Prjónum til góðs á “prjónum úti deginum”

Friday, May 29th, 2009

Kæru Prjónarar,

Stillum saman strengi okkar og prjónum til góðs fyrir líknafélög í landinu. Leitað er til allra prjónara nær og fjær eftir aðstoð.

Á prjónum úti deginum verður hleypt af stokkunum prjónað til góðs söfnun. Hún snýst um að safna saman prjónuðum og hekluðum bútum sem seinna verða saumaðir saman í teppi. Teppin verða svo boðin upp og ágóðinn rennur til góðgerðafélaga. Til þess að sem flestir geti tekið þátt langar okkur að fá kaffihúsin með okkur í lið og koma þar upp prjónakörfum og prjónum ásamt grunnleiðbeiningum í prjóni. Þá geta kaffihúsagestir tekið í prjónana og prjónað nokkrar umferðir eða jafnvel heilan bút. 

 

Þetta þýðir mikið af garni, körfum og prjónum og gaman væri ef allir prjónarar gætu séð af s.s. einni dokku úr binginum og kannski prjónum. Enn er verið að leita að styrktaraðilum til samstarfs en þetta er upphafið. 

Á prjónum úti deginum munum við formlega hefja Prjónum til góðs verkefnið og þá væri gaman að geta safnað saman garni í bing. 

Þið sem viljið hefjast handa nú þegar við góðverkin getið sent mér garn, bút eða prjóna upp í Norræna hús. Einnig væri gaman ef þið getið komið upp prjónakörfu sjálf á kaffihúsum í nágreni við ykkur-tekið mynd af körfunni og sent mér. 

Ég hef fulla trú á að prjónarar taki þátt í þessu verkefni og gaman verður að fylgjast með þessu í vetur en uppskeran verður um jólin þegar einmitt er svo gott að gefa að sér.

Með von um góð viðbrögð, Ilmur. 

Kóralínu sokkar og vettlingar

Thursday, May 28th, 2009


Vá hvað ég verð að sjá þessa mynd! Prjónabíóferð, væri það ekki snilld?!

Hér er uppskrift að Kóralínuvettlingum og hér eru kóralínusokkar.

Skundum út!

Thursday, May 28th, 2009

Eins og Ragga Eiríks bendir hér í pistlinum að neðan að þá má áætla að prjónarar á Íslandi skipti þúsundum. Prjónarar eru einstaklega gjafmildir, félagslyndir og skemmtilegir. Í hverjum mánuði hittast prjónarar og prjóna saman víðsvegar um bæinn, prjónakaffifundirnir spretta upp og nú þegar er komið sumar er um að gera að verða enn sýnilegri og PRJÓNA ÚTI. Verum sýnileg og deilum þessum frábæra lífstíl með öðrum. … halda áfram að lesa Skundum út!

Prjón og laxveiði-gestapistill eftir Ragnheiði Eiríksdóttur

Wednesday, May 27th, 2009

Prjónaneti hefur borist skemmtilegur liðsauki: Ragnheiður Eiríksdóttir, einn höfundur bókarinnar Prjóniprjón skrifar skemmtilega pistla um prjón og hér kemur sá fyrsti. Njótið vel kæru prjónarar

PRJóN OG LAXVEIÐI eftir Ragnheiði Eiríksdóttur

Ég var að hlusta á hinn stórskemmtilega Gunnar Bender í morgun dásama stangveiði, laxfiska og ár, eins og honum einum er lagið. Leiddi þá hugann að prjóni, eins og ég geri svo ótaloft á dag, og það kveikt hjá mér pælingar:

Hvað ætli margir prjóni á Íslandi?
Hversu margir ætli skipuleggi sumarleyfi sitt kringum prjón að einhverju leyti? - t.d. með heimsóknum í ullarsetur, ullarvinnslur, handverkshús, handverkssýningar, þátttöku á námskeiðum… og svo víðere.
Ætli það væri hægt að setja ánægju og áhugamælikvarða á prjón?
Hvað með hugarró - sjálfsstyrkingarþáttinn - jákvæða andrúmsloftið - notkun á gæðum landsins - samveru og samskipti sem fylgja prjóni?
Hvers vegna verða prjónarar svona miklir prjónatrúboðar?
Hvers vegna ekki prjónahorn í útvarpi? … halda áfram að lesa Prjón og laxveiði-gestapistill eftir Ragnheiði Eiríksdóttur

Kóralína-Coraline

Wednesday, May 27th, 2009

Bókin Kóralína kom út fyrir nokkrum árum í íslenskri þýðingu en hún er heftir Neil Gaiman. Í myndinni skartar Kóralína undurfögrum handprjónuðum flíkum. Althea Crome er sú sem prjónar peysurnar og eru þær svo litlar að einungis 2 fingur komast í búkinn. Í þessu myndbandi er hægt að sjá viðtal við Altheu og sjá hvernig hún býr til peysurnar. Munstrin með stjörnunum eru mitt uppáhald. Mig langar í svona stjörnupeysu og þá er ekki seinna vænna en að leyfa sér að fyllast innblæstri og búa til sitt eigið stjörnumunstur.

