woolfest
Saturday, December 19th, 2009Sarah Applebaum
17. júní – 4.júlí 2010
Merkið við í dagatalinu!
Prjón í nýju samhengi í Norræna húsinu.
Norræna húsið mun standa fyrir norrænni prjónahátíð næsta sumar 17/6 – 4/7.
Annars vegar er um að ræða sýningu og hins vegar viðburðadagskrá.
Hátíðin mun fagna prjóni og hekli í öllum sínum margbreytileika. Með hátíðinni viljum við miðla prjóni eins og það birtist í samtímanum
og munu prjónahönnuðir og listamenn heiðra hátíðina með þáttöku sinni.
Sýningin mun standa til 4.júlí en á sýningartímabilinu verða fjölmargir viðburðir á dagskrá s.s. prjónaveisla undir berum himni, smiðjur fyrir börn og fullorðna,
fyrirlestrar, málþing um höfundarrétt í prjónaheiminum, prjónum úti dagurinn og margt margt fleira.
Listræn prjónaveröld verður í sýningarsal Norræna hússins
Tvær virtar listakonur hafa staðfest þátttöku í viðburðinum. Þær verða með verk á sýningunni og taka þátt í dagskrá sömuleiðis.
Þetta eru:
Patricia Waller gerir óvenjuleg heklverk sem blanda saman krútti og hryllingi. Verkin eru kunnugleg en óþægileg á sama tíma.
Patricia er fædd í Chile en býr og starfar í Berlín, Þýskalandi, og hefur tekið þátt í fjölda sýninga þar og annars staðar í Evrópu.
Sarah Applebaum býr og starfar í Kaliforníu, Bandaríkjunum. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga og fengið margar viðurkenningar fyrir list sína.
Í verkum sínum notar hún bæði prjón og hekl og eru þetta litríkar innsetningar og heilir heimar garns. http://www.sarahapplebaum.com/

Patricia Waller
