Prjónahönnun í Norræna húsinu
Monday, March 23rd, 2009Ég vil vekja athygli á viðburðum og sýningum í Norræna húsinu. Þetta er auðvitað Nordic Fashion Biennale og hef ég séð um skipulagningu þessa viðburðs. Í Norræna húsinu má sjá fatahönnun og skartgripi frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi og er prjón og ull mjög áberandi, aðallega í færeysku og íslensku hönnuninni. Endilega gerið ykkur ferð í Norræna húsið og skoðið skemmtilega sýningu og ég hvet ykkur til að koma þegar einhverjir viðburðir eru en þá má skoða á Nordic Fashion Biennale síðunni. Einn viðburður ætti þó að trekkja að prjónara en þann 4.apríl kl. 14.00 mun Védís Jónsdóttir prjónahönnuður segja frá starfi sínu og hönnun. Ekki missa af því!
