Mason Dixon prjón
Mason Dixon knitting eru Kay Gardiner og Ann Shayne. Þær kynntust í gegnum internetið á spjallsvæði tengdu Rowan garninu. Önnur býr í New York hin í Suðurríkjunum. Til þess að gera langa sögu stutta að þá þróuðust netsamskipti þeirra út í samvinnuverkefni og saman gáfu þær út bókina Mason Dixon Knitting árið 2006. Bókin er æðisleg og ekki aðeins er hún uppfull af hagnýtum uppskriftum heldur er hún stórskemmtileg aflestrar. Þær segja frá Prjónað til góðs verkefninu afghans for Afghans en saman keyrðu þær áfram samvinnuprjónaverkefni sem fólst í því að hvetja prjónara um allan heim að prjóna ferhyrninga sem síðan voru saumaðir saman í teppi og sendir til Afghanistan.
Einnig er kafli um hvernig hægt er að gera prjón skemmtilegt fyrir börn. Ein af þeirra gullnu prjónareglum er t.d.: Teach a child to knit, and you get to buy yarn more often. Þær sýna hvernig hægt er að rífa niður gamla suttermaboli og búa til garn úr þeim og prjóna t.d. mottur. Þetta ferli finnst krökkum einmitt mjög skemmtilegt og það er auðveldara að prjóna úr slíkum efnivið heldur en sleipu ullargarni sem vill þæfast í höndunum á manni.
Hér að neðan eru þræðir á bæði fríar uppskriftir eftir þær stöllur sem og á bloggsíðuna þeirra sem ég mæli með og einnig er þráður á Prjónað til góðs verkefnið afghans for Afghans.
Kíkt inn í bókina Mason Dixon Knitting
Tags: afghans for Afghans, Mason Dixon, Prjónað til góðs, Uppskriftir
