«Súperhetjuprjón                                        Fyrsti prjónahólkur sumarsins»

Prjónað úti 2009

Prjónað úti 21.júní 2009                                                       

International knit in public day 2009

 

Kæru máttarstólpar íslenskrar prjónamenningar!


Nú fer senn að líða að helstu fagnaðarhátíð prjónara um heim allan, nefnilega Prjónum úti deginum. Dagurinn í fyrra var mjög eftirminnilegur og vakti verðskuldaða athygli fjölmiðla. Í ár erum við reynslunni ríkari og stefnt er að því að haldið verði upp á daginn um land allt.

 

Til stendur að halda upp á hinn alþjóðlega “prjónum úti” daginn þann 21.júní n.k. í Norræna húsinu. Norræna húsið hefur haft það að leiðarljósi að miðla norrænni menningu og prjónið er að sönnu stór hluti af okkar sameiginlega menningararfi.

 

Hægt verður að dreifa sér í kringum húsið, í brekkunum, með prjóna,  nesti og tilheyrandi og ef veður verður okkur í mót má alltaf hverfa inn í hús.

 

Í ár langar okkur til að setja á koppinn einn allsherjar prjónamarkað þar sem prjónabúðum og framleiðendum býðst að bjóða garn til sölu á góðu verði. Einnig verða prjónarar með skiptimarkað á einstökum hnyklum eða prjónabúnaði á teppum sínum. Aðrar prjónatengdar uppákomur verða á staðnum en þær verða kynntar nánar þegar nær dregur.  

Við treystum á að þið, máttarstólpar prjónaheimsins styðjið við daginn með bæði þáttöku sem og upplýsingamiðlun á póstlistum. 

Þó hátíðarhöldin séu að þessu sinni í Norræna húsinu þá byrjar dagurinn með táknrænni prjónaskrúðgöngu frá laugavegi að Norræna húsinu og verður leiðin vörðuð með prjónahólkum sem prjónarar eru hvattir til að prjóna og skreyta bæði leiðina og sitt nánasta umhverfi.

 

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt og óskum hér með eftir viðbrögðum ykkar, tilkynningum um þátttöku og/eða hugmyndum að fleiri dagskrárliðum.  

Með kærri prjónakveðju,

Ilmur -www.prjona.net

Ragga - www.lesprjon.blogspot.com/www.prjoniprjon.blogspot.com   

 

 

 

 

Tags: , , ,

5 athugasemdir að „Prjónað úti 2009“

  1. Harpa J skrifaði:

    Það verður pottþétt prjónað úti í Vík í Mýrdal. Það er bara ekki alveg búið að ganga frá nákvæmri staðsetningu. Það verða líka einhverjir prjónahólkar - allavega frá mér - og kannski eitthvað fleira skemmtilegt.

  2. Lalla skrifaði:

    Gaman gaman - hlakka til og sendi póst á stelpunrar !!!

  3. Alda skrifaði:

    Prjón á Patró 21. júní frá klukkan 10-22 í Sjóræningjahúsinu. Allir prjónarar á ferðalagi velkomnir.

  4. Hlíf skrifaði:

    Við prjónum úti í Hveragerði 13. og 14. júní frá kl. 14 báða dagana.
    Á laugardaginn prjónum við á grasbala inni á hverasvæðinu við Hveramörk, þar getum við komist í hús ef ekki viðrar vel.
    Á sunnudaginn finnum við okkur góðan stað í skrúðgarðinum okkar til að prjóna á. Við höfum leyfi til að fara inn í grunnskólann ef rignir.
    Allir prjónarar eru velkomnir og tilvalið að fjölskyldan komi með teppi og nesti og eigi notalega stund saman.

  5. Halldóra Sævarsdóttir skrifaði:

    Prjónað í Lystigarðinum á Akureyri sunnudaginn 21. júní frá klukkan 16:00-18:00.Verðum á Grasflötinni við gróðurhúsið. Ef rignir þá verðum við á Punktinum sem er í Rósenborg Skólstíg 2

Skrifaðu athugasemd