«Prjónaðar bleiubuxur                                        Prjónið vinsælt á okkar tímum»

Að þæfa prjónles

Uppskrift að töskunni hér að ofan er hér. (Það þarf að skrá sig til að fá uppskriftir á þessari síðu).

Það er gaman að þæfa og mjög spennandi ferli. Mér finnst ótrúlega gaman að prjóna eitthvað úr þykku garni á stóra prjóna (árangurinn kemur strax) henda því inn í þvottavél og út kemur eitthvað allt öðruvísi.

 Án þess að ég hafi gert á því vísindalega könnun að þá er víst mismunandi eftir þvottavélum hvernig þæfingin tekst, stundum þarf að setja dæmið 2x í vélina. Ég mæli með því að setja það sem á að þæfa inn í koddaver og henda einu handklæði með. Koddaverið kemur í veg fyrir að vélin fyllist af ull sem gæti  orðið dáldið neyðarlegt. Hér eru nokkrar uppskriftir að þæfðu prjónlesi og svo er linkur á videopodcast sem sýnir ferlið

 

Þæfðir pottaleppar
Röndótt taska úr lopa
Taska með bambushöldum (fást í Hagkaup)
Inniskór á börn
Vasi utan um fartölvu með súperkúl Mac-munstri (epli)
Flus utan um prjóna

Að lokum er gott að geta þess að það er allra best að þæfa úr 100% ull og hana er nú svo sannarlega hægt að kaupa hér á landi. 

Tags: , , ,

2 athugasemdir að „Að þæfa prjónles“

  1. solveig friðriksdottir skrifaði:

    Mig langar að vita hvernig eg a að þvo stikki sem eg hef prjonad ur lopa svo það þobni .

    bestu kvedjur fra Sviariki
    Solveig.

  2. Dóra Ingvarsd. skrifaði:

    Ég prjónaði peysu sem ég vil aðeins þétta - hvernig fer ég að?

Skrifaðu athugasemd