Monday, December 29th, 2008
Það vefst fyrir mörgum að leggja í enskar prjónauppskriftir, enda virkar þetta allt svo ólíkt íslenskunni. Ég vil þó hvetja ykkur til þess að koma ykkur í gegnum eina uppskrift á ensku því þá er björninn unninn og þær næstu verða ekki eins snúnar. Hér á eftir koma bæði þýðingar og sýnikennsla af helstu skammstöfunum á ensku. Þið bætið svo við því sem ykkur þykir vanta. Þegar ég sjálf lendi í vandræðum þá leita ég á netinu af myndbandskennslu af viðkomandi skammstöfun. Í prjóninu er nefnilega svo lærdómsríkt að sjá hvernig hlutirnir eru gerðir en lærdómsríkast er þó að prófa sjálfur. Gjörið svo vel. … halda áfram að lesa Prjónað á ensku
Tags: Prjónakennsla, skammstafanir, video
Posted in Prjónakennsla | 7 Comments »
Friday, December 26th, 2008
Þetta ár sem nú er að líða var afkastamikið í heimi prjónsins. Árin 2006 og 2007 einkenndust af grúski; Ég vafraði um prjón-net-heima og fann mig allt í einu í djúpum helli hlöðnum af myndum af prjónlesi, hugmyndum að uppskriftum og prjónareynslusögum fólks um veröld víða. Þessi ár fóru líka í að sanka að sér prjónabókum og voru þær taldar um daginn af betri helmingnum (sem hefur mismikla þolinmæði fyrir garninu sem finnst í ólíklegustu skúmaskotum og er vatnskassinn á klósettinu ásamt ruslaskápnum líklegast eini staðurinn sem ekki hefur geymt garn). Hann taldi þá 20 bækur og þá eru lopaheftin og Jaeger blöðin ekki meðtalin.
Árið 2008 hefur farið í úrvinnslu á öllu grúskinu, ég keypti mér aðeins 1 prjónabók. Það er bókin Knit,Knit og get ég mælt með henni-hún er mín uppáhalds.
Hér verður gerð tilraun til að setja prjónlesið í línulega upptalningu sem er kannski andstætt eðli prjónsins-míns prjóns-þar sem það flæðir um allt í hringlaga flælkjum og sívalingum. … halda áfram að lesa Prjónannáll 2008
Tags: annáll 2008, annáll., Baby Surprise Jacket, Clapotis, Cloud Bolero, Fetching, vettlingar
Posted in Fitjað upp á | 14 Comments »
Wednesday, December 24th, 2008

Prjóna.net óskar ykkur öllum gleðilegra prjónajóla og þakkar ykkur prjóneríið á liðnu prjónaári. Prjóna.net hlakkar til þess að njóta næsta prjónaárs með ykkur, kæru prjónarar. Margt er á döfinni í landi prjóns og garns á næsta ári og má þar nefna m.a. hinn alþjóðlega “prjónum úti” -dag, prjónakaffi út um borg og bæ og almenns prjónadjamms á hinum ólíklegustu stöðum.
Verum dugleg að húrra okkur saman í prjónaskap, það gefur svo mikið af sér.
Kær jólaprjónakveðja.
Tags: frímerki, Jól
Posted in Fitjað upp á | 1 Comment »
Tuesday, December 16th, 2008
…húfutetur og vettlinga. Létt-lopinn er að koma sterkur inn í jólagjafaprjóninu. Ég þvæ síðan prjónlesið uppúr hárnæringu svo það verði sérstaklega mjúkt. Nú hefur myndast talsverður rígur milli bæði ókláraðra verkefna og svo garns sem telur sig góðan kandidat í næsta verkefni. Ég hef íhugað að fitja upp á ca. 3 verkefnum í dag og láta þau fara í kapp-ef ég byggi ein myndi ég hugsanlega raða þeim upp víðsvegar um íbúðina á mismunandi starfsstöðvar og sjá hver væri fyrstur í mark. We call them pirates úr kambgarni er sigurstrangleg, Shell-Socks úr Knitting Vintage Socks eru einnig volgir, en hugsanlegt er að þau verkefni sem enn er ekki fitjað upp á beri vinninginn. Ég hef hug á að prjóna vettlinga eða húfu úr Debbie Bliss merino garni og veit ekki alveg hvar ég á að byrja. En svo er Dale-babyull að ibba sig og gerir sig líklega til að verða að grifflum/vettlingum. Hér eru uppskriftirnar.
Sænskir vettlingar
Sænskir fiskavettlingar
Síldarmunstursvettlingar
Svo er að vona að allir keppendur komist í mark svo fólk fái nú ekki ókláruð verkefni í pakkana sína.
Tags: elliphantom, Jólagjafaprjón, vettlingar, We call them pirates
Posted in Uppskriftir | 4 Comments »
Monday, December 15th, 2008

