Tíðindi af prjóni
Monday, September 28th, 2009Prjónatíðindin hrannast upp svo langt er liðið síðan ég skrifaði hér síðast.
- Ég fór á frábæra garnkynningu um daginn á vegum www.garnbudin.is og keypti mér steingrátt og mjúkan appelsínugulan í Merino mjúkheitum. Úr þessu hef ég prjónað Hello New York set af Pickles síðunni. Útkoman er dásamleg. Ég á nóg eftir í eina húfu í viðbót. Set inn myndir á Ravelry við tækifæri. Myndavél og tölva eru ekki að tala saman eins og er.
- Ég kom auga á flottan prjónahólk í undirgöngunum við klambratún. Þetta er hressilegur hólkur með perlum á. Meira svona!
- Ég klökknaði þegar ég las Bændablaðið um daginn og sá að ÍSTEX hefur fjórfaldað sölu á prjónaheftum sínum. Dásamlegt hve margir eru að sjá ljósið í prjóninu.
- Búin með 1 jólagjöf
- Fletti í skemmtilegu uppskriftahefti Ysoldu sem vinkona fékk af netinu. Nákvæmlega svona síður og fólk sem fékk mig til að fá aftur áhuga á prjóni!
- Ístex hefur sett inn gamlar og góðar uppskriftir á síðuna sína. Þessi gömlu munstur eru ofsalega skemmtileg en ég var einmitt að ná mér í eina gamla fyrir nokkrum vikum í Handprjónasambandinu.
- Prjónarar hittast í Bústaðakirkju og prjóna saman. Því fleiri prjónakaffi, því betra.
- Um daginn fékk ég fulla körfu frá prjónurum á Selfossi sem hafa prjónað til góðs. Einnig veit ég af nokkrum vinnustöðum sem eru farnir að prjóna til góðs. Um að gera fyrir hópa að prjóna einn bút á mann eða tvo og leggja sitt af mörkum. Ég hlakka til að fara að sauma þetta saman.
- Ný bók með uppskriftum að vettlingum hefur verið gefin út. Þetta er frábær bók og er hún komin á jólagjafalistann minn!
Góðar prjónastundir.

