Prjónannáll 2008

Friday, December 26th, 2008

Þetta ár sem nú er að líða var afkastamikið í heimi prjónsins. Árin 2006 og 2007 einkenndust af grúski; Ég vafraði um prjón-net-heima og fann mig allt í einu í djúpum helli hlöðnum af myndum af prjónlesi, hugmyndum að uppskriftum og prjónareynslusögum fólks um veröld víða. Þessi ár fóru líka í að sanka að sér prjónabókum og voru þær taldar um daginn af betri helmingnum (sem hefur mismikla þolinmæði fyrir garninu sem finnst í ólíklegustu skúmaskotum og er vatnskassinn á klósettinu ásamt ruslaskápnum líklegast eini staðurinn sem ekki hefur geymt garn). Hann taldi þá 20 bækur og þá eru lopaheftin og Jaeger blöðin ekki meðtalin. 

Árið 2008 hefur farið í úrvinnslu á öllu grúskinu, ég keypti mér aðeins 1 prjónabók. Það er bókin Knit,Knit og get ég mælt með henni-hún er mín uppáhalds.

Hér verður gerð tilraun til að setja prjónlesið í línulega upptalningu sem er kannski andstætt eðli prjónsins-míns prjóns-þar sem það flæðir um allt í hringlaga flælkjum og sívalingum. … halda áfram að lesa Prjónannáll 2008