Hjartað sló örar yfir fréttum af prjónamótmælum fyrir utan stjórnarráðið og þykir mér þessi aðgerð til fyrirmyndar og vona að þær verði fleiri og býð hér með fram krafta mína í að liðsinna við skipulagningu og þátttöku í slíkum aðgerðum. Prjónarar er harðir í horn að taka, þó seinþreytt til vandræða við séum, og láta greinilega ekki gadd og næðing mæða á sér heldur sitja vaktina. Prjónarar taka vaktina þegar aðrir spunamenn eru einhversstaðar að hossa sér eða klóra sér í höfðinu. Ég segi ei meir.
Nú verður síðasta prjónaglöggið á miðvikudaginn, þá ætla ég að leggja jólagjafaprjón til hliðar en mun hinsvegar gramsa í prjónabinginum (a.k.a. my knitstash eins og enskir prjónarar kalla sitt samansafn af garni) og finna eitthvað harðgert garn sem þolir hvaða veður sem er, hrindir frá sér slabbi og hreti, og ég ætla að prjóna úr þessu garni prjónahólk mikinn og veglegan og að fordæmi Prjónalausna ætla ég að sauma hann utan á næsta staur sem verður á vegi mínum. Þessi hólkur mun ekki bara standa fyrir andúð mína á ástandinu og öllu því hafurtaski heldur mun minn prjónahólkur fyrst og fremst vera hvatning til almennings að láta hendur standa fram úr ermum og “fitja upp á” hverju því sem þið teljið að muni gera samfélagið að betri stað.
Sjáumst á kaffi Hljóma(prjóna)lind á miðvikudaginn.
Tags: Knit happens!, prjónamótmæli, prjónastolt
Posted in Prjón í nýju samhengi, Prjónað til góðs, Viðburðir | No Comments »
Friday, December 12th, 2008
Tilkynningin hér að neðan birtist í athugasemdakerfinu og einnig hef ég fengið sendan fjölpóst um aðgerðina. Það er mér ljúft og skyld að hvetja alla sem prjóni geta valdið að mæta á þessi leikrænumótmæli.
_____________________________________________
“VIÐ SITJUM EKKI AÐGERÐALAUS”
-LEIKRÆN MÓTMÆLI
Mánudaginn 15.desember kl.17:00 ætlum við, konur, menn og börn, að safnast saman fyrir framan Stjórnarráðið í Lækjargötu. … halda áfram að lesa Prjónamótmæli-leikræn mótmæli
Tags: activism, Aktivistaprjón, Aðgerðaprjón, mótmæli
Posted in Prjón í nýju samhengi, Viðburðir | No Comments »
Wednesday, December 10th, 2008
“Prjónaglögg” í kvöld. Viðrið prjónana og prjónlesið ykkar, sjáumst þar!
Posted in Viðburðir | 1 Comment »
Monday, December 8th, 2008
Prjona.neti hlotnaðist sá heiður að vera vefsíða vikunnar í Morgunblaðinu. Umfjöllunin var svona:
” AÐ PRJÓNA yljar á allan hátt. Ekki er aðeins gaman að gera eitthvað með eigin hendi og klæðast því heldur getur félagsskapurinn í kringum það að prjóna einnig yljað sálinni.
Íslenska vefsíðan prjona.net er haldið úti af Ilmi Gísladóttur. Síðan er ætluð sem upplýsingatorg prjónafólks. Þar er hægt að fylgjast með öllu því sem er að gerast í heimi prjónsins á Íslandi og á netinu eins og segir á síðunni. Síðuhaldari er greinilega vel vakandi fyrir því sem er að gerast í prjónaheiminum því prjónafréttirnar eru uppfærðar nánast á hverjum degi. Er þá bæði sagt frá því sem er að gerast hér heima og erlendis. Ekki skemmir fyrir að mikið er af tenglum á aðrar prjónasíður. … halda áfram að lesa Vefsíða vikunnar
Tags: prjona.net, vefsíða vikunnar
Posted in Prjón í nýju samhengi | 9 Comments »
Monday, December 8th, 2008

Foliage húfa
Aldrei er góð vísa of oft kveðin. Fljótlegt prjón er allra allra skemmtilegasta prjónið. Helgin var viðburðarík hvað prjónið varðar. Föstudagskvöld fór í að prjóna Foliagehúfu og í gær kláraði ég ansi fljótlega húfu, afgangahúfu. Í báðar húfurnar notaði ég léttlopa og prjóna nr. 4,5. Í Foliage bætti ég ennfremur … halda áfram að lesa Ein húfa, eitt kvöld=árangursríkt prjón
Tags: húfur
Posted in Uppskriftir | 2 Comments »
Sunday, December 7th, 2008

