Ljúfar lykkjur
Thursday, January 8th, 2009
Flestir prjónarar eru sammála því að ekkert klæði börn jafn vel og heimaprjónaðar flíkur. Ekki aðeins hlýja þær heldur hreinlega umfaðma þær litlu krílin með allri þeirri ástúð sem prjónarinn setti í verkið þar sem hver lykkja er eins og ljúf hugsun. Væmið en satt. Þar sem hnokkinn minn er nýbyrjaður í dagvist fannst mér það mikilvægt að hann fengi eitthvað hlýtt heimaprjónað sem bæði er hægt að kúra sig í og dröslast með.
Værðarvoð varð fyrir valinu en í minni útgáfu er það er gysin dula ef svo er hægt að komast að orði. Ég vel einband í værðarvoðið og nota prjóna nr. 6. Úr verður ferköntuð dula sem hnokkinn má eiga bara fyrir sig og hafa hjá sér þegar hann sefur og einnig dröslast með um íbúðina. Amma prjónaði svona í gamla daga á börnin sín og breiddi yfir andlitin á þeim, þannig sváfu þau alltaf vel.
En þar fyrir utan hef ég huga á að prjóna hlýja húfu eins og þessa:
Toddler helmet
Annars er ég lögð af stað í Baby Surprise Jacket #2 og svo langar mig mikið að prjóna Tomten:


