Prjónað úti 2009

Monday, May 18th, 2009

Prjónað úti 21.júní 2009                                                       

International knit in public day 2009

 

Kæru máttarstólpar íslenskrar prjónamenningar!


Nú fer senn að líða að helstu fagnaðarhátíð prjónara um heim allan, nefnilega Prjónum úti deginum. Dagurinn í fyrra var mjög eftirminnilegur og vakti verðskuldaða athygli fjölmiðla. Í ár erum við reynslunni ríkari og stefnt er að því að haldið verði upp á daginn um land allt.

 

Til stendur að halda upp á hinn alþjóðlega “prjónum úti” daginn þann 21.júní n.k. í Norræna húsinu. Norræna húsið hefur haft það að leiðarljósi að miðla norrænni menningu og prjónið er að sönnu stór hluti af okkar sameiginlega menningararfi.

 

Hægt verður að dreifa sér í kringum húsið, í brekkunum, með prjóna,  nesti og tilheyrandi og ef veður verður okkur í mót má alltaf hverfa inn í hús.

 

Í ár langar okkur til að setja á koppinn einn allsherjar prjónamarkað þar sem prjónabúðum og framleiðendum býðst að bjóða garn til sölu á góðu verði. Einnig verða prjónarar með skiptimarkað á einstökum hnyklum eða prjónabúnaði á teppum sínum. Aðrar prjónatengdar uppákomur verða á staðnum en þær verða kynntar nánar þegar nær dregur.  

Við treystum á að þið, máttarstólpar prjónaheimsins styðjið við daginn með bæði þáttöku sem og upplýsingamiðlun á póstlistum. 

Þó hátíðarhöldin séu að þessu sinni í Norræna húsinu þá byrjar dagurinn með táknrænni prjónaskrúðgöngu frá laugavegi að Norræna húsinu og verður leiðin vörðuð með prjónahólkum sem prjónarar eru hvattir til að prjóna og skreyta bæði leiðina og sitt nánasta umhverfi.

 

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt og óskum hér með eftir viðbrögðum ykkar, tilkynningum um þátttöku og/eða hugmyndum að fleiri dagskrárliðum.  

Með kærri prjónakveðju,

Ilmur -www.prjona.net

Ragga - www.lesprjon.blogspot.com/www.prjoniprjon.blogspot.com   

 

 

 

 

KIP-Knit in Public

Thursday, February 5th, 2009

Alþjóðlegi prjónum úti dagurinn nálgast. Hvet ykkur öll til að koma upp viðburði í ykkar bæjarfélagi.

http://www.wwkipday.com

Alþjóðlegur prjónadagur 2008

Sunday, May 4th, 2008

Takið frá 14.júní og mætið með prjónana í Hallargarðinn við Fríkirkjuveg 11. Tilefnið er alþjóðlegur dagur “knit in public” eða “prjónað úti”. Stemningin mun mótast af þáttöku ykkar svo það er um að gera að mæta með teppi, kaffibrúsann og góða skapið. Hægt er að þræða aðra viðburði inn í þessa uppákomu s.s. að skiptast á garni ofl.

… halda áfram að lesa Alþjóðlegur prjónadagur 2008