Friday, October 31st, 2008

Ég rakst á þessa uppskrift (heitir gartermitts) á Ravelry og varð að prjóna hana. Ysolda er höfundurinn og hér er síðan hennar.
Það sem þarf að kunna til að geta klárað þessa uppskrift er: … halda áfram að lesa Sniðugar grifflur
Tags: gartermitts, grifflur, Ysolda.com
Posted in Fitjað upp á, Uppskriftir | No Comments »
Wednesday, October 29th, 2008

Í tilefni þess að færeyingar eru nú að rétta okkur hjálparhönd á erfiðum tímum ætla ég að vísa á uppskrift að fallegu færeysku sjali. Prjónið er öflugt í Færeyjum og sagði það mér færeysk kona, sem ég vann með fyrir stuttu, að í öllum frímínútum í grunnskóla hafi stelpurnar setið og prjónað. Uppskriftir ganga manna á millum munnlega og eru ekki alltaf skrifaðar niður. Þetta sagði hún mér og ég sel það ekki dýrara en ég keypti það. Eftir því sem ég best veit er hægt að fá færeyska ull bæði í Hagkaupum og í Nálinni.
Færeyskt sjal.

Á myndinni hér efst er peysan sem Sofie Gråbøl gerði fræga í ,þáttunum Forbrydelsen, eftir hönnuðina Gudrun og Gudrun. Og seinni myndin er af sjalinu.
Tags: Forbrydelsen, Færeyjar, Færeyskt, Færeyskt prjón, GuðrúnogGuðrún, Sjal
Posted in Uppskriftir | 7 Comments »
Wednesday, October 29th, 2008

Já, þetta er svo sannarlega undarlegur titill á færslu en hinkrið við. Oft hefur verið sagt að tækni sé framlenging skilningarvitanna t.d að útvarpið sé framlenging raddarinnar en aldrei áður hef ég séð prjón í þessu samhengi. Rebecca Stern hefur nú hannað í samvinnu við þátttakendur prjónuð flus utan um hina ýmsu hluti s.s. ipod og lyklaborð. Á síðu hennar stendur:
Our interactions with personal electronic devices provoke a broad range of emotions from frustration to confusion to feverish obsession. Increasingly, these devices dominate our everyday work activities, our behavior in public space, and our personal communications. Becky will conduct interviews to help create custom-knitted coverings for participants’ personal electronic devices. The installation aims to bring critical awareness and consideration to the complex relationship between people and technological artifacts. Each BTI will reflect salient interaction behaviors between the participant and their chosen device, as well as provoke thought in observers.
Á síðunni hennar er hægt að skoða verkefnin hennar, CV-ið og fleira áhugavert. Mæli með þessu og þakka Hörpu J fyrir að pósta þessu á síðuna sína en þar rakst ég á þetta fyrst.
Tags: flus, hlustur, Rebecca Stern, tækni
Posted in Prjón í nýju samhengi | No Comments »
Wednesday, October 29th, 2008
Eins og margir sáu eflaust í fréttum RÚV hér um daginn að þá var keppt í prjóni á dögunum. Þið getið lesið nánar um það hér.
Tags: Prjónympíuleikarnir
Posted in Prjón í nýju samhengi, Prjónahúmor, Prjónaleikir | 3 Comments »
Monday, October 27th, 2008
Hér eru nokkrar uppskriftir að hálskrögum eða strokkum eins og þeir voru kallaðir þegar ég var krakki. Sniðugt er að losa sig við afgangs garn í svona verkefni og svo er um að gera að leyfa ímyndunaraflinu spinna við þessar uppskriftir þar sem þessi prjónaskapur gerist vart auðveldari og þá má jafnvel benda ungum prjónurum á þessar uppskriftir sem sniðugar byrjendauppskriftir.
Dolores park cowl(kragi)
Gloria cowl
Þessi er æði
Æði frá purlbee
Aspen Cowl
Tags: cowl, hálskragi, kragi, strokkur, The Purl Bee
Posted in Uppskriftir | No Comments »
Friday, October 24th, 2008



Á netsíðu Handpjrónasambandsins má nálgast ágætt úrval af ókeypis uppskriftum m.a. þessa hér að renndri léttlopapeysu og á vef Ístex eru einnig nokkrar uppskriftir s.s. að léttlopavestum sem hafa verið vinsæl. Nú er bara að skunda niður í næstu búð og skella í eina peysu um helgina enda orðið napurt úti og ekkert heldur eins vel á manni hita og íslenska ullin.
Góða helgi.
Tags: Handprjónasambandið, íslensk prjónauppskrift, ístex, ull.is
Posted in Uppskriftir | 1 Comment »
Friday, October 24th, 2008

Héléne Magnússon er að gefa uppskrift að trefli með rósaleppamunstri á síðunni sinni. Þið sendið henni nafn og netfang og fáið uppskriftina senda. Tékkið á þessu.
http://www.mmedia.is/helene/site%20islandais/SHOP2ISL.htm
Tags: Héléne Magnusson, íslensk prjónauppskrift, rósaleppar
Posted in Prjónablogg, Uppskriftir | 5 Comments »
Thursday, October 23rd, 2008

