Prjona.net vaknar til lífsins á ný
Thursday, April 22nd, 2010Jæja, langt um liðið síða síðasta færsla var skrifuð hér inn. Frá því vefurinn opnaði hef ég dælt inn hlekkjum á ókeypis uppskriftir, fjallað um fyrirbæri í prjónvefheimum s.s. prjónagraff og komið með innblástursblogg. Nú er ég að huga að ritstjórnarsviflu og twisti.
Þannig að hingað eiga eftir að hlaðast upp færslur sem aldrei fyrr um allt milli himins og jarðar, tengt prjóni.
Hápunktur prjónaársins fyrir íslenska prjónara hlýtur að vera án efa Lykkjur 2010 þar sem prjónalist, prjónasmiðjur, prjónabækur og prjónainnblástur mun gusta um stórhöfuðborgarsvæðið. Allir áhugasamir, sem vilja vera með viðburð geta sent mér línu. Aðaláherslan er á viðburðahelgina 17.júní - 20.júní. Það verður urmull af fyrirlestrum um prjón, glansandi garni og glænýjum prjónabókum en ég hef það fyrir víst að margar bækur munu líta dagsins ljós akkúrat í kringum hátíðina.
Vanastar erum við hugsanlega prjóni sem praktísku tóli til að skapa flíkur úr öllum litum regnbogans en á sýningunni Loops mun prjónið birtast okkur í formi ólögulegra forma sem lúta öðrum lögmálum og eru ekki endilega ætluð til hversdagsbrúks.
Hlakka til að sjá ykkur í Norræna húsinu með prjónana á lofti og sköpunargleðina í farteskinu. Fylgist með hér á www.prjona.net og á Faceboook síðu Prjona.net
Í sumar verða það Boleróar í öllum stærðum og gerðum! Þessi er frá www.pickles.no en þær koma á Loops 2010.

Jibbý!!!!





