«Heitt á prjónunum- á Ísafirði                                        Japanskt prjón»

Nammi og annað góðgæti úr prjónaheiminum

 

Ég er með í höndunum sjúklega girnilegt garn beint frá prjónaranum Röggu Eiríks en hún er nú komin með nýja garnlínu sem hún nefnir Nammi og er sú nafngift vel viðeigandi þar sem litirnir eru hver öðrum girnilegri. Mitt garn er bleikt eins og bleikur á að vera, skærskær skærbleikur og ætla ég að prjóna hyrnuuppskriftina sem fylgir með í “Nammipokanum”.

Nammi fæst í Nálinu sem einnig er komin með nýja sendingu af prjónabókum eftir einn uppáhalds prjónahönnuð minn-Elizabeth Zimmerman. Gerið ykkur dekurferð í Nálina og kíkið á þessar skemmtilegu nýjungar.

Annað skemmtilegt sem ég vil benda á er útvarpsþáttur Lísu Páls, Flakk, síðan í dag en þá var þemað Prjón og tók hún m.a. viðtal við mig. Ég gaspraði heil ósköp um prjón og vona að fólk hafi haft gaman að. Hér er þátturinn: http://dagskra.ruv.is/ras1/4468622/2009/06/13/

Tags: , , ,

6 athugasemdir að „Nammi og annað góðgæti úr prjónaheiminum“

  1. Anna skrifaði:

    Þar sem hér eru upplýsingar um alla prjónamenningu þá langar mig að benda á nýja garnbúð á netinu.
    http://garnbudin.is
    Garnbúðin bíður upp á ódýrasta létt-lopa á landinu ! (220 kr.) OG besta verðið á PRJÓNASETTUM :)

  2. ilmur skrifaði:

    Frábært Anna að benda okkur á þetta. Nú er bara að gera sér ferð í Garnbúðina og gera góð kaup prjónarar!

  3. Harpa J skrifaði:

    Ég verð að tékka á þessum útvarpsþætti - en ég hreinlega þori ekki í Nálina í bili - ég er nefnilega að spara…

  4. Anna skrifaði:

    Ég heyrði hluta af viðtalinu við þig Ilmur. Takk fyrir það :)Þetta er frábært framtak hjá þér þessi síða. Spurning hvort Garnbúðin gæti eitthvað mögulega gert á úti-prjónadeginum. T.d. verið með einhverskonar tilboð til prjónakvenna á skrautgarni..?
    endilega sendið mér hugmyndir á garnbudin@garnbudin.is

    kærar kveðjur,
    Anna

  5. Yarness skrifaði:

    Mmm… en girnilegt garn! :)

  6. helene magnusson skrifaði:

    Gaman að hlusta á.

    PS : Með því að bæta við í HTLM code: target=”_blank”
    eftir URL sem tengt er við, opnar tengslin í nýjum gluggum.

Skrifaðu athugasemd