Saturday, November 29th, 2008
Legghlífar koma sér vel fyrir pilsglaðar konur og stúlkur. Það er fimbulkuldi úti og um að gera að fitja upp á legghlífum hið snarasta. Einnig er þetta sniðug gjöf að gefa.
Sumar uppskriftirnar hafa kannski birst áður en hér er fundur dagsins:
Legghlífar fyrir allar fætur
Þessar gætu líka farið á handleggina
Með útprjóni
Mjög fallegar
Sjálf myndi ég grafa upp garnafganga og prjóna mínar röndóttar með miklu stroffi svo þær haldist uppi.
Tags: Legghlífar
Posted in Uppskriftir | 2 Comments »
Friday, November 28th, 2008
Ég ó-aði upp yfir mig þegar ég fann þessi vettlingamunstur á Ravelry og má til með að deila þeim með ykkur. Ég er ekki ein þeirra sem sitja á góðum fundi á netinu heldur er þessi síða hér, prjona.net, eingöngu ætluð til þess að deila með öðrum prjónurum því skemmtilega sem ég finn á netinu. Þannig að hér eru fallegustu vettlingar sem ég hef séð langalengi og get ekki beðið eftir að klára clapotis-ið’, skeljamunsturssokkana, húfuna og barnasokkana og og og …ó, ó, ó, …svo spennandi framundan á prjónunum. Góða helgi!
Sundagsvotter eftir Strikkepanja
Thrummed mittens eftir Hello Yarn
Heathermittens eftir Spillyjane
Hér eru myndir af fleiri vettlingum eftir Strikkepanja.
Tags: Hello Yarn, Spillyjane, Strikkepanja, vettlingar
Posted in Uppskriftir | 4 Comments »
Thursday, November 27th, 2008

Jæja, í næstu viku er mánaðarlegt prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins og ég ætla að fara. Spurning hvort ég þurfi að mæta klukkutíma fyrr en venjulega vegna vinsælda þessa viðburðar? Ég frétti af því að fólk hafi þurft að leita annað vegna plássleysis síðast.
Ég ætla að taka eitt af mörgum verkefnum sem eru í bígerð núna með mér. Ég fékk inneignarnótu í Storkinum í ammlisgjöf og notaði hana í að kaupa NORO SILK GARDEN og er að prjóna Clapotis. Jei svo fallegt, jei svo gaman. Hlakka til að sýna ykkur. Sjáumst þar!
Myndin hér að ofan er af Clapotis sjali, prjónuðu úr Noro en mínir litir eru ekki alveg svona-sýni ykkur mynd síðar.
Posted in Uppskriftir, Viðburðir | 2 Comments »
Thursday, November 27th, 2008
Prjónaverslunin Nálin hefur betrumbætt heimasíðu sína og hvet ég alla áhugasama um prjón að skoða hana. Þar getur að lýta uppskriftir sem fást ókeypis ef garnið er keypt í Nálinni.
Ég fékk einnig sendan tölvupóst um nýja netverslun sem Hélene Magnússon hefur stofnað. Hún notar netverslunarkerfið Etsy sem er mjög sniðugt og notendavænt.
Posted in Glugginn, Þarna úti | 1 Comment »
Thursday, November 20th, 2008

Mynd af Fetching-grifflunum
Hér koma nokkrar uppskriftir að hönskum og grifflum. Ég er búin að vera að prjóna úr léttlopa og úr garni sem þarfnast prjóna í stræð 4,5 og þá finnst mér frábært að skipta algjörlega um gír og prjóna úr fíngerðu garni á t.d. prjóna nr. 2,5 -3,5. Nýlega kláraði ég léttlopakjól og er hálfnuð með sokkapar með útprjónsmunstri á prjóna nr. 2,5. Verði ykkur að góðu.
Fetching
Dashing
Endpaper mitts
Hanskar með útprjónsmunstri
Heklaðir vettlingar/grifflur
Kaðlahanskar í vintage stíl
Tags: fingravettlingar, grifflur, hanskar, stúkur, vettlingar
Posted in Uppskriftir | 2 Comments »
Thursday, November 13th, 2008

Hér eru nokkrar skemmtilegar uppskriftir sérstaklega fyrir börn og barnslegar sálir. Gott að nota afganga í svona verkefni og þau henta fullkomlega í jólapakkana.
Barnahringir
Fíllinn í stofunni
Hjörtu
Tags: barnadót, dót, dýr, fíll, gjafaprjón, hjarta, hringir, jólagjafir, leikföng
Posted in Uppskriftir | 5 Comments »
Thursday, November 6th, 2008

