«woolfest                                        Prjónaperlur - ný prjónabók»

Jólagjafir frá prjónara og jólagjafir til prjónara

Jólin! Prjón við kertaljós er iðja sem margir iðka nú um stundir. Jólin nálgast og við erum hugsanlega að prjóna okkur eitthvað fallegt fyrir jólin eða hugsanlega gjöf handa einhverjum nákomnum.
Þessi jólin sagði ég sjálfri mér að ég myndi ekki prjóna margar gjafir, bara svo ég tapi nú ekki geðheilsunni. Ég var búin að ákveða að ég myndi EKKI vaka fram eftir öllu að klára gjafir á síðasta snúningi eins og í fyrra. En viti menn, nú er ég komin á fullt og er með tvær gjafir í gangi, peysu og ponsjó. Ég prjónaði sleitulaust í 4 tíma í gær og er komin á alvarlegt stig í prjóninu, ég ber neikvæðar tilfinngar til prjónlesins sem dinglar á prjónunum, get ekki beðið eftir að klára og finnst tímapressa ekki virka vel með mínum prjónaskap. Sumir hrista kannski hausinn og segjast geta prjóna 24/7 en ég er ekki ein af þeim. Já já, ég elska að prjóna, er hrifin af því og allt en…á mér líf.

Jæja nóg af kvabbi. Prjónarar prjóna gjafir og hafa hugsanlega líklega gaman að því. Hér eru nokkrar jólagjafahugmyndir að gjöfum frá prjónara til óbreyttra óprjónandi ættingja og vina.

1. Húfa-fljótlegt verkefni og gaman að bæta þeim með í pakkana.
2. Vettlingar-sunnudagsvettlingar t.d. (útprjónsvettlingar). Sparilegir vettlingar eru hvers manns hugljúfi.
3. Stúkur-fljótlegt verkefni og heillar marga stúlkuna.
4.Legghlífar. Mjög gott að eiga par af þeim þegar það er skítakuldi úti og við viljum bara pils.
5. Bangsi handa þeim yngsta.
6. Ponsjó úr þykku garni-maður er svooo fljótur að því.
7. Einfaldar hyrnur úr t.d. tvöföldu einbandi, líka mjög einfalt.
8. Pottaleppar-Hægt að nota prufurnar í körfunni
9.Prjónahólkur og áskorun til viðkomandi að hengja hann upp í hverfinu sínu í skjóli nætur.
10. Sjónvarpssokkar. Þeir eru komnir aftur! Hægt að fá uppskrift á ístex eða í bókinni Prjónaperlur.

Prjónarinn elskar líka prjónslegar gjafir.

1. Kind af kindur.is
2. Snobbgarn sem prjónarinn leyfir sér aldrei að kaupa
3. Prjónasett
4. Prjónanámskeið
5. Garnúttekt í góðri garnbúð
6. Prjóna DVDinn Prjónum saman
7. Bækur eins og Prjónaperlur og Kúr & Lúr
8. Biblíur eins og Knitters Almanac e. Zimmerman
9. Munsturdoðrantabækur með öllum hugsanlegum munstur í heiminum
10. Prjónagjafakarfa með úrvali af garni, prjónum og munsturhefti t.d. frá Ístex.

Tags:

5 athugasemdir að „Jólagjafir frá prjónara og jólagjafir til prjónara“

  1. Bjarney skrifaði:

    Þekki þessa prjónamaníu. Því miður er þetta ekki árstíðabundið hjá mér, heldur ástand sem varir allt árið. Líkt og þú Ilmur þá ætlaði ég ekki að prjóna nær allar jólagjafirnar í ár en eins og alltaf þá breyttist það á einhverjum tímapunkti.
    Gleðileg prjónajól

  2. Harpa J skrifaði:

    Mig langar í flest úr neðri hlutanum. En þó allra mest nr 9.

  3. Halldóra skrifaði:

    Ha ha ha… þetta minnir mig á hana Stephanie Pearl-McPhee (www.yarnharlot.ca) þegar hún er að lýsa jólagjafaprjónamaníunni hjá sér og allt náttúrulega á síðustu stundu…. Fyrir rest er hún farin að prjóna sólarhringunum saman, og reiknar út tímafjöldann þangað til hún hittir viðkomandi/Verður að pakka gjöfinn inn…Og spáir í að gefa bara 1 vettling af 2 o.s.frv…. :-)

    Mig langar líka í skemmtilegar prjónabækur! Nýbúin að sjá eina mjög krúttlega norska: Myk start (http://mykstart.blogspot.com/).
    :-) - HS.

    kv.
    Halldóra.

  4. ilmur skrifaði:

    Þetta er allt að koma hjá mér. Ég er búin með eina gjöf og önnur nærri tilbúin. Svo var ég að fitja upp á sjónvarpssokkum sem er bæði einföld og fljótleg uppskrift. Mæli með henni, er í prjónaperlur.

  5. Lára skrifaði:

    Á vinkonu sem er ný byrjuð að prjóna. Hún á allt sem hún þarf eins og við flest. Ég ætla að gefa henni fallegan hringprjón, fallega garn og uppskrift af einhverju. Það verður hvorki mynd né haus á uppskriftinni aðeins leiðbeiningar. Svona gjöf væri ég mest af öllu til í :) Svo spennó

Skrifaðu athugasemd