prjón með áferð
á prjónunum eru legghlífar. Úr Jaeger garni 4 ply. Ég ákvað að finna eitthvað áferðarmunstur úr munsturbiblíunni. “plain diamonds” urðu fyrir valinu. Hlakka til að vera búin með þær.
Hér er mynd af Plain Diamonds eða “bara svona demantar” eins og ég kalla það.

Tags: demantamunstur, Legghlífar

November 29th, 2010 at 12:16 pm
Frábært að þú sért byrjuð aftur að blogga.
December 4th, 2010 at 11:00 pm
Sæl
Einmitt að vandræðast með legghlífa prjón. Hvað fitjar þú margar upp ? Svona miðað við fullorðins ..og hvað notarðu grófa prjóna?
Bestu kveðjur
Gróa
December 16th, 2010 at 7:17 pm
Ég fitja upp á 70 lykkjum þegar garnið er fíngert en færri ef það er gróft, ég geri þetta dáldið bara eftir auganu.