Dömupeysa í febrúar

Monday, February 23rd, 2009

Kæru lesendur Prjónanets. 

Afsakið lægðina á síðunni en vegna anna hefur ekki verið mikið líf hér sem er alveg ótækt. Ég er rosalega ánægð að fá fyrirspurnir um hitt og þetta og reyni að svara þeim með bestu getu. Ég er líka rosalega glöð þegar einhver gjafmildur deilir með sér sniðugu efni um prjón. Um daginn fékk ég sannkallaðan pakka í tölvupósti. Ragga Eiríks hjá prjóniprjón sendi mér uppskriftina að February Lady Sweater á íslensku sem hún sjálf sá um að þýða! Takk, fyrir Ragga!
Nú geta allir prjónarar prjónað Dömupeysu í febrúar á sig og sína.

 

domupeysa-i-februar í þýðingu Röggu Prjóniprjóns

Munsturforrit fyrir prjónara

Tuesday, February 10th, 2009

Eigið þið til í fórum ykkar eitthvað æðislega fallegt munstur af t.d. gömlum kjól, veggfóðri eða úr teiknimyndasögublöðum sem ykkur hefur langað til að prjóna?
Jæja ef svo er þá ættuð þið að tékka á KnitPro forriti Microrevolt. Þið hlaðið inn mynd (jpeg, png eða gif) og forritið umbreytir myndinni í pixla sem þið síðan notið í prjónið ykkar. Sniðugt!

KIP-Knit in Public

Thursday, February 5th, 2009

Alþjóðlegi prjónum úti dagurinn nálgast. Hvet ykkur öll til að koma upp viðburði í ykkar bæjarfélagi.

http://www.wwkipday.com

Prjóna-raskanir

Thursday, February 5th, 2009

Vinkona mín, sálfræðingurinn, býður upp á þjónustu fyrir foreldra. Hún er með síðu þar sem má m.a. lesa um einkenni raskana og fannst mér mörg þeirra eiga sérstaklega vel við mig og mitt prjón. Ætli það sé hægt að tala um prjón-raskanir?

Stundum fyllist ég kvíða yfir öllum þeim verkefnum sem ég hef hug á að prjóna. Einnig er líkt og ég sé haldin prjón-athyglisbresti sem kemur einna best fram í að garnið er keypt en fylgnin er mismikil. Sumt garn fer beint í binginn en sem betur fer endar þetta að lokum á prjónunum að lokum.

Nú er ég í öfgaprjóni. Þetta öfgaprjón lýsir sér sem svo að ég er á lopapeysu nr. 2, prjónandi á prjóna nr. 4,5 enn aftur á móti er ég að fitja upp á vettlingum á prjóna nr. 2. Dáldið langt þarna á milli og svíf ég á milli verkefna, einbeitingin er ekki meiri en svo að ég þarf að skipta reglulega á milli.

Ég verð að bæta við að lokum að ég er með algjört blæti fyrir léttlopa. Litirnir eru svo dásamlegir, hey fellur af garninu og litirnir eru eins safaríkir. Ég er að prjóna úr mosabrúngrænum litum og mér finnst eins og ég sé umvafin svölum mosa.

Já, allt er til í prjóni og spurning hvort síðasta setningin sé aðeins í djarfari kantinum?