Garnverslanir á netinu

Thursday, October 23rd, 2008

Garnið á myndinni er frá Blue Moon Fiber

Íslenskar garnbúðir eru flestallar mjög skemmtilegar en á netinu er einnig aragrúi af góðum garnverslunum. Ég verslaði t.d. garn hjá Blue Moon Fiber á meðan dalurinn var ágætur gagnvart krónunni. Þó gengið sé ekki gott núna að þá er engin ástæða til annars en að búast við því að ástandið batni og með betra gengi er hægt að splæsa á sig fallegu garni. Garnið sem ég keypti er einstaklega fallegt á litinn en það er handlitað og handspunnið-ég hef enn ekki rekist á sambærilegt garn hér heima. Viðskiptin gengu vel fyrir sig og garnið var fljótt að berast.

Hér eru fleiri búðir:
Gritty Knits
Eat Sleep Knit
Gosh Yarn It

Endilega komið með ábendingar um skemmtilegar búðir á netinu og reynslu ykkar af þeim.
 

Vafrað um prjona.net

Thursday, June 19th, 2008

Það er vert að taka það fram að allra best er að vafra um þessa síðu í netvöfrunum Safari og Firefox

Ég ætla að ganga svo langt að segja að til þess að njóta netsins til fullnustu að þá er Firefox vafrinn fyrir þig.

Þar sem þessi síða er stöðugt í bígerð að þá má vænta þess að geta skoðað hana og notið í Explorer og öðrum vöfrum innan skamms.