«Skundum út!                                        Kóralína-Coraline»

Prjón og laxveiði-gestapistill eftir Ragnheiði Eiríksdóttur

Prjónaneti hefur borist skemmtilegur liðsauki: Ragnheiður Eiríksdóttir, einn höfundur bókarinnar Prjóniprjón skrifar skemmtilega pistla um prjón og hér kemur sá fyrsti. Njótið vel kæru prjónarar

PRJóN OG LAXVEIÐI eftir Ragnheiði Eiríksdóttur

Ég var að hlusta á hinn stórskemmtilega Gunnar Bender í morgun dásama stangveiði, laxfiska og ár, eins og honum einum er lagið. Leiddi þá hugann að prjóni, eins og ég geri svo ótaloft á dag, og það kveikt hjá mér pælingar:

Hvað ætli margir prjóni á Íslandi?
Hversu margir ætli skipuleggi sumarleyfi sitt kringum prjón að einhverju leyti? - t.d. með heimsóknum í ullarsetur, ullarvinnslur, handverkshús, handverkssýningar, þátttöku á námskeiðum… og svo víðere.
Ætli það væri hægt að setja ánægju og áhugamælikvarða á prjón?
Hvað með hugarró - sjálfsstyrkingarþáttinn - jákvæða andrúmsloftið - notkun á gæðum landsins - samveru og samskipti sem fylgja prjóni?
Hvers vegna verða prjónarar svona miklir prjónatrúboðar?
Hvers vegna ekki prjónahorn í útvarpi?

Eftir dulitlar pælingar hér við skrifborðið í vinnunni og grúsk á vef hagstofu hef ég áætlað að um 82.180 íslenskar konur á aldrinum 9-90 ára stundi prjón. Hinar (54.787 talsins) kunna að sjálfsögðu að prjóna en stunda það líklega ekki markvisst - þó svo að vart sé hægt að finna þá konu sem hefur ekki einhvern tíma um ævina prjónað eins og einn skakkan trefil eða sokkapar eða heklað pottalepp. Karlmennirnir okkar læra allir að prjóna í skóla - en einhverntíma eftir 1970, eða svo, fór prjón að þykja kerlingalegt og karlmönnum ekki bjóðandi. Ég átti langafa sem prjónaði alltaf þegar bræla var á miðunum fyrir utan Hofsós - neðangerninga og sokka, og hann var sko með þeim karlmannlegri. Ef með eru taldir Siggi 6 ára vinur minn og prjónari, Patrik sænski ofurprjónari og Þórgnýr Thoroddsen kjörstjórnarprjónari, áætla ég að um 200 karlmenn hérlendis hafi komið út úr skápnum með sitt prjón. Samkvæmt áætlun minni eru því 82.380 Íslendingar virkir prjónarar - um það bil jafn margir og allir veiddir laxfiskar í íslenskum ám árið 2008.

Þess vegna finnst mér gráupplagt að prjónarar fái sitt prjónahorn í útvarpi hið fyrsta.
Til að gefa innsýn í pælinguna enn frekar er hér dulítill listi með áhugaverðum umtalsefnum tengdum prjóni sem mundu henta jafnvel í útvarp sem aðra fjölmiðla:

* Prjón á vegum úti - aðferðir til að fá einhvern annan til að keyra hringinn svo prjónarinn geti prjónað á leiðinni
* Íslenska ullin - hvað er svona spes við hana og hvers vegna þekkja allir prjónanördar heimsins lopa
* Handspuni - hvers vegna þetta vesen þegar hægt er að kaupa sér dokku úti í búð
* Ullarlitun - sama hér, er þetta ekki bara sull og vesen?
* Prjónum úti hátíðin í Norræna húsinu 21. júní og hin prjónandi skrúðganga frá Laugavegi að Norræna húsinu
* Prjón sem slökun
* Prjón og tíminn- bið verður t.d. ekki söm ef prjón er haft um hönd
* Garn og garn - hvers vegna snobba sumir fyrir garni?
* Prjónaaktívismi - mjúk mótmæli og aðgerðir með prjónles að vopni
* Uppskriftir og höfundarréttur í prjóni
* Prjón og sagan okkar - hvaðan kemur lopapeysan?
* Íslenskir prjónahönnuðir
* Ábendingar um prjónasíður á netinu
* Að prjóna úr öðru en garni

… svona gæti ég haldið áfram í allan dag, og alla vikuna ef því er að skipta. Nú bíð ég eftir að fjölmiðill sem er virkilega með puttann á þjóðarpúlsinum stökkvi á hugmyndina og hafi samband.

Ragnheiður Eiríksdóttir er prjónanörd, prjónahönnuður, prjónatrúboði og bókaútgefandi svo fátt eitt sé nefnt

Tags: ,

5 athugasemdir að „Prjón og laxveiði-gestapistill eftir Ragnheiði Eiríksdóttur“

  1. Margrét Árnadóttir skrifaði:

    Takk fyrir skemmtilegan pistil.
    Við erum tvær sem sitjum á Austurvelli í hádeiginu þegar veður leyfir og prjónum. Köllum það að fara í “Rónaprjón”, til heiðurs fastagestunum.
    Okkur til mikillar gleði voru tvær prjónakonur mættar í hópinn í dag.

  2. Harpa J skrifaði:

    Þú labbar þér baraata upp í útvarp (rúv) med det samme og leggur fram þessa stórskostlegu hugmynd. Þú getur skrifað alla pistlana sjálf eða fengið aðra með þér ef þú vilt. Ég býð hér með fram aðstoð mína ef þú þarft.

  3. Ragga E skrifaði:

    Rosalega líst mér vel á rónaprjónið. Ég mæti örugglega von bráðar.
    Harpa - ég er að vinna í Rúv! Auðvitað væri bilun að taka ekki tilboði um samstarf. Við sjáum hvað setur.

  4. Helena Hermundardóttir skrifaði:

    Go stelpur! Þetta er brilljant hugmynd, og nauðsynlegt að koma prjóni út úr skápunum og nota meðbyrinn sem er svo sannarlega fyrir hendi núna. Kveðja, Helena tómatabóndi í Tungunum.

  5. Ilmur skrifaði:

    Rónaprjón er það flottasta sem ég hef heyrt um lengi. En dásamlegt. Kem við fyrsta tækifæri og prjóna með ykkur þar! Prjónum úti í allt sumar kæru prjónarar og breiðum út fagnaðarerindi prjónsins!

Skrifaðu athugasemd