Stroffhugmyndir?

Monday, August 31st, 2009

Þar sem bleikur hraði er að verða búin og næsta peysa væntanleg á prjónana að þá auglýsi ég eftir hugmyndum að stroffi-er einhver svo flippaður að kunna eitthvað annað en slétt og brugðið stroff?

Prjónasögur

Sunday, August 30th, 2009

Stundum hefur verið sagt um lopapeysuprjón að það sé eins og þjóðsaga. Ég heyrði þessa kenningu í kringum umræðu um höfundarrétt og í merkingunni að prjónurum þætti ekkert tiltökumál að segja sögu annarra að uppskriftir sem ætlaðar eru til kaups eru teknar og saga  berst um allt og öðlast í raun sjálfstætt líf. Lopapeysuprjón er líka þjóðsaga fyrir mér í þeim skilningi að lengi vel var það það eina sem ég tengdi prjóni: Lopapeysumunstur og lopi. … halda áfram að lesa Prjónasögur

Prjónað í veikindum

Friday, August 21st, 2009

Eins og fram kemur í athugasemdunum hér í færslunni fyrir neðan að þá reyna margir prjónarar að prjóna þegar auður tími gefst t.d. þegar hrært er í pottum. Einnig prjóna margir í millirýminu sem kemur þegar við erum að bíða.

Bíða eftir strætó, lækninum og matnum svo eitthvað sé nefnt.  Margir prjóna og gera eitthvað annað á meðan eisn og að hlusta á fyrirlestur, útvarpið eða horfa á sjónvarpið.

Enn aðrir prjóna sig úr veikindum. Veikindi þýða að maður er fastur á einhverjum stað og getur hugsanlega gert lítið annað en að láta sér batna. Oft er maður samt svo hundveikur að maður getur ekki prjóna-en þá ermaður líka HUNDVEIKUR.

En mér finnst oft gott að prjóna þegar ég er að brjóta heilan um eitthvað, prjónið í flæði sínu og endurtekningu hreinsar hugann og hjálpar manni að komast að niðurstöðu eða kafa dýpra undir yfirborðið. Svo er fyndið hvernig hugsanirnar festast í lykkjunum. Ég get horft á eitt verkefni og það  kallar fram margar sögur og minningar sem urðu til og voru hluti af tímanum sem það tók að prjóna flíkina.

Prjónareglur prjónarans

Thursday, August 20th, 2009

Eru ekki allir prjónarar með alskonar prjónareglur sem snúast um garninnkaup, uppskriftir og almenna prjónahegðun?

Ég er a.m.k. með fullt af svona reglum-sem ég brýt til hægri og vinstri. 

Regla #1

Ég kaupi alltaf lopa í Handprjónasambandinu á Skólavörðustígnum bæði vegna þess að þar fæ ég alltaf frábæra þjónustu, starfsfólkið viturt og úrvalið meiriháttar. Einnig hef ég heyrt að þar sé ódýrasti léttlopinn kr. 230 dokkan. 

Regla #2

Það má kaupa dýrt garn í lítil verkefni. Ég má ekki kaupa dýrt garn í stærri flíkur eins og peysur en reyndar braut ég regluna þegar ég gerði gulu “boob” peysuna eftir Debbie Bliss. Dýrt garn vill gefa óbragð í munninn og ég hef það ekki í mér að eyða fleiri þúsund köllum í peysu. En í sjöl, stroff, kanta og annað dúllerí er gaman að slá um sig með t.d. Noro eða alpakka. 

Dýr verkefni eru t.d. silkitrefill, sem ég prjónaði úr Debbie Bliss silki og Kid Silk Haze, og Clapotis úr NORO en hann fékk ég reyndar í afmælisgjöf (inneign). Bæði þessi dýru verkefni voru dásamleg á prjónunum og algjört konfekt. 

Regla #3

Þetta er ný regla og fengin af reynslunni: Aldrei kaupa prjóna úr við eins og birki, rósarvið eða bambus. Þeir stinga mann í puttana og brotna þegar ástvinir manns hoppa á prjónaverkefnin manns eða sætir hvolpar smakka á þeim. Þeir eru hreinlega ekki fjölskylduvænir-sérstaklega ekki þegar prjónarinn er með verkefnin út um alla stofu :).

