Prjóna-raskanir
Thursday, February 5th, 2009Vinkona mín, sálfræðingurinn, býður upp á þjónustu fyrir foreldra. Hún er með síðu þar sem má m.a. lesa um einkenni raskana og fannst mér mörg þeirra eiga sérstaklega vel við mig og mitt prjón. Ætli það sé hægt að tala um prjón-raskanir?
Stundum fyllist ég kvíða yfir öllum þeim verkefnum sem ég hef hug á að prjóna. Einnig er líkt og ég sé haldin prjón-athyglisbresti sem kemur einna best fram í að garnið er keypt en fylgnin er mismikil. Sumt garn fer beint í binginn en sem betur fer endar þetta að lokum á prjónunum að lokum.
Nú er ég í öfgaprjóni. Þetta öfgaprjón lýsir sér sem svo að ég er á lopapeysu nr. 2, prjónandi á prjóna nr. 4,5 enn aftur á móti er ég að fitja upp á vettlingum á prjóna nr. 2. Dáldið langt þarna á milli og svíf ég á milli verkefna, einbeitingin er ekki meiri en svo að ég þarf að skipta reglulega á milli.
Ég verð að bæta við að lokum að ég er með algjört blæti fyrir léttlopa. Litirnir eru svo dásamlegir, hey fellur af garninu og litirnir eru eins safaríkir. Ég er að prjóna úr mosabrúngrænum litum og mér finnst eins og ég sé umvafin svölum mosa.
Já, allt er til í prjóni og spurning hvort síðasta setningin sé aðeins í djarfari kantinum?