Kaffi og prjón er góð tvenna. Hér eru uppskriftir að flusi utan um pressukönnu og utan um “tilaðtakameð” kaffibollana sem oft eru svo heitir.
Hulstur utan um pressukönnu
Flus utan um “til að taka með” kaffibolla
Tags: flus, Kaffi og prjón, kaffihlustur
Posted in Uppskriftir | 2 Comments »
Thursday, November 6th, 2008

Bókin Knitticisms…And other purls of Wisdom er bara snilld. Ég er búin að vera að fletta í henni og auk þess að vera yfirfull af sniðugum myndum að þá eru ansi mörg góð ráð fyrir prjónafólk t.d. er tíundaðar ástæður til þess að byrja á nýju verkefni án þess að klára það gamla. Það þykir góð ástæða að byrja á nýju verkefni ef barnið sem átti að fá ungbarnapeysuna er að fara að fermast í vor. Góðar ástæður til að kaupa garn eru þær að garn er einangrandi fyrir húsið, ein dokka í viðbót skaðar svo sem engan og þú ert að styðja ullariðnaðinn með kaupunum. Að lokum eru talin upp teikn sem gætu bent til þess að þú sért forfallinn prjónari t.d. ef þú eyðir meiri pening í garn heldur en í mat og ef þú ert farin að horfa girndaraugum á feld hundsins þíns að þá ertu í vondum málum.
Tags: Knitticisms, Prjónahúmor
Posted in Prjónahúmor, prjónabækur | 1 Comment »
Wednesday, November 5th, 2008

Á morgun er komið að mánaðarlegu prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins, á Amokka Hlíðarsmára 28, og hvet ég alla til að mæta. Ég sjálf kemst reyndar ekki í þetta sinnið en mæti galvösk í desember með eitthvað jólalegt. Reyndar væri gaman að hafa prjónakaffi í miðbæ Reykjavíkur og gaman væri ef eitthvað kaffihúsið tæki upp á því að halda prjónakvöld. Reyndar er ekkert því til fyrirstöðu að mæla sér mót á kaffihúsi og taka prjónið með. Um daginn var ég á Kaffi Hljómalind og á öðru hverju borði var fólk að prjóna. Húrra fyrir því!

Tags: Heimilisiðnaðarfélagið, kaffi, prjónakaffi
Posted in Viðburðir | 3 Comments »
Wednesday, November 5th, 2008
Hér koma nokkrar uppskriftir að barnapeysum. Það er dásamlegt að prjóna á börn, það tekur svo stutta stund og að auki eiga öll börn að fá eitthvað handprjónað í vöggugjöf.
5 klukkutíma peysa
Þessa er hægt að útfæra á marga vegu
Barnapeysa með köðlum
Tags: barnapeysa, hneppupeysa, peysa, ungbarnapeysa
Posted in Uppskriftir | No Comments »
Wednesday, November 5th, 2008

Björg spyr um legghlífar og hér koma nokkrar uppskriftir sem ég fann á netinu. Þær, eins og nær allar uppskriftirnar sem ég vísa á, eru lagðar fram af höfundum á netið handa áhugasömum prjónurum endurgjaldslaust. Til að sýna þessum gjafmildu prjónahönnuðum þakklæti er t.d. hægt að blogga um uppskriftina og vísa í hana og hjálpa þannig til við að dreifa gjafmildinni.
Legghlífar með gatamunstri
Legghlífar með eldmunstri-tékkið á þessari síðu hún er skemmtileg
Legghlífar úr röndóttu sokkagarni
Tags: Legghlífar
Posted in Uppskriftir | No Comments »
Monday, November 3rd, 2008
Húfur er dásamlegar og hlýjar. Svo er svo gaman að prjóna þær því maður er svo fljótur en það er skemmtilegra að vera fljótur með prjónaverkefni heldur en að vera lengi með prjónaverkefni. Hér eru nokkrir linkar á uppskriftir sem að mínu mati eru mjög fallegar og skemmtilegar. Sumt gæti hafa birst áður en hvað um það, gjörið svo vel:
Alpahúfa með köðlum-mig langar að gera svona í kóngabláu
Ugluhúfa-kaðlar
Húfa með dúsk-dúskar eru svo skemmtilegir
Falleg barnahúfa eftir finnska konu-þýðing á ensku er neðarlega á síðunni
Alpahúfa a la Paris
Tags: alpahúfa, dúskar, dúskur, gjafaprjón, gjöf, húfa, jólagjafir, kaðlar
Posted in Uppskriftir | 1 Comment »