjón

Friday, June 20th, 2008

Mason Dixon knitting eru Kay Gardiner og Ann Shayne. Þær kynntust í gegnum internetið á spjallsvæði tengdu Rowan garninu. Önnur býr í New York hin í Suðurríkjunum. Til þess að gera langa sögu stutta að þá þróuðust netsamskipti þeirra út í samvinnuverkefni og saman gáfu þær út bókina Mason Dixon Knitting árið 2006. Bókin er æðisleg og ekki aðeins er hún uppfull af hagnýtum uppskriftum heldur er hún stórskemmtileg aflestrar. Þær segja frá Prjónað til góðs verkefninu afghans for Afghans en … halda áfram að lesa Mason Dixon prjón

Prjónablogg-brot af því besta

Wednesday, June 4th, 2008

Eins og margir hafa tekið eftir að þá hefur prjónið gengið í endurnýjun lífdaga og er það að miklu leyti Netinu að þakka. Nú geta prjónarar auðveldlega deilt ástríðu sinni með öðrum á prjónabloggum og síðum sérsniðnum fyrir prjónaskap. Hægt er að stofna ókeypis bloggsíður … halda áfram að lesa Prjónablogg-brot af því besta