Garnið á myndinni er frá Blue Moon Fiber
Íslenskar garnbúðir eru flestallar mjög skemmtilegar en á netinu er einnig aragrúi af góðum garnverslunum. Ég verslaði t.d. garn hjá Blue Moon Fiber á meðan dalurinn var ágætur gagnvart krónunni. Þó gengið sé ekki gott núna að þá er engin ástæða til annars en að búast við því að ástandið batni og með betra gengi er hægt að splæsa á sig fallegu garni. Garnið sem ég keypti er einstaklega fallegt á litinn en það er handlitað og handspunnið-ég hef enn ekki rekist á sambærilegt garn hér heima. Viðskiptin gengu vel fyrir sig og garnið var fljótt að berast.
Hér eru fleiri búðir:
Gritty Knits
Eat Sleep Knit
Gosh Yarn It
Endilega komið með ábendingar um skemmtilegar búðir á netinu og reynslu ykkar af þeim.
Tags: Blue Moon Fiber, garn, garn á netinu, garnverslun, garnverslun á netinu, netið, netverslun
Posted in Þarna úti | No Comments »
Sunday, October 19th, 2008

Hosurnar hér að ofan er ég að prjóna, akkúrat núna, á nýjustu viðbót stórfjölskyldunnar. Undurfagrar og auðveldar.
Tags: barnahosur, Fríar uppskriftir
Posted in Uppskriftir | 2 Comments »
Wednesday, October 15th, 2008

Um daginn heyrði ég í útvarpinu auglýsingu frá versluninni Þumalínu á Skólavörðustíg. Verið var að hvetja foreldra til þess að fara að nota taubleiur og imprað var á hagkvæmni þess ráðahags. Fyrir ykkur sem ákveðið að skipta úr bréfi yfir í tau eða blanda þessu saman að þá er hér fín frí uppskrift að bleiubuxum.
Tags: bleiubuxur, curlypurly, soakers, Þumalína
Posted in Uppskriftir | 5 Comments »
Tuesday, October 14th, 2008

Uppskrift að töskunni hér að ofan er hér. (Það þarf að skrá sig til að fá uppskriftir á þessari síðu).
Það er gaman að þæfa og mjög spennandi ferli. Mér finnst ótrúlega gaman að prjóna eitthvað úr þykku garni á stóra prjóna (árangurinn kemur strax) henda því inn í þvottavél og út kemur eitthvað allt öðruvísi.
… halda áfram að lesa Að þæfa prjónles
Tags: Að þæfa, pottaleppar, töskur, þæfing
Posted in Fitjað upp á | 2 Comments »
Monday, October 13th, 2008

Eins og hér hefur oft verið bent á að þá er hagkvæmt að gefa prjónaðar jólagjafir. Það væri þess vegna líka hægt að gefa garn og prjóna og hvetja einhvern til að fitja upp á. Aðrar sniðugar jólagjafir eru kettlingar en þeir eru alltaf að leita að heimili og Kattholt á líklega nokkur stykki. Kettir og prjón eiga líka vel saman og mjög margir prjónarar eiga einmitt kött.
Vinsældir prjónsins rötuðu síðan í netmiðlana. Sjáið bara.
Tags: jólagjafir, jólaprjón, kisa, vísir.is
Posted in Prjón í nýju samhengi | No Comments »
Sunday, October 12th, 2008

Barnapeysa í dömustærð
Nammi, namm. Ég elska snollaðar gollur eða litlar hneppupeysur og fer nánast ekki út án þess að vera í einni slíkri enda er farið að kólna. Hér eru nokkrar uppskriftir sem mér þykja mjög fínar. Gjörið svo vel. … halda áfram að lesa Hlýjar og góðar hneppupeysur
Tags: cardigan, hneppupeysa, peysa, Uppskriftir
Posted in Uppskriftir | 2 Comments »
Friday, October 10th, 2008
Hér koma nokkrar uppskriftir sem henta mjög vel sem tækifærisgjafir og jólagjafir. Mörgum finnst ekki þægilegt að bera þunga skartgripi eða úr köldum málmum og því ekki að nota skart sem einnig hlýjar manni. Einnig er hægt að prjóna og hekla úr óhefðbundnum efnum s.s. vírum og útkoman af því getur verið skemmtileg.
… halda áfram að lesa Prjónað skart
Tags: hálsmen, skartgripir
Posted in Uppskriftir | No Comments »
Friday, October 10th, 2008

Það er auðvitað allt of snemmt að fara að hugsa um jólin núna en ef við viljum búa til gjafirnar sjálf að þá er ráð í tíma tekið og gott að hefjast handa fyrr en síðar svo hægt sé að njóta þess að búa gjafirnar til. … halda áfram að lesa Gjöf að gefa
Tags: jólagjafir
Posted in Uppskriftir | 1 Comment »