Fjallabyggðatrefillinn

Sunday, January 31st, 2010

Þetta er dásamlegt verkefni! Samprjón par exelance! Gangi ykkur vel íbúar í Fjallabyggð!

Tekið af vefsíðu Fjallabyggðar:

“Í Fjallabyggð keppist fólk nú við að prjóna. Karlar, konur og börn, innfæddir, aðfluttir og fráfluttir, á öllum aldri hafa tekið upp prjónana og keppast nú við að prjóna 17 km. langan trefil. Ætlunin er að nýta trefillinn til að tengja saman byggðarkjarnana alveg frá miðbæ Siglufjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng inn í miðbæ Ólafsfjarðar við vígslu gangana í lok september nk. þegar göngin verða formlega opnuð.

Hugmyndina að þessu framtaki á Fríða Gylfadóttir listamaður á Siglufirði og hefur hún staðið í ströngu síðustu daga við að koma verkefninu af stað.
Eftir að byggðakjarnarnir hafa verið tengdir saman er ætlunin að búta trefillinn niður í minni trefla, þæfa þá, sauma í þá merki Fjallabyggðar og selja til styrktar góðgerðarmála.

Búið er að setja upp prjóna á helstu samkomustöðum sveitarfélagsins sem hægt verði að grípa í þegar tækifæri gefst. Það má því búast við að prjónað verði á biðstofum heilsugæslunnar, á hárgreiðslustofunum, öllum verslunum, í bakaríinu, í apótekinu, í frímínútum hjá grunnskólunum, á bifreiðaverkstæðum, og kaffistofum út um allt sveitarfélagið. 

Fríða hvetur allt prjónafólk á Siglufirði, Ólafsfirði og um land allt til að sameinast og senda inn búta. Litir, gerð garns eða prjónamunstur skiptir ekki máli, bútarnir þurfa bara að vera 20 cm. breiðir. Vinnustofa Fríðu á Siglufirði verður opin alla mánudaga frá kl. 15-18 í tengslum við verkefnið svo einnig verður hægt að mæta þangað.

Áhugasamir geta haft samband við listamanninn í síma 896-8686, eða sent línu áfrida@frida.is. Auk þess er hægt að senda búta á skrifstofu sveitarfélagsins Gránugötu 24 580 Siglufirði eða Ólafsveg 4 625 Ólafsfirði”

 

Peysan sem var prjónuð föst við prjónavegginn í prjónaherberginu

Friday, January 22nd, 2010

Í bókinni KnitKnit er skemmtileg viðtal og uppskrift eftir listakonuna og hönnuðinn Isobel Berglund. Hún prjónar svo sannarlega út fyrir rammann.

Í bókinni er m.a. hægt að prjóna eftir uppskrift að Jump in the Wall Jumper. Peysa sem er föst við prjónaðann vegg er algjörlega út úr þessum prjónaheimi sem dagsdaglega er í kringum okkur. Isobel er líka með sína eigin fatalínu sem er MEGA kúl en hún er þó gift listinni og vill fyrst og fremst einbeita sér að henni. Húrra fyrir Isobel og prjónaherberginu hennar. Prjónari að mínu skapi, já já.

Námskeið í prjóni og hekli

Friday, January 22nd, 2010

Máttarstólpar prjónaheimsins eru þeir aðilar sem þreytast ekki á því að bera út fagnaðarerindið og kenna okkur hinum listina. Hægt er að sækja sér fróðleik til margra aðila þegar kemur að prjóni. Textílsetrið býður nú upp á skemmtilega námskeiðshelgi-heil helgi í garnheimum, tala um garn, prjón og hekl daginn út og daginn inn er bara svo dásamleg tilhugsun. Einnig eru frábær námskeið reglulega hjá garnverslunum s.s. Storkinum og Nálinni. Heimilisiðnaðarfélagið er líka ómissandi með bæði prjónakaffin í Kópavogi og svo öll námskeiðin. Svo er um að gera að fylgjast með Knitting Iceland á Facebook. Þar er margt að krauma.

Rauði þráðurinn í lífinu

Monday, January 18th, 2010

er auðvitað prjónið. Ekki spurning. Rauði þráðurinn er leiðarhnoðið sem tosar okkur áfram lykkju eftir lykkju, verkefni eftir verkefni.

Janúar er dásamlegur vegna þess að þá er kalt og kalt þýðir að maður getur bólstrað sig inni í ull. Ég veit fátt betra en að vera með prjónaða húfu, trefil, vettlinga, sjal og í peysu og jafnvel prjónapilsi samtímis í skítakulda. Núna er ég mikið að spá í að prjóna rúmteppi-það er örugglega frábært verkefni fyrir prjónara sem vantar í raun ekki neitt en getur ekki hætt að prjóna. Hvað ætli maður gæti prjónað stórt prjónles? Hmm ég sé mig fyrir mér í sófanum með rosalega langa prjóna og prjónlesið flæðandi um alla stofu og út á gang.

Eins og allir prjónarar ættu að vita að þá er á döfinni stór prjóna (og hekl) hátíð í Norræna húsinu í sumar. Hátíðin hefst 17.júní með hátíðarhöldum og svo hefst megaprjónaviðburðahelgi með fullt af skemmtilegum fyrirlestrum, smiðjum og gjörningum. Nú þegar hafa Sarah Applebaum og Patricia Waller samþykkt þátttöku og nú síðast bættist í hópinn teymið á bak við www.pickles.no. Þær ætla að vera með smiðju í sínum anda. Haldið ykkur fast og merkið við dagana. Ég veit að ég er að fuðra upp af tilhlökkun því ég veit að þetta verður eitthvað alveg einstakt!

Prjónatilraunir-Slip Stitch Mosaic

Sunday, January 3rd, 2010

Slip Stitch Mosaic

Gleðilegt ár kæru prjónarar.

Árið sem var að líða var magnað fyrir okkur prjónelskandi manneskjur. Ég reikna með að met hafi verið sett í útgáfu á íslenskum prjónabókum. Það er bara frábært. Árið sem nú er að ganga í garð mun þó toppa síðasta ár, þetta verður bara betra og betra. Í sumar verður haldin heljarinnar prjónahátíð með margvíslegum viðburðum. Ekki er komið opinbert nafn á herlegheitin en í huganum kalla ég þetta prjónapartý-sem þetta verður.

Vonandi var margt garntengt í pökkunum  ykkar í ár. Ég var svo heppin að fá þrjár frábærar bækur. Ég fékk Kúr & Lúr frá móður minni (hún er með uppskrift í bókinni) og svo fékk ég tvær munsturbiblíur úr Storkinum (elska litaúrvalið þeirra í garni, dásamlegt að koma þangað). Ég ætla að birta tilraunir mínar upp úr bókunum hér á síðunni og hvet ykkur til að prjóna ykkur út í hið villta og hleypa nýjungum í prjóni inn í ykkar framleiðslu. Fyrsta prufan heitir Slip Stitch Mosaic og elska ég útkomuna. Þetta er úr baby ull (fæst m.a. í Storkinum). Svona munstur er heppilegt í grifflur, húfur, HÓLKA, legghlífar og þessa prufu ætla ég að nota í hulstur um gemmsann minn. Einu vankantarnir á þessari prufu sem ég gerði eru að hún teygist ekki vel og er frekar stíf. Ég þvoði hana og pressaði og þá sléttist aðeins úr henni en hún leit afkárlega út áður en ég gerði það.
Slip Stitch Mosaic