prjón með áferð

Sunday, November 28th, 2010

á prjónunum eru legghlífar. Úr Jaeger garni 4 ply. Ég ákvað að finna eitthvað áferðarmunstur úr munsturbiblíunni. “plain diamonds” urðu fyrir valinu. Hlakka til að vera  búin með þær.

Hér er mynd af Plain Diamonds eða “bara svona demantar” eins og ég kalla það.

Hattar

Tuesday, November 16th, 2010

MMM ekki húfur, heldur hattar….setjið endilega slóðir á fríar uppskriftir ef þið finnið…er að leita.

Prjónuð slaufa á herrann

Monday, November 15th, 2010

Slaufur eru skemmtilega sparilegar og eitthvað svo hlýlegar. Hér koma skemmtilegar myndir af slaufum og troðningur að einni ókeypis uppskrift. Skemmtilegt hvernig gamli barnatrefillinn verður að myndarlegri slaufu fyrir dömuna. … halda áfram að lesa Prjónuð slaufa á herrann

Komin aftur!

Monday, November 15th, 2010

Vá hvað það er leiðinlegt þegar blogg deyja. Í alvörunni.

Prjónari venur komur sínar á prjónanet. Verður glöð í hvert sinn vegna alls þess skemmtilega efnis sem þar er að finna. Færslurnar flæða, hugmyndir hífa prjónarann upp úr doðanum og innblásturinn verður að ráðlögðum dagskammti.

Og svo þornar uppsprettan upp og ekkert heyrist í 6 mánuði!

Ég biðst forláts.

Nú verður breyting á.

Ég er mætt aftur.

Innblástur dagsins eru dúskar og akkeri. Ég er dottin í fína prjóna og fíngert garn. Fæ ekki nóg af því að prjóna útprjónsvettlinga og sokka á la vintage.

Gjörið svo vel, sjáumst á morgun!

Akkeri:

Ég er sjúk í akkeri. Ætla að prjóna þetta í sokka, trefla, húfur allan hringinn og svo framvegis.

Sokkar:

Þessi bók er YNDISLEG. Er búin með Shell Sock og hnésokkana. Þunnir og fara kuldanum vel.

Dúskar:

Vá hver elskar ekki dúska? Er að spá í löngum mjóum trefli með dúskum allan hringinn eða á sokkana sem ég ætla að prjóna næst, eða á spöng, eða á töskur, lyklakippur…eða…

Lærið þetta ókeypis á netinu:
Vídjó um pom pom

jeijeijei