Ný íslensk uppskrift

Tuesday, June 23rd, 2009

Í dag keypti ég æðislegt einbandsgarn í fallegum fjólubláum lit. Ég er fyrir löngu fallin kylliflöt fyrir einbandi og er mjög hrifin af þessum nýju litum. Mér fannst ég vera rosalega flippuð að kaupa plómufjólubláa garnið; Fannst ég vera færa mig út “comfort zóninu” þar til ég kom heim og sá að helmingurinn af fataskápnum er fjólublár (hinn helmingurinn er grænn). 

 

Ég hugsa að ég prjóni mér aðra Miðju úr einbandinu en kannski ég nota afganginn í þennan sæta skokk sem vann Prjóniprjón uppskriftasamkeppni. Húrra fyrir nýjum íslenskum prjónauppskriftum! Hér er blogg prjónakonunnar sem á heiðurinn af þessari fínu uppskrift. Tékkið á!

Prjónum úti á morgun

Saturday, June 20th, 2009

Jæja á morgun er stóri dagurinn hér í Reykjavík og víðar á landinu, s.s. Akureyri. Ég var að klára 4 prjónahólka sem ég set upp á morgun víðsvegar á milli Norræna hússins og Nálarinnar. Ég kom einmitt við í Nálinni í dag og afhenti Baby Surprise peysuna sem ég prjónaði síðasta sumar. Nú hangir hún úti í glugga ásamt öðrum fögrum peysum. Þessi uppskrift er auðvitað bara snilld og hvet ég alla prjónara til þess að prufa uppskriftina. 

Dagurinn á morgun er ekki flókinn. “Dagskráin” byrjar í Nálinni en þaðan ætlum við að ganga upp í Norræna hús með prjónana á lofti. Þegar þangað er komið er hægt að tilla sér niður annað hvort í grasið með teppi og sínar eigin veitingar eða setjast á Gróðurkaffihúsið sem er fyrir utan Norræna húsið. Þar er bæði hægt að sitja úti og inni. 

Þetta verður án efa skemmtileg samkoma og ég hlakka til að sjá hvað allir eru með á prjónunum. Hvað varðar bútaverkefnið að þá er það líka mjög einfalt. 

1. Prjónið bút, alveg sama hvernig garn og hvaða stærð þeir eru í en gott er að vita úr hvaða garni þeir eru svo hægt sé að raða samsvarandi bútum saman í teppi. 

2. Komið með garn sem þið viljið gefa og verður notað til að prjóna búta úr. Garninu verður safnað saman og komið fyrir í körfum á kaffihúsum og prjónabúðum. þar geta þá gestir og gangandi prjónað búta eða bara nokkrar umferðir í bút. 

3. Sendið bútana til mín á heimilisfangið: Eskihlíð 22, 105 Reykjavík. Ég sé um að taka myndir af öllum bútum sem koma og birta hér á síðunni. Einnig safna ég saman bútum sem prjónaðir eru á kaffihúsum. 

Ég efast ekki um að þátttakan verði góð því prjónarar eru gjafmildir að upplagi. Þegar nægt efni er komið í slatta af teppum höldum við uppboð og gefum ágóðan til góðs málefnis. Ok. Allir með!?

Sjáumst á morgun í prjónastuði!

Heitt á prjónunum- á Ísafirði

Monday, June 15th, 2009

Nýtt prjónakaffihús hefur opnað og heitir því bráðskemmtilega nafni: Heitt á prjónunum. Það er að finna á Ísafirði en þangað er ég einmitt að fara  í sumar/haust. Geri mér að sjálfsögðu fer á Heitt á prjónunum og fæ mér kaffi og kíki á garnið. Til hamingju með þetta Ísfirðingar. 

Nammi og annað góðgæti úr prjónaheiminum

Saturday, June 13th, 2009

 

Ég er með í höndunum sjúklega girnilegt garn beint frá prjónaranum Röggu Eiríks en hún er nú komin með nýja garnlínu sem hún nefnir Nammi og er sú nafngift vel viðeigandi þar sem litirnir eru hver öðrum girnilegri. Mitt garn er bleikt eins og bleikur á að vera, skærskær skærbleikur og ætla ég að prjóna hyrnuuppskriftina sem fylgir með í “Nammipokanum”. … halda áfram að lesa Nammi og annað góðgæti úr prjónaheiminum

Japanskt prjón

Friday, June 12th, 2009

Við undirbúninginn á 101 Tokyo: Snerting við Japan fór ég að forvitnast um japönsk prjónamunstur og fann þá þessa síðu, hún er ÆÐI!