Regla #4

Byrjaðu á nýju verkefni þegar hitt er orðið þreytandi. Einu sinni var ég “eitt verkefni í einu” prjónari enda hef ég alltaf viljað vera skipulögð en ég er það bara ekki. Það stríðir gegn eðli mínu að vera bara með eitt í einu. Ef  Þegar mér finnst verkefnið vera orðið leiðingjarnt að þá er allra allra best að fitja upp á nýju í stað þess að engjast um vegna þess að mójóið fyrir einhverju verkefni er ekki til staðar. Best að nýta þannig tíma í nýtt og ferskt verkefni. Sniðugt getur verið að láta verkefni fara í kapp og athuga hvað vinnur-dáldið eins og að tefla við sjálfan sig…

Regla # 5

Ekki stela höfundarverki annarra. Ég myndi aldrei fara inn í verslun og telja munstrið í FM peysum eða færeysku peysunum eftir Guðrún og Guðrún. Þær eru yndislega fallegar og töff en ég hlýt að geta prjónað eitthvað jafn fínt sjálf eftir einu af þeim skriljón munstrum sem búin eru til til þess að selja í garnbúðum. Svo skil ég reyndar ekki af hverju allir vilja eiga eins peysur…why? 

Regla #6

Ekki prjóna og drekka samtímis-það er ekki farsællt.

Jæja ég á fullt af fleiri reglum en er hrædd um að virka frekar undarlegur prjónari ef ég hleypi þeim öllum út í dagsljósið-en þið eigið þið prjónareglur?

Prjón á Menningarnótt

Thursday, August 20th, 2009

Á menningarnótt í fyrra var ég með verkefnið Prjónað til góðs fyrir krabbameinsfélagið. Ég seldi m.a. “ég prjóna” merkin við það tilefni og vikurnar á eftir og náði að safna u.þ.b 200.000 kr. 

Í ár á er ýmislegt prjóntengt á menningarnótt og þá helst í garnverslunum eins og Storkinum og Nálinni. Ég hvet ykkur til að kíkja þangað. Einnig er hægt að taka prjónana með út á lífið og taka nokkrar lykkjur hér og þar. Prjónið er svo sannarlega menning til að flagga!

 

Góða skemmtun á menningarnótt

Bleikur hraði

Sunday, August 16th, 2009

Á prjónunum er bleikur hraði. Ég fór í Handprjónasambandið í gær og keypti einband fyrir 1500 kr og fitjaði upp á peysunni Hraða úr einbandsheftinu. Ég ákvað að nota prjóna nr. 4,5 því mér fannst eibandið koma svo vel út þannig í Frjáls. Ég er búin að fitja upp á um 180 lykkjur og byrjaði með kitten mohair en bara í uppfitina. Síðan tekur við litur 9171. Ég hef verið að skima eftir innblæstri af netinu og má segja að ég hafi þessar flórur í huga þegar ég er að prjóna:

… halda áfram að lesa Bleikur hraði

Barnateppi/Prjónað fyrir minni máttar

Friday, August 14th, 2009

Nú eru komnir svo margir bútar uppi í Norræna húsi fyrir “Prjónað til góðs 2009″ að hægt er að byrja að sauma saman í fyrsta teppið.

Það á eftir að vera gaman að raða saman bútunum sem eru í öllum stærðum og prjónfestum, -margar hendur vinna einnig fallegt verk.

Sniðugt getur verið fyrir saumaklúbba og aðra prjónahópa að hjálpast að við að búa til teppi og skemmt sér saman yfir að raða saman í persónuleg teppi. Ég mæli með með myndinni How to make an American Quilt í þessu samhengi.

Gaman væri að fá að heyra í saumaklúbbum sem vilja vera með í þessu gefandi og skemmtilega verkefni.

Innblástur vikunnar: danskur prjónahönnuður

Sunday, August 9th, 2009


Á flakki um Ravelry rakst á Sanne b og uppskriftirnar hennar sem hún selur á netinu. Hún er með æðislegar uppskriftir að gollum, kjólum og vestum á börn og fullorðna  (bara ein flík á fullorðna). Hún notar gataprjón talsvert og mér sýnist allt vera prjónað með fíngerðu garni og prjónum nr. 3,5. Það er gaman að skoða litasamsetningar hjá henni og er hún því innblástur vikunnar. Hér er bloggið hennar Sanne b

Ég prjóna -barmmerkin

Saturday, August 8th, 2009

Ég prjóna-barmmerkin eru aftur fáanleg. Hægt er að fá þau í miðstærð á 750 kr. Sendið mér línu og ég sendi ykkur merki.

 

(sjá merkið efst á síðunni í stjörnuútgáfu…)

Einbandsástarjátning

Saturday, August 8th, 2009

Ég bara verð að deila því með lesendum mínum hve hrifin ég er af einbandinu. Það er þunnt en ofurhlýtt, auðvelt að prjóna úr því og það verður mjúkt í þvotti. Algjör snilld. Ég var að ljúka við “Frjáls” og næst á döfinni er hefðbundinn skakki með Ístex einbandi og Namminu hennar Röggu Eiríks prjóniprjónkonu.

 

Léttlopinn á jú líka skilið smá kjass og knús. Ég er að prjóna lopakjólinn “Keðju” á dóttur mína og finnst mér ótrúlega gaman að virða fyrir mér litbrigðin í bandinu. Já, ég elska líka léttlopann. 

ástástást