Wool and the gang - kúl prjónasíða

Wednesday, May 27th, 2009

Vá, svo kúl að maður verður hreinlega óttaslegin. Þessi síða er ótrúlega smart og tískuleg á einhvern hátt. Skemmtilegar vídjóleiðbeiningar, ofurflottar myndir og skemmtileg nálgun á prjónamenningu. Wool and the gang

Súperhetjuprjón

Wednesday, May 27th, 2009

Tékkið á þessari síðu en hún er um teiknimyndasögublað sem heitir Handknit Heroes. Góð leið til að gera prjón töff og kúl fyrir unglinga! http://www.comicknits.com/

Prjónað úti 2009

Monday, May 18th, 2009

Prjónað úti 21.júní 2009                                                       

International knit in public day 2009

 

Kæru máttarstólpar íslenskrar prjónamenningar!


Nú fer senn að líða að helstu fagnaðarhátíð prjónara um heim allan, nefnilega Prjónum úti deginum. Dagurinn í fyrra var mjög eftirminnilegur og vakti verðskuldaða athygli fjölmiðla. Í ár erum við reynslunni ríkari og stefnt er að því að haldið verði upp á daginn um land allt.

 

Til stendur að halda upp á hinn alþjóðlega “prjónum úti” daginn þann 21.júní n.k. í Norræna húsinu. Norræna húsið hefur haft það að leiðarljósi að miðla norrænni menningu og prjónið er að sönnu stór hluti af okkar sameiginlega menningararfi.

 

Hægt verður að dreifa sér í kringum húsið, í brekkunum, með prjóna,  nesti og tilheyrandi og ef veður verður okkur í mót má alltaf hverfa inn í hús.

 

Í ár langar okkur til að setja á koppinn einn allsherjar prjónamarkað þar sem prjónabúðum og framleiðendum býðst að bjóða garn til sölu á góðu verði. Einnig verða prjónarar með skiptimarkað á einstökum hnyklum eða prjónabúnaði á teppum sínum. Aðrar prjónatengdar uppákomur verða á staðnum en þær verða kynntar nánar þegar nær dregur.  

Við treystum á að þið, máttarstólpar prjónaheimsins styðjið við daginn með bæði þáttöku sem og upplýsingamiðlun á póstlistum. 

Þó hátíðarhöldin séu að þessu sinni í Norræna húsinu þá byrjar dagurinn með táknrænni prjónaskrúðgöngu frá laugavegi að Norræna húsinu og verður leiðin vörðuð með prjónahólkum sem prjónarar eru hvattir til að prjóna og skreyta bæði leiðina og sitt nánasta umhverfi.

 

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt og óskum hér með eftir viðbrögðum ykkar, tilkynningum um þátttöku og/eða hugmyndum að fleiri dagskrárliðum.  

Með kærri prjónakveðju,

Ilmur -www.prjona.net

Ragga - www.lesprjon.blogspot.com/www.prjoniprjon.blogspot.com   

 

 

 

 

Fyrsti prjónahólkur sumarsins

Saturday, May 2nd, 2009

Hér á síðunni hafa prjónahólkar komið nokkuð við sögu og má margt gott um þá segja. Skemmtilegast er þó að framkvæma og í dag var saumaður hólkur utan um rennu við garnbúðina, Nálina, við Laugaveg. Hólkur þessi er úr yndislega gervilegu acrylgarni, sem hentar mjög vel í hólka, og gekk vel að sauma hann utan um rennuna. Ég hvet ykkur prjónara til þess að fitja upp á hólkum og fegra þannig umhverfi ykkar og um leið vekja athygli á prjóni í nýju samhengi. … halda áfram að lesa Fyrsti prjónahólkur sumarsins

Alpakka sjal

Saturday, May 2nd, 2009

Í morgun skellti ég mér í Nálina á prjónakaffi. Þar var fríður hópur prjónara sem fékk verðskuldaða athygli túrista. Ég hugsa að það líði ekki að löngu fyrr en íslendingar verði þekktir ekki bara sem víkingar heldur einnig sem félagslyndir prjónarar.

Í Nálinni var margt af gómsætu garni og gat ég varla tekið hendurnar af mjúku alpakka garni. Ég var hins vegar ekki viss um hvað nákvæmlega ég gæti prjónað úr því svo ég fór á Ravelry, prjónamentor minn, og fann þar uppskrift um leið. Ég leitaði í patterns af shawl og svo innan þeirrar leitar af alpakka og upp komu sjöl úr alpakka.

Ég ætla að prjóna þetta hér: Swallowtail shawl

Prjónanet svarar fyrirspurnum

Saturday, May 2nd, 2009

Síðan Prjónanet stofnaði aðdáendasíðu á Fésbók hafa fjölmargar fyrirspurnir borist á vegg aðdáendasíðunnar. Þetta þykir Prjónaneti skemmtilegt og mun leggja sig fram við að svara sem flestum fyrirspurnum skýrt og skilmerkilega. Annars eru aðrir sem hafa svörin hvattir til að skrifa þá á vegginn. 

… halda áfram að lesa Prjónanet svarar fyrirspurnum