Fuglafit: Farfuglaprjón við Vesturgötu 17 (myndir)

Wednesday, March 10th, 2010

Í kvöld var fyrsti í Fuglafit. Fuglafit er prjóna”whatever” á Farfuglaheimilinu við Vesturgötu 17. Farfuglaheimilið er reyndar ekki bara gististaður heldur svalt kaffihús líka. Þar eru útlendingar við flest borðin og allar heimsins tungur klingja í loftinu.

Nú hefur verið komið fyrir þar feiknastórri prjónakörfu sem mun eiga aðsetur þar um næstu misseri. Því má með sanni segja að þetta sé eitt af fáum, ef ekki eina, raunverulega prjónakaffihúsið í Reykjavík. Þarna er hægt að setjast niður með kaffið og taka nokkrar umferðir til að vinda ofan af sér eða bara njóta.

Karfan er þarna af ásetningi. Garnið í henni er ætlað í prjónagjörninga mikla í Reykjavíkurborg og nágreni. Þetta er hið kæruleysilegasta prjón sem þið komist í, prjón án skuldbindinga. Ekki hafa áhyggjur af að eyða formúgu í peysu sem rykfellur útí horni og æpir á ykkur um frágang. Fitjið upp á litlum renningum og þið þurfið ekki einu sinni að klára.

Þetta er sannkallað samfélagsprjón, margar lykkjur verða að MEGA graffi!

Við verðum þarna alla miðvikudaga fram eftir vori, látið sjá ykkur.Komið og fáið gefins garn frá ÍSTEX í gjörninginn (þið getið skilað renningum til mín í Norræna húsið eða á Vesturgötu á miðvikudögum).

Í lok kvöldsins var svo graffað með prjóni. Sjáið myndirnar hér.

allt heklað-innblástur á föstudegi

Friday, February 19th, 2010

Námskeið í prjóni og hekli

Friday, January 22nd, 2010

Máttarstólpar prjónaheimsins eru þeir aðilar sem þreytast ekki á því að bera út fagnaðarerindið og kenna okkur hinum listina. Hægt er að sækja sér fróðleik til margra aðila þegar kemur að prjóni. Textílsetrið býður nú upp á skemmtilega námskeiðshelgi-heil helgi í garnheimum, tala um garn, prjón og hekl daginn út og daginn inn er bara svo dásamleg tilhugsun. Einnig eru frábær námskeið reglulega hjá garnverslunum s.s. Storkinum og Nálinni. Heimilisiðnaðarfélagið er líka ómissandi með bæði prjónakaffin í Kópavogi og svo öll námskeiðin. Svo er um að gera að fylgjast með Knitting Iceland á Facebook. Þar er margt að krauma.

(Prjóna)tíska?

Wednesday, September 2nd, 2009

Ég hef mjög gaman af götutísku og rakst á skemmtilega síðu þar sem hægt er að skoða myndir sem fólk tekur af sjálfu sér og setur inn á síðuna. Aðrir geta síðan gefið einkunn.

Það væri nú gaman að sjá svona síðu um prjón. Ég veit að Ravelry er svipað uppbyggt en þetta er samt ekki alveg það sama.

Kíkið endilega á þessa síðu ef þið hafið áhuga á götutísku.

Hér eru svo leitarniðurstöðurnar fyrir “knit”

Prjón á Menningarnótt

Thursday, August 20th, 2009

Á menningarnótt í fyrra var ég með verkefnið Prjónað til góðs fyrir krabbameinsfélagið. Ég seldi m.a. “ég prjóna” merkin við það tilefni og vikurnar á eftir og náði að safna u.þ.b 200.000 kr. 

Í ár á er ýmislegt prjóntengt á menningarnótt og þá helst í garnverslunum eins og Storkinum og Nálinni. Ég hvet ykkur til að kíkja þangað. Einnig er hægt að taka prjónana með út á lífið og taka nokkrar lykkjur hér og þar. Prjónið er svo sannarlega menning til að flagga!

 

Góða skemmtun á menningarnótt

Heitt á prjónunum- á Ísafirði

Monday, June 15th, 2009

Nýtt prjónakaffihús hefur opnað og heitir því bráðskemmtilega nafni: Heitt á prjónunum. Það er að finna á Ísafirði en þangað er ég einmitt að fara  í sumar/haust. Geri mér að sjálfsögðu fer á Heitt á prjónunum og fæ mér kaffi og kíki á garnið. Til hamingju með þetta Ísfirðingar. 

Nammi og annað góðgæti úr prjónaheiminum

Saturday, June 13th, 2009

 

Ég er með í höndunum sjúklega girnilegt garn beint frá prjónaranum Röggu Eiríks en hún er nú komin með nýja garnlínu sem hún nefnir Nammi og er sú nafngift vel viðeigandi þar sem litirnir eru hver öðrum girnilegri. Mitt garn er bleikt eins og bleikur á að vera, skærskær skærbleikur og ætla ég að prjóna hyrnuuppskriftina sem fylgir með í “Nammipokanum”. … halda áfram að lesa Nammi og annað góðgæti úr prjónaheiminum

Prjónahólkar/knit tags

Friday, April 24th, 2009

Eru ókláruðu verkefnin að ergja þig? Langar þig að prjóna bara til prjóna? Áttu til fullt af garni í mörgum litum sem þú veist ekki hvað þú getur gert við? … halda áfram að lesa Prjónahólkar/knit tags

Hugur og hönd

Sunday, April 19th, 2009

Nú er komið út nýtt eintak af blaðinu, Hugur og hönd, sem heimilisfélagið gefur út. Ég mæli með því og sérstaklega grein Vigdísar Þormóðsdóttur sem m.a. fjallar um prjónamenningu á netinu og margt fleira skemmtilegt.

