Stakir sokkar öðlast nýtt líf

Monday, April 27th, 2009

Hér er að sjá mjög góða úrlausn á því vandamáli sem stakir sokkar geta orðið. Klippið þá bara í sundur og prjónið úr þeim eitthvað sniðugt. Til dæmis er hægt að prjóna viskóstykki eða pottaleppa. 

 

Prjónahólkar/knit tags

Friday, April 24th, 2009

Eru ókláruðu verkefnin að ergja þig? Langar þig að prjóna bara til prjóna? Áttu til fullt af garni í mörgum litum sem þú veist ekki hvað þú getur gert við? … halda áfram að lesa Prjónahólkar/knit tags

Gleðilegt sumarprjón

Thursday, April 23rd, 2009

Gleðilegt sumar kæru prjónarar. Þó nú fari að hlýna skulum við prjónarar ekki örvænta því hér á norðurhjara veraldar er prjónles í tísku allt árið um kring og því ekki úr vegi að fitja upp sérlegum sumarflíkum. … halda áfram að lesa Gleðilegt sumarprjón

Fiskur

Sunday, April 19th, 2009

Fiskur af Lion Brand

Sjáið þennan sæta fisk, er hann ekki mikið krútt?! Uppskriftin er hér að neðan, á ensku, tekin af síðu Lion Brand en þar er urmull uppskrifta, þið þurfið bara að búa ykkur til prófíl. … halda áfram að lesa Fiskur

Hugur og hönd

Sunday, April 19th, 2009

Nú er komið út nýtt eintak af blaðinu, Hugur og hönd, sem heimilisfélagið gefur út. Ég mæli með því og sérstaklega grein Vigdísar Þormóðsdóttur sem m.a. fjallar um prjónamenningu á netinu og margt fleira skemmtilegt.

Prjónaðar tækifærisgjafir

Sunday, April 19th, 2009

Á óskalistanum mínum er bókin: Last Minuet Knitted Gifts. Í henni eru frábærar hugmyndir að fljótlegum prjónaverkefnum s.s. treflum, töflum og litlum töskum.

Af því ég á ekki bókina (enn) ákvað ég að leita að skemmtilegum uppskriftum á netinu sem henta vel til tækifærisgjafa.

Hér eru þær:
Vínflöskuflus
Midori Trefill frá Spillyjane
Tekönnuhlíf í fílastíl
Blöðrutaska-þæfð

Uppskriftir á vordögum

Saturday, April 18th, 2009

Er búin að sveima um netið og rakst á nokkrar dásamlegar vorlegar uppskriftir.

Hér eru Þær:
Grænt vesti
Slá
wabi sabi dásemdar sjal/trefill

Njótið!

Prjóna.net á Fésbók

Saturday, April 18th, 2009

 Prjóna.net er nú komið á Fésbókina með síðu. Gerist aðdáendur og segið öllum vinum ykkar frá hinu dásamlega prjónaneti. Þakkir fyrir.

Prjón framundan

Saturday, April 18th, 2009

Allt of langt er síðan hér hefur verið ritað eitthvað um prjón. Framundan er þó margt ótrúlega spennandi í heimi prjónsins. Að venju eru prjónakaffin hjá Heimilisiðnaðarfélaginu fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði og hlakka ég til að mæta á það næsta. Ég get síðan glatt ykkur kæru lesendur með þeim fréttum að í Norræna húsinu er Prjónagigg framundan, 28.maí,  þar sem margt skemmtilegt verður á döfinni. Prjóna.net er að sjálfsögðu viðloðandi dagskrána en hún verður upplýst á næstu dögum. 

Af mínum persónulegu prjónhögum er þetta að frétta: Um páska kláraði ég lopapeysu á eldri drenginn í dásamlegum litum frá ÍSTEX. Ég fæ ekki nóg af léttlopa og er því búin að fitja upp á kjólnum “keðja” úr nýjasta heftinu frá ÍSTEX. 

Einnig kláraði ég “february lady vesti”, það átti nú upphaflega að verða peysa en svo kom það svo vel út sem vesti í garðaprjóni. Set mynd inn við tækifæri. 

Prjónaverkefnin framundan tengjast barneingnum kærra vinkvenna en þrír gríslingar hafa bæst við í barnaskara vinkvenna minna.