Prjónað úti á menningarnótt 2008

Thursday, July 17th, 2008

Á Menningarnótt í ár verður Prjónað úti viðburður á dagskránni. Það er ég sem er að skipuleggja húllumhæið en staðsetning liggur ekki alveg fyrir. Annað hvort verður þetta í Hljómskálagarðinum eða Hallargarðinum a.k.a. Prjónagarðinum. Vonandi tekst jafn vel til og á Alþjóðlega Prjónadeginum en þessi viðburður verður með svipuðu sniði (hittast í pikknikkgír og prjóna) en það verður líka ýmislegt meira um að vera. Það verður prjónað til góðs fyrir Krabbameinsfélagið, og þá söfnun þess fyrir nýju tæki er greinir brjóstakrabbamein á frumstigi, og því tilvalið að fitja upp á einhverju bleiku og prjóna t.d. brjóst eða bleika borða.

Fólki verður boðið að heita á prjónaskapinn eða kaupa beint af prjónunum (sérstaklega ef prjónarinn sér sér fært að klára verkefnið) og allur ágóði fer beint í bauk Krabbameinsfélagsins. Einnig verða til sölu ofursvöl barmmerki og svo er þetta bara eins og allt annað: Það er fólkið sem mætir sem gerir viðburðinn að því sem hann er. Ef þið hafið einhverjar uppástungur eða spurningar þá skuluð þið senda mér línu á ilmur(hjá)prjona.net.

 

Bleiku brjóstin

Thursday, June 19th, 2008

Í tilefni dagsins er viðeigandi að vísa á þessa fallegu uppskrift að brjóstum. Hún er eftir Beryl Tsang sem fann hjálp í prjónaskap þegar hún var að jafna sig eftir brjóstakrabbamein.
Myndin er af knitknit.net