Komin aftur!

Monday, November 15th, 2010

Vá hvað það er leiðinlegt þegar blogg deyja. Í alvörunni.

Prjónari venur komur sínar á prjónanet. Verður glöð í hvert sinn vegna alls þess skemmtilega efnis sem þar er að finna. Færslurnar flæða, hugmyndir hífa prjónarann upp úr doðanum og innblásturinn verður að ráðlögðum dagskammti.

Og svo þornar uppsprettan upp og ekkert heyrist í 6 mánuði!

Ég biðst forláts.

Nú verður breyting á.

Ég er mætt aftur.

Innblástur dagsins eru dúskar og akkeri. Ég er dottin í fína prjóna og fíngert garn. Fæ ekki nóg af því að prjóna útprjónsvettlinga og sokka á la vintage.

Gjörið svo vel, sjáumst á morgun!

Akkeri:

Ég er sjúk í akkeri. Ætla að prjóna þetta í sokka, trefla, húfur allan hringinn og svo framvegis.

Sokkar:

Þessi bók er YNDISLEG. Er búin með Shell Sock og hnésokkana. Þunnir og fara kuldanum vel.

Dúskar:

Vá hver elskar ekki dúska? Er að spá í löngum mjóum trefli með dúskum allan hringinn eða á sokkana sem ég ætla að prjóna næst, eða á spöng, eða á töskur, lyklakippur…eða…

Lærið þetta ókeypis á netinu:
Vídjó um pom pom

jeijeijei

Fæ aldrei leið á húfum

Monday, November 3rd, 2008

Húfur er dásamlegar og hlýjar. Svo er svo gaman að prjóna þær því maður er svo fljótur en það er skemmtilegra að vera fljótur með prjónaverkefni heldur en að vera lengi með prjónaverkefni. Hér eru nokkrir linkar á uppskriftir sem að mínu mati eru mjög fallegar og skemmtilegar. Sumt gæti hafa birst áður en hvað um það, gjörið svo vel:

 Alpahúfa með köðlum-mig langar að gera svona í kóngabláu
Ugluhúfa-kaðlar
Húfa með dúsk-dúskar eru svo skemmtilegir
Falleg barnahúfa eftir finnska konu-þýðing á ensku er neðarlega á síðunni
Alpahúfa a la Paris