Mér er kalt á tánum, ég segi það satt og þá er ekkert því til fyrirstöðu að fitja upp á tátiljum. Ég er hrifin af garðaprjónstýpum, því einfaldara því betra, og hef hugsað mér að nota léttlopaafganga í einhverja af þessum uppskriftum. Ég vil líka benda á að þessar uppskriftir eru sniðugar í jólapakkana og um að gera að gera tilraunir með garn og liti. Krakkarnir mínir eru hrifnir af ullarsokkum og ekki bara vegna hlýju þeirra heldur vegna þess hve þeir eru sleipir á parketinu og kalla því þá skautasokka.
Tátiljur
Hobbitalegar tátiljur
Mæðradagstiljur
Ballerínulegar tátiljur
Álfatiljur
Tags: ballerinaslippers, inniskór, tátiljur
Posted in Uppskriftir | 4 Comments »
Friday, December 5th, 2008

Uppskriftin að þessari húfu er í bókinni Prjóniprjón eftir Ragnheiði Eiríksdóttur og Halldóru Skarphéðinsdóttur.
Áðan var prjónanet í útgáfuhúllumhæi bókarinnar Prjóniprjón og það verður að segjast að bókin er ansi gómsæt og girnileg. Um er að ræða prjónabók með einföldum uppskriftum og greinagóðum leiðbeiningum. Mér líkar sérstaklega vel við hvatningarandann sem svífur yfir vötnunum en hvatt er til þess að vera ekki of bundin uppskriftunum heldur eigum við að fara okkar eigin leiðir í prjóninu sem og lífinu.
Prjóniprjón er á jólagjafaóskalistanum mínum.
Posted in prjónabækur | 2 Comments »
Thursday, December 4th, 2008

Prjónanet fékk sendar myndir, sjá hér að ofan, og tilkynningu frá hópnum Prjónalausnir sem ég birti hér:
Rauður garðaprjónshólkur hefur birst á staur við bílastæði forsætisráðherra fyrir utan Stjórnarráðið.
Prjónalausnir, friðsamlegur og skapandi aðgerðahópur, lýsir gjörningnum á hendur sér.
Prjónalausnir hvetja ríkistjórn Íslands og ráðafólk allt til þess að líta sér nær og nota hugmyndaflugið þegar leitað er lausna við þeim vandamálum sem steðja að þjóðinni. Verið skapandi og óhrædd við nýjar uppskriftir og nýjan efnivið. Maður fitjar aldrei upp til einskis.
Með kveðju,
Prjónalausnir
Við leit á netinu fann ég svo þessa
frétt um málið.
Tags: Prjónalausnir
Posted in Prjón í nýju samhengi, Prjónað til góðs, Viðburðir, Þarna úti | 2 Comments »
Wednesday, December 3rd, 2008

Jólagjöf prjónarans er án efa kind til fósturs. En á vefnum kindur.is er hægt að fóstra kind. Gefa henni nafn, heimsækja hana nokkrum sinnum á ári og fá sent póstkort frá henni. Sömuleiðis fær fóstrinn ullina senda til sín af kindinni og þá er ekkert eftir en að taka upp rokkinn og byrja að spinna.
Tags: kindur
Posted in Prjón í nýju samhengi, Þarna úti | No Comments »
Wednesday, December 3rd, 2008
Prjónarar eru sérstaklega velkomnir á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23, miðvikudagskvöldin fyrir jól. Prjónarar fá þá afslátt ef keypt er kaka og kaffidrykkur/te og þurfa bara að segja töfraorðin, ég er að prjóna, þegar pantað er.
Sjáumst þar í kvöld, 10.desember og 17.desember.
Jólaprjón, jólaprjón.
Posted in Viðburðir | 2 Comments »
Monday, December 1st, 2008

Myndin hér að ofan sýnir meðlimi The Granny Peace Brigade mótmæla Írakstríðinu, á fimm ára afmæli þess. Þær létu ekki regn eða kulda stöðva sig og voru prjónandi og með skilti á sér sem á stóð t.d. ”No blood for oil”. Ennfremur reyndu þær að skrá sig í herinn og fá að skipta við unga fólkið þar:
In October 2005 they staged a sit-in at the entrance of the recruiting center, after trying, unsuccessfully, to enlist and take the places of young people who still had their lives ahead of them. Eighteen were arrested and charged with disorderly conduct, but in April 2006 a judge declared them not guilty, after determining, with the help of videos of the protes, that they had not blocked people from entering the recruiting station. (leturbreyting er mín)
Þetta er bara töff og ég held að landsmenn geri sér ekki alveg grein fyrir þeim krafti sem býr í íslenskum prjónurum sem t.a.m. hittast hundruðum saman einu sinni í mánuði á Amokka, Kópavogi. Þá held ég að eftir því yrði tekið ef þessir sömu prjónarar myndu fylla opinbera byggingu í sitjandi prjónamótmælum.
Lifi prjónið, það rokkar.
Tags: prjónamótmæli
Posted in Prjón í nýju samhengi, Viðburðir, Þarna úti | 3 Comments »