«Knit Lab- Prjónakaffihús í Stokkhólmi                                        Prjónaður Ferrari/vídjóklippa»

Síðsumarsprjón

Sumarið er auðvitað enn í háum hæðum en nú húmar að og haustið er á næsta leyti. Þess vegna er tilvalið að fitja upp á hlýjum vettlingum, sokkum, húfum og treflum. Reyndar vilja sumir meina að slíkum verkefnum eigi að byrja á í sumarbyrjun því þá sé alveg öruggt að maður gangi í nýprjónuðum sokkum á haustmánuðum. Ef prjónaveröld mín væri hnökralaus að þá væri ég einmitt þannig prjónari, og kannski verð ég það einn daginn, en ég er það ekki enn og því ætla ég að setja í eina sokka fyrir haustið.

Hér að neðan eru nokkrar fínar uppskriftir fyrir haustið:
Matrix vettlingar
Kaðlavettlingar
Auðveldir vettlingar
ZigZag trefill
Hafmeyjutrefill
Dúskatrefill
Auðveldir sokkar

 

 

Tags: , , ,

Skrifaðu athugasemd