Prjónuð vesti

Thursday, January 29th, 2009

Ég er með ÆÐI fyrir svona vestum. Helst úr garðaprjóni. Fullkomin sumarflík, hlýtt vesti yfir sumarlegan bol…draumur. Ég er að prjóna February Lady Sweater mínus gatamunstrið, sem sagt bara garðaprjón og nú þegar ég er komin ágætlega áleiðis og virði fyrir mér flíkina að þá er hún eins og flott bolero. Ég ætla samt að hafa ermar, hálfermar, og peysan verður niður að mitti. 

Hér eru nokkrar uppskriftir að vestum: Gjörið svo vel. 
Röndótt afganga dásemdar vesti
V-máls rendur
Eitt í “kærasta” stærð
Eitt mjög sparilegt
 

Námskeið og útsölur

Wednesday, January 28th, 2009

Ég fékk póst frá Storkinum sem segir m.a. frá útsölu er verður um helgina. Einnig fékk ég póst frá Nálinni sem er með fullt af námskeiðum í gangi og hvet ég ykkur til þess að kíkja á síður búðanna og/eða skrá ykkur á póstlista þeirra til að geta fylgst með því sem er að gerast þar. 

Prjónarar eru ávallt glaðir að heyra af garni á útsölu og nú ættu prjónabúðirnar að gera vel við okkur með góðum útsölum enda garn orðið dáldið dýrt. Endilega setjið í athugasemdirnar ef þið vitið um góða útsölu eða garn á góðu verði. 

Alltaf er gaman að frétta af sniðugum prjónnámskeiðum og hef ég sjálf farið á eitt í Storkinum sem var frábært. Einnig finnst mér sniðugt að bjóða upp á stutt námskeið og allra best er ef þau eru á sanngjörnu verði, hvað sem það svo þýðir. 

Prjónakennslumyndband Prjóniprjóns

Saturday, January 24th, 2009

Nýtt prjónamyndband á íslensku er nú komið á Youtube. Prjóniprjón er höfundurinn og er þetta afskaplega greinagott myndband um hvernig á að fella laust af. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt. Ýtið á hlekkinn og verðið vísari!

Prjóniprjón kennir að fella laust af

Allt nýtt

Sunday, January 18th, 2009

Þessa uppskrift fann ég á Ravelry (auðvitað) og er hún fullkomin til þess að nýta hvern einasta garnsnefil sem þið eigið. Einnig er gaman að gera tilraunir með garn og liti í svona uppskrift. Munstrið virkar einfalt og áferðin er mjög falleg. 

Njótið

 Scrappy Stripey Scarf

Innblástur frá tískuheiminum

Thursday, January 15th, 2009

Sonia Rykiel þykir mér alveg æði og er hún mikill innblástur þegar maður er hrifinn af röndóttu. 

… halda áfram að lesa Innblástur frá tískuheiminum

Játning og prjónórar

Tuesday, January 13th, 2009

Ég hef aldrei prjónað úr plötulopa en klæjar nú í fingurnar því mig langar svo að prófa. Eins og er snýst plötulopadraumórarnir um síða peysu með hugsanlega víðum ermum. Nú er ég í rannsóknarvinnu varðandi þessa óra og er að velta fyrir mér ýmsum möguleikum. Á ég að taka plötulopann einfaldan eða tvöfaldan-eða með öðruvísi bandi s.s. einbandi. Teygjist mikið á plötulopa, hnökrar hann eða er hann sterkur og þolmikill? … halda áfram að lesa Játning og prjónórar

Ljúfar lykkjur

Thursday, January 8th, 2009

Flestir prjónarar eru sammála því að ekkert klæði börn jafn vel og heimaprjónaðar flíkur. Ekki aðeins hlýja þær heldur hreinlega umfaðma þær litlu krílin með allri þeirri ástúð sem prjónarinn setti í verkið þar sem hver lykkja er eins og ljúf hugsun. Væmið en satt. Þar sem hnokkinn minn er nýbyrjaður í dagvist fannst mér það mikilvægt að hann fengi eitthvað hlýtt heimaprjónað sem bæði er hægt að kúra sig í og dröslast með.

Værðarvoð varð fyrir valinu en í minni útgáfu er það er gysin dula ef svo er hægt að komast að orði. Ég vel einband í værðarvoðið og nota prjóna nr. 6. Úr verður ferköntuð dula sem hnokkinn má eiga bara fyrir sig og hafa hjá sér þegar hann sefur og einnig dröslast með um íbúðina. Amma prjónaði svona í gamla daga á börnin sín og breiddi yfir andlitin á þeim, þannig sváfu þau alltaf vel. 

En þar fyrir utan hef ég huga á að prjóna hlýja húfu eins og þessa:
Toddler helmet
 

Annars er ég lögð af stað í Baby Surprise Jacket #2 og svo langar mig mikið að prjóna Tomten: 

Húfa á viku

Monday, January 5th, 2009

Ekki láta þetta stórskemmtilega verkefni framhjá ykkur fara. Edda á mikið af garni og til þess að koma því á prjónana brá hún á það ráð að setja sér fyrir verkefni. Út árið 2009 ætlar hún að prjóna húfu á viku og mun engin húfa verða eins. Fylgist með á síðunni hennar Eddu-> www.snigla.com/kjallarahufur.

Kaðlaprjón

Friday, January 2nd, 2009

The Greenery Hat e. Lilith Parker


Ég er að prjóna The Greenery Hat eftir Lilith Parker þar sem kaðlar koma mikið við sögu. Þetta virðist vera garnfrekt verkefni og ég reikna með nærri 3 dokkum af Cashmerino (65m/50gr) í húfuna. Kaðlar eru æði og góð tilbreyting frá sléttu prjóni á hringprjónum. Í kaðla þarf ýmis tól og tæki. T.d. kaðlaprjón. Sjá mynd. Ólíkt því sem ég hélt að þá eru kaðlar ekki erfiðir en prjónalingóið sem þeim fylgjir er mjög stærðfræðilegt t.d. tf4, C6b osfrv. Hér (skrollið niður) lærir þú að prjóna kaðla.

Komið út úr garnskápnum

Friday, January 2nd, 2009

Það er mín ósk að margir hafi sett sér það áramótaheit að prjóna sér eitthvað á árinu eða taka upp þá iðju að prjóna. Ef þið eruð í hópi þeirra sem ætlið ykkur að ráðast í epískt prjón s.s. að prjóna kjól, gardínur, rúmteppi eða bara lopu fyrir næsta vetur að þá hvet ég ykkur til að hefjast handa ekki seinna en núna því slíkt prjón vill taka tíma. 

Titill þessarar færslu á ekki síður við um okkur sem eigum garn í öllum hirslum. … halda áfram að lesa Komið út úr garnskápnum