Prjónaperlur - ný prjónabók

Saturday, November 28th, 2009

Jibbý! Prjónabókin Prjónaperlur: Prjónað frá grasrótinni er nú komin út og hefur að geyma urmull uppskrifta. Þetta eru alskonar uppskriftir; allt frá auðveldum húfum yfir í kaðlapeysur. Ég á tvær uppskriftir í bókinni og er ótrúlega stolt yfir að tilheyra þessum fríða hóp prjónaperlna. Hér eru myndir af öllum uppskriftunum í bókinni. Síðan ef þið viljið meira að þá er hér blogg bókarinnar.

Prjónum saman með Ragnheiði

Tuesday, November 24th, 2009

Prjónum saman er nýr DVD kennsludiskur. Þetta er að ég held í fyrsta sinn sem íslenskur prjóna DVD kemur út og því ber að fagna. Það verður svo gert í Norræna húsinu í dag kl. 17.00. Þá verða valin atriði sýnd og hægt verður að tryggja sér diskinn á ágætis verði.

Prjónarar! Leggið frá ykkur jólaskrautið, skundið af stað til Norræna hússins og prjónið saman. Jibbý.

Sjónhverfingaprjón 1

Friday, November 6th, 2009

Kragi getur bjargað köldum degi á skrifstofunni og virkað sem hin rúmlegasta peysa þegar þið klæðist jakka eða úlpu við. Kraginn gægist upp úr, hlýjar og vermir. Þessi er 2×2 stroff, fitjað upp á eftir smekk og prjónað eins langt og þið nennið. Þetta er tvöfaldur plötulopi.

IMG_1100

Síðan var ég að leika mér einu sinni:
Prjóna.net

Prjónaæðið í hápunkti?

Friday, November 6th, 2009

Myndin er frá Knit Café í Los Angeles, USA.
Það hefur verið einstaklega skemmtilegt að fylgjast með uppsveiflu prjónsins, oft held ég að hápunktinum séð náð en efast nú um það, held að hápunktinum verði fyrst náð þegar alvöru prjónakaffihús opnar í Reykjavík. Alvöru prjónakaffihús er svo kósý að meira segja þeir sem ekki prjóna vilja hittast þar í kaffi. Alvöru prjónakaffihús er eins og bókakaffi, nema í stað bóka er hip og kúl garn og prjónabækur á boðstólum. Á alvöru prjónakaffihúsi er hægt að kúldrast í sófa með prjónana sína, sötra gæðakaffi og spjalla við aðra prjónarar. Ji hvað mig hlakkar til. Hvenær ætli það opni? Nú ætti prjónabransinn að hafa efnast eitthvað á aukinni garnsölu og getað rúllað upp svona stað með einni hendi, eða hvað? Flókið einfalt.

Rebekkupeysurnar

Friday, November 6th, 2009

…eru rosalega flottar og frumlegar. Ég er hrifin af hve sumar eru snollaðar/litlar og munstrin eru mjög flott.

Hér getið þið skoðað myndir af peysunum á Flickr.

Leggings á börn-brrr það er kalt úti!

Thursday, November 5th, 2009


Vá hvað það er kalt úti! Nú er tími komin til að draga upp gömlu prjónavéla gammósíurnar frá ömmu en ef þið eigið ekki slíkar brækur tiltækar á ykkur eða börnin getið þið prjónað þær sjálf.

Baby leggings
Keep baby warm leggings
Legghlífar frá Never not knitting
kósýbuxur
Norskar gammósíur