Námskeið og útsölur

Wednesday, January 28th, 2009

Ég fékk póst frá Storkinum sem segir m.a. frá útsölu er verður um helgina. Einnig fékk ég póst frá Nálinni sem er með fullt af námskeiðum í gangi og hvet ég ykkur til þess að kíkja á síður búðanna og/eða skrá ykkur á póstlista þeirra til að geta fylgst með því sem er að gerast þar. 

Prjónarar eru ávallt glaðir að heyra af garni á útsölu og nú ættu prjónabúðirnar að gera vel við okkur með góðum útsölum enda garn orðið dáldið dýrt. Endilega setjið í athugasemdirnar ef þið vitið um góða útsölu eða garn á góðu verði. 

Alltaf er gaman að frétta af sniðugum prjónnámskeiðum og hef ég sjálf farið á eitt í Storkinum sem var frábært. Einnig finnst mér sniðugt að bjóða upp á stutt námskeið og allra best er ef þau eru á sanngjörnu verði, hvað sem það svo þýðir. 

Innblástur frá tískuheiminum

Thursday, January 15th, 2009

Sonia Rykiel þykir mér alveg æði og er hún mikill innblástur þegar maður er hrifinn af röndóttu. 

… halda áfram að lesa Innblástur frá tískuheiminum

Prjónalausnir: aðgerðahópur prjónara

Thursday, December 4th, 2008

\"Rauður prjónahólkur við stjórnarráðið\"

Prjónanet fékk sendar myndir, sjá hér að ofan, og tilkynningu frá hópnum Prjónalausnir sem ég birti hér:

 

Rauður garðaprjónshólkur hefur birst á staur við bílastæði forsætisráðherra fyrir utan Stjórnarráðið.
Prjónalausnir, friðsamlegur og skapandi aðgerðahópur, lýsir gjörningnum á hendur sér.
Prjónalausnir hvetja ríkistjórn Íslands og ráðafólk allt til þess að líta sér nær og nota hugmyndaflugið þegar leitað er lausna við þeim vandamálum sem steðja að þjóðinni. Verið skapandi og óhrædd við nýjar uppskriftir og nýjan efnivið. Maður fitjar aldrei upp til einskis.
 
Með kveðju,
Prjónalausnir

 

Við leit á netinu fann ég svo þessa frétt um málið.

Jólagjöf prjónarans

Wednesday, December 3rd, 2008

Jólagjöf prjónarans er án efa kind til fósturs. En á vefnum kindur.is er hægt að fóstra kind. Gefa henni nafn, heimsækja hana nokkrum sinnum á ári og fá sent póstkort frá henni. Sömuleiðis fær fóstrinn ullina senda til sín af kindinni og þá er ekkert eftir en að taka upp rokkinn og byrja að spinna. 

Prjónarar mótmæla

Monday, December 1st, 2008

Myndin hér að ofan sýnir meðlimi The Granny Peace Brigade mótmæla Írakstríðinu, á fimm ára afmæli þess. Þær létu ekki regn eða kulda stöðva sig og voru prjónandi og með skilti á sér sem á stóð t.d.  ”No blood for oil”. Ennfremur reyndu þær að skrá sig í herinn og fá að skipta við unga fólkið þar: 

In October 2005 they staged a sit-in at the entrance of the recruiting center, after trying, unsuccessfully, to enlist and take the places of young people who still had their lives ahead of them. Eighteen were arrested and charged with disorderly conduct, but in April 2006 a judge declared them not guilty, after determining, with the help of videos of the protes, that they had not blocked people from entering the recruiting station. (leturbreyting er mín)

 

Þetta er bara töff og ég held að landsmenn geri sér ekki alveg grein fyrir þeim krafti sem býr í íslenskum prjónurum sem t.a.m. hittast hundruðum saman einu sinni í mánuði á Amokka, Kópavogi. Þá held ég að eftir því yrði tekið ef þessir sömu prjónarar myndu fylla opinbera byggingu í sitjandi prjónamótmælum. 

 

Lifi prjónið, það rokkar. 

 

 

Athyglisvert í heimi prjónsins

Thursday, November 27th, 2008

Prjónaverslunin Nálin hefur betrumbætt heimasíðu sína og hvet ég alla áhugasama um prjón að skoða hana. Þar getur að lýta uppskriftir sem fást ókeypis ef garnið er keypt í Nálinni

Ég fékk einnig sendan tölvupóst um nýja netverslun sem Hélene Magnússon hefur stofnað. Hún notar netverslunarkerfið Etsy sem er mjög sniðugt og notendavænt.