«Ný íslensk uppskrift                                        Heitt á prjónunum- á Ísafirði»

Prjónum úti á morgun

Jæja á morgun er stóri dagurinn hér í Reykjavík og víðar á landinu, s.s. Akureyri. Ég var að klára 4 prjónahólka sem ég set upp á morgun víðsvegar á milli Norræna hússins og Nálarinnar. Ég kom einmitt við í Nálinni í dag og afhenti Baby Surprise peysuna sem ég prjónaði síðasta sumar. Nú hangir hún úti í glugga ásamt öðrum fögrum peysum. Þessi uppskrift er auðvitað bara snilld og hvet ég alla prjónara til þess að prufa uppskriftina. 

Dagurinn á morgun er ekki flókinn. “Dagskráin” byrjar í Nálinni en þaðan ætlum við að ganga upp í Norræna hús með prjónana á lofti. Þegar þangað er komið er hægt að tilla sér niður annað hvort í grasið með teppi og sínar eigin veitingar eða setjast á Gróðurkaffihúsið sem er fyrir utan Norræna húsið. Þar er bæði hægt að sitja úti og inni. 

Þetta verður án efa skemmtileg samkoma og ég hlakka til að sjá hvað allir eru með á prjónunum. Hvað varðar bútaverkefnið að þá er það líka mjög einfalt. 

1. Prjónið bút, alveg sama hvernig garn og hvaða stærð þeir eru í en gott er að vita úr hvaða garni þeir eru svo hægt sé að raða samsvarandi bútum saman í teppi. 

2. Komið með garn sem þið viljið gefa og verður notað til að prjóna búta úr. Garninu verður safnað saman og komið fyrir í körfum á kaffihúsum og prjónabúðum. þar geta þá gestir og gangandi prjónað búta eða bara nokkrar umferðir í bút. 

3. Sendið bútana til mín á heimilisfangið: Eskihlíð 22, 105 Reykjavík. Ég sé um að taka myndir af öllum bútum sem koma og birta hér á síðunni. Einnig safna ég saman bútum sem prjónaðir eru á kaffihúsum. 

Ég efast ekki um að þátttakan verði góð því prjónarar eru gjafmildir að upplagi. Þegar nægt efni er komið í slatta af teppum höldum við uppboð og gefum ágóðan til góðs málefnis. Ok. Allir með!?

Sjáumst á morgun í prjónastuði!

Tags: ,

3 athugasemdir að „Prjónum úti á morgun“

  1. heba skrifaði:

    mæðgurnar á mínu heimili eru að velta því fyrir sér klukkan hvað þetta byrjar?

    Bestu kveðjur.

  2. Fríða skrifaði:

    sæl Ilmur! frábært framtak eins og þín var von og vísa. en, klukkan hvað á maður að mæta? það kemur hvergi fram.
    kv.Fríða

  3. Edda Lilja skrifaði:

    Sæl Fríða
    Það er mæting 12:15 í Nálina ef þú ætlar í gönguna,annars byrjar þetta klukkan 13:00 í Norræna húsinu.
    kv. Edda

Skrifaðu athugasemd