Lykkjur: Norræn prjónalist 2010 í Norræna húsinu
Tuesday, March 9th, 2010Kæru lesendur Prjóna.nets,
Í sumar verður heljarinnar prjónaveisla í Norræna húsinu þegar viðburðurinn Lykkjur: Norræn prjónalist er á dagskrá. Meginkjarni viðburðarins er sýning á sannkallaðri prjónalist og stendur hún yfir frá 17.júní - 4.júlí. Fyrstu helgi viðburðarins 17.júní - 20.júní verða smiðjur, fyrirlestrar og ýmsir fjörugir prjónaviðburðir á dagskrá. Margir prjónarar hafa farið á námskeið sem spanna marga tíma og/eða jafnvel daga. Smiðjurnar á Lykkjum verða smærri sniðs og má líta á þær sem bragðprufur. Þær munu spanna frá 2-3 tíma og er um að ræða sambræðing fyrirlestur og sýnikennslu. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur taki með sér sitt eigið garn, prjóna og allt sem til þarf í smiðjurnar. Þátttökugjald er ekkert eða mjög lágt. Það á eftir að skýrast þegar nær dregur.
Nú þegar erum við byrjuð að hita upp fyrir Lykkjur. Að tilefni að hátíðinni verður prjónagraff í forgrunni og mun Reykjavík fá á sig mjúkt og litríkt yfirbragð. Við ætlum að gera umfangsmikið prjónagraffverk sem þarfanst margar prjónabúta. Prjónarar eru hvattir til að taka þátt með því að senda prjónabúta til Norræna hússins. Einnig er hægt að fá garn í bút hjá okkur í Norræna húsinu. Það er Ístex sem styrkir okkur með garni.
Þið getið líka komið á kaffihúsið að Vesturgötu 3, 101 Reykjavík (Reykjavík DownTown Hostel) á morgun miðvikudag kl. 20.00. Þar verður hægt að nálgast garn ef þið viljið taka þátt í gjörningnum.
Hér getið þið melt ykkur á viðburðinn á Facebook.
Hér getið þið lesið um viðburðinn á heimasíðu Norræna hússins.
