Stitchwars… a long stitch ago..

Sunday, July 26th, 2009

Þetta ætti að gleðja alla aðdáendur Star Wars og prjóni út fyrir rammann. Ég tek þetta bara beint af síðunni án þess að þýða þar sem orðaleikirnir eru svo skemmtilegir. A long stitch ago.l.hahha

A long stitch ago in a Gallery not so far, far away, an alliance of crafty rebel artists was formed to honor the epic fantasy world of Star Wars. Wielding mighty tools of knitting and crochet, cutting through the great expanse of felt, these daring individuals used their handmade patterns of survival to restore freedom to the galaxy. Beginning July 18th, their Jedi mind tricks will bedazzle you and sway your thoughts to the Dark side of the Art World. May their farce be with you.

A group art exhibition featuring amazing handmade goods inspired by the most fabulous space fantasy ever made! The exhibition is being held at Bear and Bird Boutique+Gallery in South Florida.

“Knitfreaks and newbies”

Saturday, July 25th, 2009

Muchis.se er frábær sænsk síða fyrir prjónabrálæðinga og nýgræðinga. Pia í vinnunni benti mér á þessa og er ég yfir mig hrifin. Þessi síða er ofursvöl, flott hönnuð og prjónið girnilegt. Myndirnar eru fylla mig miklum innblástri og ég mæli með blogginu þeirra líka.

Prjónað á þjóðvegi 1

Wednesday, July 15th, 2009

Ég er nýkomin úr fyrstu maraþonútilegu ársins en hún stóð yfir í 9 nætur og gekk ljómandi vel. Að sjálfsögðu voru prjónarnir með för og prjónaði ég nú í fyrsta skipti í bíl en það gekk einnig vel. Ég er að prjóna “Frjáls” e. Védísi Jónsdóttur úr heftinu Einband í einum af nýja guðdómlega litnum frá Ístex. Ég hélt að það væri vonlaust að prjóna gataprjónsstykki svona á malarvegum Íslands en það gekk eins og í sögu og ég er komin ágætlega áleiðis.

Eins og gengur og gerist stoppar maður í hinum ýmsu sjoppum á ferð um landið og var það gaman að sjá að hægt er að kaupa garn á ótrúlegstu stöðum t.d. í Flókalundi en þar er einnig hægt að kaupa járnvörur og nammi á sama stað. Laglegt úrval það!

Ég kom við á kaffihúsinu, Heitt á prjónunum, á Ísafirði. Það er frábært framtak og er úrvalið af garni mjög gott og ég sá fullt af flottum uppskriftaheftum og bókum.

EInnig stoppaði ég í dásamlega kaffihúsinu, Simbahöllin, á Þingeyri en það er frábært til þess að prjóna í og mæli ég með græna sófasettinu til þess. Þetta er kaffihús er með þeim fallegri sem ég hef heimsótt og frábær viðbót við Vestfirðina.

Prjónakörfur prjónað til góðs

Wednesday, July 15th, 2009

Prjónað til góðs 2009 fer vel af stað. Núna eru körfur á Kaffi Hvönn, Norræna húsinu, og Kaffitári, Þjóðminjasafninu. Þeir sem vilja fá körfu á kaffihúsið sitt geta haft samband við mig en einnig ætti að vera auðvelt að snapa að sér garni og nokkrum prjónum og hvetja fólk til að prjóna. Einnig er hægt að prjóna bút heima hjá sér og senda mér eða niður í Nálina, laugavegi.

Prjónað til góðs 2009

Friday, July 3rd, 2009

Prjónað til góðs verkefnið byrjaði á “prjónum úti” daginn sl. og safnaðist þá heilmikið garn. Nú eru komnar prjónakörfur í Gróður-kaffi-húsið fyrir utan Norræna húsið og á Kaffi Tár í Þjóðminjasafninu, fleiri körfur munu dúkka upp síðar. Ég hvet alla til þess að koma upp prjónakörfum á sínu kaffihúsi, sama hvort þið eruð fastakúnnar eða kaffihúsaeigendur. Ég sé síðan um að safna bútum og það er líka hægt að senda þá í Nálina, en verkefnið gengur einmitt út á að prjóna bútasaumsteppi.

Þetta er auðvelt verkefni að taka þátt í:

1. Gefðu garn

2. Gefðu prjóna

3. Gefðu prjónaskap

Teppin sem til verða úr bútunum verða síðan saumuð saman og seld í desember, gjafamánuðinum mikla.

Allur ágóði fer til góðgerðamála.

Gaman væri ef þið sem senduð mynduð senda upplýsingar um ykkur sjálf með.

Þið sem komið ykkur sjálf upp körfu getið prentað út þessar leiðbeiningar.=> leic3b0beiningar_prjonac3b0-til-goc3b0s