«Velkomin á prjona.net-upplýsingatorg prjónara.                                        Prjónað úti um allan heim-724 skráðir viðburðir!»

Prjóna-Ólympíuleikarnir

vinningsmerkiðEiga sér stað á fjögurra ára fresti, alveg eins aðrar ólympíugreinar, og sú sem sér um að halda þá er Yarn Harlot. Hugmyndin snýst um að fitja upp á verkefni á meðan opnunarathöfn sumarólympíuleikanna (8 ágúst) á sér stað og klára áður en Ólympíueldurinn deyr út (24.ágúst). Þetta eru 17 dagar!

Reglur:
1. Verkefnið verður að klárast á 17 dögum
2. Það eru engar reglur um hvernig verkefni eigi að prjóna. Ef þú ert nýgræðingur að þá er kannski sniðugt að velja sér einfalt garðaprjónsverkefni.
3. Þetta á að vera krefjandi en þó ekki svo erfitt að þú viljir aldrei prjóna aftur.
4. Ekki fitja upp á áður en loginn er tendraður.
5. Kláraðu áður en loginn deyr út.
6. Þú mátt búa til prufur áður en leikarnir hefjast.

Verðlaun:

Það eru engar medalíur en þeir sem ná að klára á settum tíma fá merki (badge) á bloggsíðuna sína.
(heimild: www.yarnharlot.ca/blog/olympics2006.htm )

Skrifaðu athugasemd