Er fengitímiprjónanets árlegur, eða hvað? Síðasta færsla sölnuð og rykfallin full af máttvana yfirlýsingum. Jæja þessi færsla er hér sjálfrar sín vegna, hver veit hvenær framhaldið kemur, látum okkur sjá.
Prjóna.net er vettvangur innblásturs þar sem þráðurinn er í aðalhlutverki. Hér er ekki gefið að uppskriftir fylgi öllum færslum né að höfundur geti veitt almenn prjónaráð. Prjóna.net mælir með almennum námskeiðum til þess að ná tökum á listinni og svo komið þið hingað til að sjá eitthvað hressandi, gefandi, nýtt eða gamalt.
Og hvað er ég að gera eiginlega?
Síðastliðið ár keypti ég 5 dokkur af garni. Eftir að hafa sankað að mér heilmiklu garni síðstu ár ákvað ég að nú skyldi unnið á birgðunum.
Ég viðurkenni að ég hef verið í samfélagslegri prjónalægð og ekki verið mikið að taka myndir af prjóni og deila með ykkur. Nú verður bragarbót á-úbs engar yfirlýsingar…sjáum bara til.
Á prjónunum er núna einbandspeysan faðmur. Tvisvar hef ég byrjað á peysunni, í fyrra skiptið átti hún að vera blá, en sú peysa varð að bláum hraða kjólpeysu. Núna er það bara beisikk-beint úr bókinni og engar krúsídúllur. Engin mynd enn sem komið er.
Þetta heillar mig núna:
Þetta eru Arne og Carlos: Prjónandi kærustupar frá Noregi. Þeir eru ÆÐI. Voru á kafi í tískunni en fóru svo að prjóna jólaskraut og dúkkur. Ég veit að margir prjónarar kannast við þá, ég er bara nýbúin að uppgvötva þá.
VELKOMIN Á PRJONA.NET - upplýsingatorg prjónara.
Hér getið þið fylgst með öllu því sem er að gerast í heimi prjónsins á Íslandi sem og á netinu. Prjona.net mun leiða ykkur af stað inn í ranghala prjónamenningarinnar á netinu, fylla ykkur innblæstri og svala fróðleiksfýsn ykkar um prjón. Prjona.net mun sérstaklega leggja áherslu á prjónaviðburði svo ef þið eruð með eitthvað á döfinni sendið mér þá línu á ilmur(hjá)prjona.net.