Viltu læra að prjóna?
Hvernig lærir maður að prjóna? Hvernig fer maður frá því að geta varla fitjað upp á yfir í að prjóna fínustu kaðla, húfur, vettlinga og hvað sem hugurinn girnist -bara að nefna það? Hvernig verður maður prjónasnillingur; snillingur sem afkóðar hverja uppskriftina á eftir annarri; snillingur sem ekki aðeins kann allar uppskriftir heldur er líka skapandi til hægri og vinstri og prjónandi upp úr sér?
Tja, af því ég sjálf er nú ekki prjónasnillingur enn að þá get kannski ekki komið með öll svörin en ég stefni svo sannarlega að því að verða þessi prjónasnillingur.
Vel flestir kunna að fitja upp á,
og prjóna slétt og brugðið. Og meira þarf varla að kunna- sko til að byrja. En leiðin að snilldinni er löng og ströng og ekki gefa upp alla von þó að verkefnið þitt sé mis(heppnað). Gott er að drösla sér í gegnum eins og eina uppskrift og ekki er það verra ef hún er á ensku. Því efir að hafa klárað eitt verkefni er það næsta mun einfaldara. Ef þið strandið á skammstöfunum þá getið þið googlað þeim og séð hvernig þetta er gert á vídjói. Það eru til ógrynni af vídjóum á netinu af því hvernig hitt og þetta er gert í prjóni og eru þau mörg frekar góð. Eins er yfirleitt alltaf einhver í nágreni við ykkur sem kann það sem þið kunnið ekki-ekki hika við að leita ráða.
Einnig er ráð að skella sér á prjónanámskeið, ég hef farið á eitt slíkt og lærði ótrúlega mikið, með vinum eða bara sjálfur og kynnast öðrum prjónurum. Mikið úrval er af góðum námskeiðum s.s. á Textílsetrinu og í öllum betri garnverslunum eins og í Nálinni og Storkinum.
Og nú er ekki seinna vænna en að fitja upp á!
Tags: Prjónakennsla

October 28th, 2009 at 10:15 am
Vel heppnuðu námskeiði var einmitt að ljúka í Textílsetrinu á Blönduósi. Frábærar konur og mikil stemmning. Engar fréttir, bara prjón, hekl, gimb og spuni í heila 4 daga. Sjálf kenndi ég prjónatækni heilan dag, peysur að ofan og mósaíkprjón voru hálfsdags námskeið og í fyrsta sinn hélt ég Elizabeth Zimmermann smiðju í heilan dag. Kata í Nálinni kenndi hekl og tvo hluti á einn hringprjón (sem nýtur endalausra vinsælda), Edda Lilja (www.snigla.com) var með frábæra smiðju í frjálsu hekli, innblásið af 52 húfur á 52 vikum verkefninu, Eva Hulda textílkennari kenndi gimb (brilljant mál) og Jóhanna Pálmadóttir sauðfjárbóndi og handavinnukennari kenndi spuna á halasnældu.
Næsta lota verður í febrúar… get varla beðið.
Ragga
October 28th, 2009 at 11:25 am
frábært að heyra af þessu. Maður græðir margra ára prjónareynslu á einu svona námskeiði, það er greinilegt