Prjóna-tíðar-andi

Saturday, September 27th, 2008

Prjónið hefur átt sína góðu og slæmu daga. Á tímabili var bara prjónað úr akrýl og munstrin hafa verið misgeranleg. Hér eru nokkrar myndir af prjóni í gegnum tíðina í anda Stitchy McYarnpants.

… halda áfram að lesa Prjóna-tíðar-andi

Helgarverkefni

Friday, September 26th, 2008

Eins og tíðin er núna að þá er einstaklega notalegt að sitja inni í hlýjunni, og horfa á regnið dynja á gluggunum, á meðan maður prjónar eitthvað til að verjast komandi vetri. Hér eru nokkur “fljótleg” helgarverkefni. Erfitt er kannski að meta hvaða verkefni er fljótlegt og hvað ekki því þetta fer jú allt eftir prjónaranum og garninu (grófleika þess). … halda áfram að lesa Helgarverkefni

Ótrúlegasta fólk prjónar

Wednesday, September 24th, 2008

Eins og sést á myndinni að þá leynist prjónari undir hinu margvíslegasta gervi. Ég hvet ykkur til að koma upp prjónakörfu á vinnustaðnum og sjá hve margir fitja upp á. Þið gætuð farið í samvinnuverkefni eins og að prjóna bútateppi eða til styrktar einhverju. Prjónakarfa gæti verið uppspretta skemmtilegra samræðna og notalegra stunda. Takið nú til í prjónabunkanum og fitjið upp á einhverju með vinnufélögunum.

Góða prjónskemmtun!

Prjónað fyrir svefnherbergið

Wednesday, September 24th, 2008

Þið sem elskið að prjóna úr léttum þræði ættuð að finna eitthvað við hæfi í þessum hlekkjum hér að neðan. Ekki allir eru að fíla léttlopapeysur og ullarsokka heldur vilja frekar prjóna eitthvað villtara. Mér finnst þessar uppskriftir þó ekki aðeins eiga við svefnherbergið heldur einnig sem bolir eða kjólar. Tja, nema kannski strengurinn, ég myndi örugglega ekki vera í honum utan yfir buxur. 
Athugið þetta:
Hlýrabolur
G-strengur
Hush-Hush náttkjóll -ÆÐI
Betty…

Prjónið er eins og jóga, bara miklu áhrifameira.

Monday, September 22nd, 2008

Já, það hefur verið sannað það sem margur prjónarinn hefur haldið fram: prjón er eitt af því mest afslappandi sem hægt er að leggja sér fyrir hendur. Oft hefur prjóni verið líkt við jóga út af afslöppunareiginleikum þess en þó án nokkurra vísindalegra raka. Lucy Broadbent greinir frá þessu í grein sinni Teenagers in stitches  … halda áfram að lesa Prjónið er eins og jóga, bara miklu áhrifameira.

Fréttir af prjónamerkjunum

Saturday, September 20th, 2008

Prjónamerkin hafa farið víðreist. Um daginn voru þau seld á prjónakaffi í Gerðubergi og hef ég ekki enn heyrt af gengi þeirra þar. Ég seldi gommu á prjónakaffinu og ætla að taka rest með á næsta prjónakaffi sem er næst fyrsta fimmtudaginn í október. Síðast mættu svo margir að það var í raun magnað. Ef svona margir-margar réttara sagt- koma næst að þá hugsa ég að ég þurfi að fara fyrr af stað. Reyndar finnst mér að þetta mætti alveg vera 2x í mánuði en svo væri gaman ef þetta yrði tekið upp á öðrum kaffihúsum í miðbæ Reykjavíkur. 

  • Þegar sölu er lokið á prjónamerkjum að þá set ég hér inn afrakstur söfnunarinnar, þ.e. heildarupphæðina. 
  • Ég vil líka minna á að enn er hægt að senda Krabbameinsfélaginu prjónles sem selt verður á sanngjörnu verði á leitarstöðinni í Skógarhlíð.
  • Ef einhverjir hafa borgað fyrir merki en ekki fengið þá vinsamlegast sendið mér línu á ilmur(hjá)prjona.net.

Ég er að prjóna…

Saturday, September 20th, 2008

…auðvitað. 

Nú er farið að kólna og því ekki seinna vænna að fitja upp á vettlingum. Ég á nóg af léttlopa eftir að  hafa prjónað nokkrar lopapeysur og ætla að gera svona sæta vettlinga í ýmsum litum á mig og mína. Einnig er ég með æði fyrir krögum og er búin að sanka að mér nokkrum uppskriftum að slíkum flíkum. Hér eru nokkrar sem mér þykja fallegar: … halda áfram að lesa Ég er að prjóna…

200 konur á prjónakaffi og reikningsnúmer Krabbameinsfélagsins

Friday, September 5th, 2008

Í gær, á prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins, rokseldust merkin enda voru þarna um 200 konur samankomnar. Ég hvet alla sem ekki hafa enn lagt leið sína á prjónakaffið að skella sér í næsta mánuði en þetta er haldið fyrsta hvern fimmtudag í mánuði.

Hér eru reikningsnúmer Krabbameinsfélagsins fyrir ykkur sem voruð ekki með reiðufé á ykkur í gær.

301-26-706 kt. 700169-2789 og setjið prjon í tilvísunina. Kvittun þarf að senda á ilmur(hjá)prjona.net

Ef einhver missti af merki í gær að þá á ég enn eitthvað eftir af þeim og ætla að koma með þau á næsta prjónakaffi og/eða hafa þau á leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Á leitarstöðinni verður einnig hægt að kaupa prjónles til styrktar félaginu og ef þið hafið áhuga á að prjóna fyrir félagið að þá hvet ég ykkur til að fitja upp á t.d. mjúkum og notalegum húfum og senda þangað. 

Prjónakaffi í kvöld

Thursday, September 4th, 2008

Í kvöld ætla ég á prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins á Amokka, Hlíðasmára, í Kópavogi.

Ég tek merkin með mér og mun selja þau á staðnum og vona að þau rjúki út þar sem allur ágóði rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins.