Prjónum úti á morgun

Saturday, June 20th, 2009

Jæja á morgun er stóri dagurinn hér í Reykjavík og víðar á landinu, s.s. Akureyri. Ég var að klára 4 prjónahólka sem ég set upp á morgun víðsvegar á milli Norræna hússins og Nálarinnar. Ég kom einmitt við í Nálinni í dag og afhenti Baby Surprise peysuna sem ég prjónaði síðasta sumar. Nú hangir hún úti í glugga ásamt öðrum fögrum peysum. Þessi uppskrift er auðvitað bara snilld og hvet ég alla prjónara til þess að prufa uppskriftina. 

Dagurinn á morgun er ekki flókinn. “Dagskráin” byrjar í Nálinni en þaðan ætlum við að ganga upp í Norræna hús með prjónana á lofti. Þegar þangað er komið er hægt að tilla sér niður annað hvort í grasið með teppi og sínar eigin veitingar eða setjast á Gróðurkaffihúsið sem er fyrir utan Norræna húsið. Þar er bæði hægt að sitja úti og inni. 

Þetta verður án efa skemmtileg samkoma og ég hlakka til að sjá hvað allir eru með á prjónunum. Hvað varðar bútaverkefnið að þá er það líka mjög einfalt. 

1. Prjónið bút, alveg sama hvernig garn og hvaða stærð þeir eru í en gott er að vita úr hvaða garni þeir eru svo hægt sé að raða samsvarandi bútum saman í teppi. 

2. Komið með garn sem þið viljið gefa og verður notað til að prjóna búta úr. Garninu verður safnað saman og komið fyrir í körfum á kaffihúsum og prjónabúðum. þar geta þá gestir og gangandi prjónað búta eða bara nokkrar umferðir í bút. 

3. Sendið bútana til mín á heimilisfangið: Eskihlíð 22, 105 Reykjavík. Ég sé um að taka myndir af öllum bútum sem koma og birta hér á síðunni. Einnig safna ég saman bútum sem prjónaðir eru á kaffihúsum. 

Ég efast ekki um að þátttakan verði góð því prjónarar eru gjafmildir að upplagi. Þegar nægt efni er komið í slatta af teppum höldum við uppboð og gefum ágóðan til góðs málefnis. Ok. Allir með!?

Sjáumst á morgun í prjónastuði!

Prjónum til góðs á “prjónum úti deginum”

Friday, May 29th, 2009

Kæru Prjónarar,

Stillum saman strengi okkar og prjónum til góðs fyrir líknafélög í landinu. Leitað er til allra prjónara nær og fjær eftir aðstoð.

Á prjónum úti deginum verður hleypt af stokkunum prjónað til góðs söfnun. Hún snýst um að safna saman prjónuðum og hekluðum bútum sem seinna verða saumaðir saman í teppi. Teppin verða svo boðin upp og ágóðinn rennur til góðgerðafélaga. Til þess að sem flestir geti tekið þátt langar okkur að fá kaffihúsin með okkur í lið og koma þar upp prjónakörfum og prjónum ásamt grunnleiðbeiningum í prjóni. Þá geta kaffihúsagestir tekið í prjónana og prjónað nokkrar umferðir eða jafnvel heilan bút. 

 

Þetta þýðir mikið af garni, körfum og prjónum og gaman væri ef allir prjónarar gætu séð af s.s. einni dokku úr binginum og kannski prjónum. Enn er verið að leita að styrktaraðilum til samstarfs en þetta er upphafið. 

Á prjónum úti deginum munum við formlega hefja Prjónum til góðs verkefnið og þá væri gaman að geta safnað saman garni í bing. 

Þið sem viljið hefjast handa nú þegar við góðverkin getið sent mér garn, bút eða prjóna upp í Norræna hús. Einnig væri gaman ef þið getið komið upp prjónakörfu sjálf á kaffihúsum í nágreni við ykkur-tekið mynd af körfunni og sent mér. 

Ég hef fulla trú á að prjónarar taki þátt í þessu verkefni og gaman verður að fylgjast með þessu í vetur en uppskeran verður um jólin þegar einmitt er svo gott að gefa að sér.

Með von um góð viðbrögð, Ilmur. 

Ég prjóna-merkin hjá Storkinum og Handprjónasambandinu

Tuesday, August 26th, 2008

Hægt er að kaupa stærstu gerðina af hinum margfrægu merkjum hjá Storkinum og Handprjónasambandinu v. Skólavörðustíg. Takmarkað upplag svo ég hvet lesendur til að heimsækja þessar skemmtilegu verslanir og gera góð kaup. 

Ég prjóna-merkin út á land

Tuesday, August 26th, 2008

Þið sem búið úti á landi og hafið áhuga á að kaupa “ég prjóna”-merkin getið millifært inn á reikning Krabbameinsfélagsins: nr.301-26-706  kt. 700169-2789 og setjið prjon í tilvísunina. Kvittun þarf að senda á ilmur(hjá)prjona.net og þegar ég fæ kvittun sendi ég merkin af stað. Ég vil taka fram að þetta fyrirkomulag verður aðeins í gangi fram að helgi og er takmarkað upplag af merkjunum. 

Verðið er 1000 kr. fyrir stórt, 750 kr. fyrir miðstærð og 500 kr fyrir lítið. 

Prjónlesið sem ég fékk verður selt hjá Krabbameinsfélaginu og get ég enn tekið við kláruðum verkefnum. 

Kærar þakkir fyrir stuðninginn!

Bleikt garn

Monday, August 11th, 2008

Ef þið eigið bleikt garn og eruð í stuði til að losna við það, deila því með ykkur og vera góð, að þá er ég að leita eftir bleiku afgangsgarni fyrir Menningarnótt sem verður 23.ágúst n.k. 

Grafið í garnstaflanum, það er hugsanlega eitthvað af bleiku garni sem óskar eftir stærri tilgang í lífinu en að vera í geymslu.

Góð gjörð - Prjónað til góðs á Menningarnótt

Thursday, August 7th, 2008

Það styttist í Menningarnótt og eins og áður hefur komið fram að þá er prjón á dagskrá Menningarnætur í ár. Prjónarar eru hvattir til að prjóna til góðs í Hallargarðinum milli 14:00 og 17:00 á Menningarnótt. Fólk er hvatt til að koma með bleikt garn og fitja upp á einhverju til styrktar Krabbameinsfélaginu. … halda áfram að lesa Góð gjörð - Prjónað til góðs á Menningarnótt

Bobbingatrefill

Thursday, July 24th, 2008

Hér að neðan er þráður á flotta uppskrift á knitty.com og gæti verið sniðug í verkefni fyrir Prjónað til góðs á Menningarnótt 2008.. Mér var bent á hana á ravelry.com, takk fyrir það.
Knitty.com hefur gefið út fullt af uppskriftum sem vekja athygli á baráttunni gegn brjóstakrabbameini og er þessi ein af þeim.

Bobbingatrefill

Bleiki borðinn

Friday, July 18th, 2008

Hér eru nokkrar uppskriftir sem sniðugt er að prjóna á Prjónum til góðs: Menningarnótt 2008 viðburðinum. Bleiki borðinn er tákn baráttunnar gegn brjóstakrabbameini og hægt er að nálgast margar fríar uppskriftir sem innihalda bleika borðann. Á Prjónum til góðs viðburðinum 18. ágúst er einmitt snjallt að selja eitthvað beint af prjónunum og láta ágóðann renna til Krabbameinsfélagsins. Prjónum og gefum á Menningarnótt 2008. … halda áfram að lesa Bleiki borðinn

Prjónað úti á menningarnótt 2008

Thursday, July 17th, 2008

Á Menningarnótt í ár verður Prjónað úti viðburður á dagskránni. Það er ég sem er að skipuleggja húllumhæið en staðsetning liggur ekki alveg fyrir. Annað hvort verður þetta í Hljómskálagarðinum eða Hallargarðinum a.k.a. Prjónagarðinum. Vonandi tekst jafn vel til og á Alþjóðlega Prjónadeginum en þessi viðburður verður með svipuðu sniði (hittast í pikknikkgír og prjóna) en það verður líka ýmislegt meira um að vera. Það verður prjónað til góðs fyrir Krabbameinsfélagið, og þá söfnun þess fyrir nýju tæki er greinir brjóstakrabbamein á frumstigi, og því tilvalið að fitja upp á einhverju bleiku og prjóna t.d. brjóst eða bleika borða.

Fólki verður boðið að heita á prjónaskapinn eða kaupa beint af prjónunum (sérstaklega ef prjónarinn sér sér fært að klára verkefnið) og allur ágóði fer beint í bauk Krabbameinsfélagsins. Einnig verða til sölu ofursvöl barmmerki og svo er þetta bara eins og allt annað: Það er fólkið sem mætir sem gerir viðburðinn að því sem hann er. Ef þið hafið einhverjar uppástungur eða spurningar þá skuluð þið senda mér línu á ilmur(hjá)prjona.net.

 

Mason Dixon prjón

Friday, June 20th, 2008

Mason Dixon knitting eru Kay Gardiner og Ann Shayne. Þær kynntust í gegnum internetið á spjallsvæði tengdu Rowan garninu. Önnur býr í New York hin í Suðurríkjunum. Til þess að gera langa sögu stutta að þá þróuðust netsamskipti þeirra út í samvinnuverkefni og saman gáfu þær út bókina Mason Dixon Knitting árið 2006. Bókin er æðisleg og ekki aðeins er hún uppfull af hagnýtum uppskriftum heldur er hún stórskemmtileg aflestrar. Þær segja frá Prjónað til góðs verkefninu afghans for Afghans en … halda áfram að lesa Mason Dixon prjón

Prjónað til góðs

Tuesday, March 18th, 2008

Frá árdögum prjónsins hafa prjónarar prjónað öðrum til góða. Þekkt er það að konur prjónuðu til styrktar hermönnum í fyrri heimstyrjöldinni og fengu þeir senda hlýja sokka frá föðurlandinu. Ameríski Rauði Krossinn útvegaði sömuleiðis garn og leiðbeiningar fyrir prjónara um gjörvöll Bandaríkin og hvöttu þannig prjónara áfram í að prjóna til góðs. Hér er hægt að nálgast uppskriftir … halda áfram að lesa Prjónað til góðs