«Fyrsti prjónahólkur sumarsins                                        Prjónanet svarar fyrirspurnum»

Alpakka sjal

Í morgun skellti ég mér í Nálina á prjónakaffi. Þar var fríður hópur prjónara sem fékk verðskuldaða athygli túrista. Ég hugsa að það líði ekki að löngu fyrr en íslendingar verði þekktir ekki bara sem víkingar heldur einnig sem félagslyndir prjónarar.

Í Nálinni var margt af gómsætu garni og gat ég varla tekið hendurnar af mjúku alpakka garni. Ég var hins vegar ekki viss um hvað nákvæmlega ég gæti prjónað úr því svo ég fór á Ravelry, prjónamentor minn, og fann þar uppskrift um leið. Ég leitaði í patterns af shawl og svo innan þeirrar leitar af alpakka og upp komu sjöl úr alpakka.

Ég ætla að prjóna þetta hér: Swallowtail shawl

Tags: , ,

2 athugasemdir að „Alpakka sjal“

  1. helene magnusson skrifaði:

    Lítill heimur
    Evelyn Clark á íslenska frænka og hannaði sjál með íslensku gataprjóni i höfuð á henni. Hún ætlar að halda fyrilestrur um íslenska gataprjón )lace-knitting) í Norræna safnið í Seattle í sumar.

  2. Dagný skrifaði:

    Ég prjónaði einmitt þetta sjal í maí í fyrra, það var rosalega gaman. :) Ég notaði nokkuð óhefðbundið garn, Noro Silk Garden Lite sem ég fékk í Storkinum. Það kom alveg frábærlega út og ég hef klæðst því nánast á hverjum degi í vetur!

Skrifaðu athugasemd