Prjóniprjón-ný prjónabók á íslensku!

Friday, December 5th, 2008

Uppskriftin að þessari húfu er í bókinni Prjóniprjón eftir Ragnheiði Eiríksdóttur og Halldóru Skarphéðinsdóttur. 

Áðan var prjónanet í útgáfuhúllumhæi bókarinnar Prjóniprjón og það verður að segjast að bókin er ansi gómsæt og girnileg. Um er að ræða prjónabók með einföldum uppskriftum og greinagóðum leiðbeiningum. Mér líkar sérstaklega vel við hvatningarandann sem svífur yfir vötnunum en hvatt er til þess að vera ekki of bundin uppskriftunum heldur eigum við að fara okkar eigin leiðir í prjóninu sem og lífinu. 

 

Prjóniprjón er á jólagjafaóskalistanum mínum. 

Ný prjónabók á íslensku

Monday, December 1st, 2008

Það er alltaf gaman að komast í góðar prjónabækur og enn betra þegar þær eru á íslensku. Nú er að koma út í desember bókin Prjóniprjón. Fræðist nánar um það hér þar sem bloggað er um bókina.

Knitticisms

Thursday, November 6th, 2008

Bókin Knitticisms…And other purls of Wisdom er bara snilld. Ég er búin að vera að fletta í henni og auk þess að vera yfirfull af sniðugum myndum að þá eru ansi mörg góð ráð fyrir prjónafólk t.d. er tíundaðar ástæður til þess að byrja á nýju verkefni án þess að klára það gamla. Það þykir góð ástæða að byrja á nýju verkefni ef barnið sem átti að fá ungbarnapeysuna er að fara að fermast í vor. Góðar ástæður til að kaupa garn eru þær að garn er einangrandi fyrir húsið, ein dokka í viðbót skaðar svo sem engan og þú ert að styðja ullariðnaðinn með kaupunum. Að lokum eru talin upp teikn sem gætu bent til þess að þú sért forfallinn prjónari t.d. ef þú eyðir meiri pening í garn heldur en í mat og ef þú ert farin að horfa girndaraugum á feld hundsins þíns að þá ertu í vondum málum. 

 

uppáhalds/Zimmermann

Tuesday, June 24th, 2008

Myndin að ofan sýnir Tomten Jacket en uppskriftina að honum er að finna í Knitting Without Tears


Einn af þeim prjónahönnuðum sem er í hvað mestu uppáhaldi hjá mér er Elizabeth Zimmermann. Hún kenndi ameríkönum að prjóna á hringprjón og að prjóna eins og við … halda áfram að lesa uppáhalds/Zimmermann

Son of Stitch’n Bitch

Sunday, June 22nd, 2008

    

Ég endurnýjaði prjónaáhugann eftir að ég komst í bók Debbie Stoller, Stitch’n Bitch: The Knitters Handbook. Þar kennir hún manni allt það sem þarf að kunna til að geta komist í gegnum auðveldar og flóknar uppskriftir.

… halda áfram að lesa Son of Stitch’n Bitch

Mason Dixon prjón

Friday, June 20th, 2008

Mason Dixon knitting eru Kay Gardiner og Ann Shayne. Þær kynntust í gegnum internetið á spjallsvæði tengdu Rowan garninu. Önnur býr í New York hin í Suðurríkjunum. Til þess að gera langa sögu stutta að þá þróuðust netsamskipti þeirra út í samvinnuverkefni og saman gáfu þær út bókina Mason Dixon Knitting árið 2006. Bókin er æðisleg og ekki aðeins er hún uppfull af hagnýtum uppskriftum heldur er hún stórskemmtileg aflestrar. Þær segja frá Prjónað til góðs verkefninu afghans for Afghans en … halda áfram að lesa Mason Dixon prjón