Prjóniprjón-ný prjónabók á íslensku!

Uppskriftin að þessari húfu er í bókinni Prjóniprjón eftir Ragnheiði Eiríksdóttur og Halldóru Skarphéðinsdóttur.
Áðan var prjónanet í útgáfuhúllumhæi bókarinnar Prjóniprjón og það verður að segjast að bókin er ansi gómsæt og girnileg. Um er að ræða prjónabók með einföldum uppskriftum og greinagóðum leiðbeiningum. Mér líkar sérstaklega vel við hvatningarandann sem svífur yfir vötnunum en hvatt er til þess að vera ekki of bundin uppskriftunum heldur eigum við að fara okkar eigin leiðir í prjóninu sem og lífinu.
Prjóniprjón er á jólagjafaóskalistanum mínum.

December 6th, 2008 at 12:47 pm
Hlakka til að gæða mér á þessari
Var einmitt rosa hugrökk - prjónaði fetching grifflurnar og heklaði viðbót á handarbakið og á úlnliðinn, svaka ánægð með útkomuna 
May 11th, 2009 at 1:21 pm
Sumarnámskeið í Textílsetrinu
Kvennaskólanum Blönduósi 27. júní til 1. júlí 2009.
Útsaumur og tauþrykk, í samstarfi við Nálina, kennari: Helga Jóna Þórunnardóttir handavinnukennari frá Skals í Danmörku.
Prjóntækni og prjónahönnun, í samstarfi við Ístex, kennari Margrét Linda Gunnlaugsdóttir, hönnuður.
Tálgun, í samstarfi við Skógrækt Ríkisins, kennari: Hrefna Aradóttir handverksmaður.
Ullarknipl, kennari: Ingibjörg Ágústsdóttir úr Faldafeyki, áhugahóps um faldbúninginn.
Baldýring, kennari: Inda Benjamínsdóttir kennari í baldýringu úr Faldafeyki, áhugahóps um faldbúninginn.
Nánar um námskeiðin á heimasíðu http://www.textilsetur.is
Námskeiðin verða haldin í Kvennaskólanum á Blönduósi þar sem í áratugi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílsetur Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu. Að auki er starfrækt Prjónakaffi, handverkshús og námskeið í ýmiss konar handverki. Nýlega hefur verið gengið til samstarfs við Hólaskóla um Háskólasetur í textílfræðum staðsett í Kvennaskólanum Blönduósi.
Nokkurra daga námskeið Textílseturs verða í lotum í júní, október og febrúar á hverju ári. Markmiðið er að bjóða aðstöðu og umhverfi þar sem áhugasamir geta komið saman í 3-5 daga við handíðir og handverk án amsturs hversdagsins. Námskeiðin eru tilvalin til afslöppunar og til að njóta þess að skapa, vinna og læra í samfélagi við aðra með svipuð áhugamál. Nokkur námskeið eru í boði í senn svo vinahópar eða fjölskyldur geta fundið eitthvað við hvers hæfi.
TEXTÍLSETUR ÍSLANDS∙ Kvennaskólanum Árbraut 31 ∙Blönduósi
452 4300 894 9030 textilsetur@simnet.is ∙www.textilsetur.is