«Kaffi Hljómalind í kvöld                                        Ein húfa, eitt kvöld=árangursríkt prjón»

Vefsíða vikunnar

Prjona.neti hlotnaðist sá heiður að vera vefsíða vikunnar í Morgunblaðinu. Umfjöllunin var svona:

” AÐ PRJÓNA yljar á allan hátt. Ekki er aðeins gaman að gera eitthvað með eigin hendi og klæðast því heldur getur félagsskapurinn í kringum það að prjóna einnig yljað sálinni.

Íslenska vefsíðan prjona.net er haldið úti af Ilmi Gísladóttur. Síðan er ætluð sem upplýsingatorg prjónafólks. Þar er hægt að fylgjast með öllu því sem er að gerast í heimi prjónsins á Íslandi og á netinu eins og segir á síðunni. Síðuhaldari er greinilega vel vakandi fyrir því sem er að gerast í prjónaheiminum því prjónafréttirnar eru uppfærðar nánast á hverjum degi. Er þá bæði sagt frá því sem er að gerast hér heima og erlendis. Ekki skemmir fyrir að mikið er af tenglum á aðrar prjónasíður.

Prjónaðar strengjanærbuxur
Fyrir prjónaáhugamanneskju er alveg hægt að gleyma sér í því að skoða það sem er í boði á þessum síðum. Það er ótrúlegt hvað er hægt að prjóna, fyrir utan hefðbundinn ullarfatnað má prjóna tískufatnað t.d strengjanærbuxur, ýmislegt til heimilishaldsins og leikföng svo eitthvað sé nefnt.

Að prjóna hefur alltaf verið vinsælt en ekki er langt síðan það komst í tísku. Í staðinn fyrir að prjóna eitt heima hjá sér eða á löngum fundarsetum, til að varna því að sofna held ég fram, er prjónaáhugafólk nú farið að hittast á opinberum vettvangi. Svokölluð prjónakaffi eru nú haldin reglulega víða um land og hittist fólk þá til að prjóna saman, dást að handverki hvert annars, skiptast á uppskriftum og ræða áhugamál sitt við aðra sem er örugglega mjög gott fyrir geðheilsuna.

Róttækar Prjónalausnir
Hugarró og yfirvegun virðist oft einkenna þá sem prjóna, því kom mér það á óvart að lesa á síðunni að til er aðgerðarhópur prjónaáhugafólks sem kallar sig Prjónalausnir. Hópurinn er friðsamlegur og skapandi og eitt af verkum hans var að setja rauðan garðaprjónshólk á staur við bílastæði forsætisráðherra fyrir utan Stjórnarráðið. Með því vildi hópurinn hvetja ríkisstjórn Íslands og ráðafólk til þess að líta sér nær og nota hugmyndaflugið þegar leitað er lausna við þeim vandamálum sem steðja að þjóðinni.

Prjónafólk er ekki aðeins róttækt heldur er það líka miklir húmoristar en á síðunni má meðal margs annars finna flokkinn prjónahúmor.

Prjóna.net er virkilega skemmtileg síða, lífleg og vel upp sett, og ætti að skemmta fleirum en þeim sem eru að fara að fitja upp.”

Tags: ,

9 athugasemdir að „Vefsíða vikunnar“

  1. Elín Ösp skrifaði:

    Til hamingju með það.

  2. ilmur skrifaði:

    Takk takk frænka.

  3. bjorg þórhallsd skrifaði:

    Til hamingju Ilmur

  4. Hildur Sveins skrifaði:

    Frábært!

    Til hamingju Ilmur!

  5. Ragga Eiriks skrifaði:

    Æðisleg frétt! Enda er vefurinn algjörlega brilljant hjá þér kæra prjónasystir.

  6. Þórunn skrifaði:

    Til lukku :)

  7. Edda skrifaði:

    ..Enda áttu heiður skilinn fyrir þessa síðu, hún er frábær í alla staði.
    kv. Edda

  8. Harpa J skrifaði:

    Til hamingju - en þetta er ekkert nema verðskuldað fyrir þessa frábæru síðu!

  9. Þórunn skrifaði:

    Sammála fyrri skrifurum, þessi síða er bara SNILLD

Skrifaðu athugasemd